Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2000, Blaðsíða 70

Læknablaðið - 15.05.2000, Blaðsíða 70
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐASAFN LÆKNA 122 Ascending Jóhann Heiðar Jóhannsson Netfang: johannhj@rsp.is Kristín Ólafsdóttir, læknir, hefur ekki verið í neinum vafa um það hvort heitið væri rétt að nota. I bók sinni, Heilsufræði handa hús- mæðrum, Reykjavík 1943, segir hún meðal annars í kafla sem ber heitið Meðferð ung- barna: „Ungbörn eiga að nærast á brjóstamjólk. Hún ein er eðlileg fæða handa þeim.“ „Herbergi ungbarna eiga að vera björt og loftgóð.“ „Ungbörn eiga að sofa ein í rúmi, eins og áður er sagt.“ „Ungbörn á að þvo og lauga daglega og skipta á þeim föturn." „Ungbörn þurfa mikinn svefn og eiga að fá að sofa, eins mikið og þau geta.“ „Ungböm eiga að vera á bijósti, ekki skemur en þar til þau eru sex mánaða, og ekki lengur en níu mánuði." Að auki nefnir hún ófullburða börn, ný- fædd börn, brjóstabörn og pelabörn. Hildur Harðardóttir, kvensjúkdómalæknir, sendi tölvupóst og sagðist vera að leita að íslensku samheiti á sýkingum sem berast til fósturs frá fæð- ingarvegi móður. Sýkingarmátinn er á ensku nefndur „ascending", og byggist sú nafngift á því að sýklarnir eru taldir berast upp úr leggöngum eða leghálsi og brjóta sér leið gegnum belgi til fósturs í legi. Ensk-íslensk orðabók Arnar og Örlygs greinir frá því að enska sögnin to ascend merki: I. rísa, stíga upp, hœkka. 2. klífa, fara upp (e-ð), stíga upp eftir (e-u), ganga á (fjall). íðorðasafn lækna birtir enska lýsingar- orðið ascending, hœkkandi, rísandi, og það latneska ascendens, hœkkandi, ris-. Ekkert af þessu hugnaðist Hildi til að íslenska hið samsetta heiti ascending in- fection. Hjá undirrituðum varð ekki nein stórkostleg hugljómun og leitað er til lesenda um aðstoð. Fyrstu tillögur eru þessar: uppgcngin sýking, uppkomin sýk- ing, uppstigin sýking eða upprásarsýking. Mesenchyma Tvær fýrirspurnir hafa borist varðandi íslenskt heiti á því fyrirbæri sem á ensku nefnist mesenchyme og á latínu mesenchyma. í íðorðasafni lækna, LM-heftinu frá 1988, er vefurinn nefndur fósturbandvefur, en í Fósturfræðiheitunum frá 1995 var tekið upp heitið bandvefskím. Önnur fyrirspurnin er vegna heitis á sérkennilegu og sjaldgæfu æxli, sem á ensku nefnist mesenchymal hamartoma, en hin vegna heitis á þeim stofnfrumum blóðmyndunar sem á ensku nefnast mesenchymal stem cells. Örlitil fósturfræði Fyrst eftir að fósturvísisdiskurinn, discus embryon- icus, myndast er hann tvflaga. Lögin tvö eru fóstur- vísisútlag, ectoderma embryonicum, sem myndar meðal annars húðþekjuna, og fósturvísisinnlag, endo- derma embryonicum, sem myndar meðal annars slím- húðarþekju loftvega, meltingarvegar og þvagfæra. Milli laganna tveggja birtist svo fósturvísismiðlagið, mesoderma, en úr því verða síðar til btjósk, bein, vöðvar, æðar, bandvefur og blóðmyndandi vefur. Frumurnar í miðlaginu mynda mjög snemma fyrr- nefndan, lausgerðan fósturbandvef, mesenchyma, sem fengið hefur íslenska heitið bandvefskím. Læknis- fræðiorðabækur lýsa mesenchyma þannig að um sé að ræða frumstœðan fósturbandvef sem síðar þróist í ýmsa stoðvefi. Vefurinn er gerður úr lítið þroskuðum (frumstæðum) bandvefsfrumum, sem gjarnan eru stjömulaga, og úr hlaupkenndu millifrumuefni og bandvefstrefjum. Örlítil orðfræði Latneska heitið mesenchyma er reyndar grískt að uppruna, myndað úr forskeytinu mes-, sem táknar mið-, miðju- eða milli-, og samsetta nafnorðinu enkyma, sem táknar seyði, áhelling eða innrennslis- vökvi. Gríska forskeytið en- táknar (j inni í eða inn í og chymos er vökvi. Segja má því að enkyma sé inn- vökvi, vökvinn inni í vefnum. Heitið hamartoma er einnig af grískum uppruna, myndað úr nafnorðinu hamartia sem merkir villa, mistök eða bilun, jafnvel líkamsgalli, og viðskeytinu -oma, sem nú merkir cexli, en er sagt upphaflega hafa verið notað um ýmsar sjúklegar fyrirferðir, bæði bólgur og æxli. íðorðasafn lækna þýðir hamartia með vaxtarvilla og hamartoma með íslenska heitinu vaxtarvilluæxli. Enska heitið stem cell hefur fengið hina ágætu ís- lensku þýðingu stofnfruma. Tæpast er hægt að gera betur. Ttl skilgreiningar á stem cell segir læknisfræði- orðabók Stedmans: 1. sérhver forfruma; 2. fruma sem getur af sér dótturfrumur sem þróast í aðrar frumu- tegundir. Tillögur I bili er um fátt annað að ræða en bandvefskíms- stofnfrumur sem heiti á mesenchymal stem cells og bandvefskímsvaxtarvilluæxli sem heiti á mesenchy- mal hamartoma. Heitin eru vissulega óþægilega löng, en þeim má einnig skipta og tala þá um vaxtarvillu- æxli bandvefskíms og stofnfrumur bandvefskíms. eins og við á. Ungbarn A lúnum miða í sloppvasa fundust orðin ungbarn og ungabarn. Viðmælandi einn hafði tjáð undirrituðum þá skoðun sína að ungbarn væri rétta heitið þegar vísað væri til barna á fyrsta ári. Orðið ungabarn væri hins vegar rangt myndað. Undirritaður tók undir þessa skoðun og hafði þá íðorðasafnið sér til halds og trausts. Enska nafnorðið infant (á latínu infans) er þar eingöngu þýtt sem ungbarn. Undrunin var hins vegar mikil þegar í ljós kom að Islensk orðabók Máls og menningar birtir bæði orðin og það á þann hátt að þau virðast jafngild. Pá var brugðið á það ráð að fletta upp í Samheitaorðabókinni - og viti menn! - bæði orðin fundust þar og voru útskýrð á sama hátt: óviti sbr. hvítvoðungur. Hvítvoðungur reyndist svo eiga fjölda samheita: barn, ómálga barn, blautabarn, blautbarn, brjóstmylk- ingur, kjöltubarn, kornabarn, kornbarn, pelabarn, reifabarn, reifastrangi, smábarn, ungabarn, ungbarn, vöggubarn, vöggur. 386 Læknablaðið 2000/86
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.