Læknablaðið - 15.07.2001, Page 19
FRÆÐIGREINAR / LIFRARMEINVÖRP / SJÚKRATILFELLI
Figure 2. Computed tomography ofthe liver with metastases (arrow) both in the left (a) and the right lobe (b).
að stærð (adenomata tubulares) en í þeim stærsta,
sem var 2,3 cm á lengd, fundust forstigsbreytingar
krabbameins (setkrabbamein). í báðum lifrar-
sýnunum sáust meinvörp frá ristilkrabbameini.
Tveimur vikum síðar var ákveðið að senda
sjúklinginn á Borgarspítala þar sern kanna átti
hvort lifrarmeinvörpin væru skurðtæk. Gerð var
ný sneiðmyndarrannsókn af lifur auk ómskoðunar.
Ekki greindust aðrar fyrirferðir í lifur en þær sem
áður höfðu sést og þreifuðust við skurðaðgerð.
Slagæðamyndataka af lifur (mynd 3) staðfesti að
lifrarúrnám var tæknilega framkvæmanlegt (mynd
3). Jafnframt sýndi æðamyndatakan að vinstri
lifrarslagæð átti upptök sín frá vinstri magaslagæð.
Beinaskann var eðlilegt og engin merki um mein-
vörp í lungum.
Þremur vikum síðar var framkvæmt lifrarúrnám
þar sem vinstri helmingur lifrar (geirar (segments)
II, III og IV) auk VI geira hægri lifrar voru
fjarlægðir (mynd 4). Við aðgerðina var notaður
CUSA-hnífur og blæddi um 2000 ml. Vefja-
rannsókn staðfesti áðurnefnd meinvörp frá ristil-
krabbameininu með fríum skurðbrúnum. Bati var
góður eftir aðgerðina og fluttist sjúklingurinn aftur
á FSA 10 dögum síðar.
Ný ristilspeglun reyndist eðlileg. Rúmum
tveimur mánuðum eftir aðgerðina var hafin með-
ferð með frumueyðandi lyfjum, flúoróúracíli og
levamísóli. Þeirri meðferð var haldið áfram í rúma
sex mánuði og þoldist meðferðin vel. Lifrarpróf
héldust eðlileg og CEA (carcinoembryonic anti-
gen), sem var vægt hækkað fyrir aðgerð, varð
eðlilegt eftir að meðferðin hófst. Hálfu ári eftir
lifraraðgerðina hækkaði CEA að nýju. Nýjar
sneiðmyndir af lifur sýndu merki eftir undan-
gengið lifrarúrnám en að auki nýja fyrirferð neðar-
lega í hægra lifrarblaði (mynd 5). Önnur meinvörp
greindust ekki í kviðar- eða brjóstholi og
Figure 3. Coeliac angiography showing the anatomy ofthe circulation to the liver and
the pathological arteries around the metastases of the liver (arrow). The left lobe ofthe
liver is perfused from left gastric artery (arrow).
Figure 4. The functional
division ofthe liver and of
the liver segments
according to Couninaud's
nomenclature.
Læknablaðið 2001/87 615