Læknablaðið - 15.07.2001, Page 26
FRÆÐIGREINAR / BRÁÐAOFNÆMI OG ASTMI
45 -
40 -
35 -
30 -
I Medical Students
j Controls
Figure 1. Percantage ofpositive skin prick test (3 mm or more) among medical students
and controls.
Table 1. Percentage prevalence of positive answers among medical students and controls.
Medical students Controls P-
Questions N=100 N=102 values
Have you had wheezing or whisling in your chest at any time in the last 12 months? ii 16 ns
Have you ever had asthma? 17 7 <0.05
Have you had an attack of asthma in the last 12 months? 7 2 ns
Do you have any nasal allergies, including hay fever? 27 24 ns
Have you ever had eczema of any kind or skin allergy? 42 50 ns
Did you in childhood have chronic eczema in antecubital flexures and/or popliteal fossae? 16 7 ns
Have you at any time had an urticaria? 27 13 <0.05
Have you ever had a drug allergy? 13 11 ns
Have you ever had an illness or trouble caused be eating a particular food or foods? 16 22 ns
Have you nearly always had the same illness or trouble after eating that type of food? 10 13 ns
baki sé hættara við ofnæmi en þeim sem hafa niinni
menntun. Sé sú fullyrðing rétt gætu umhverfisþættir
legið þar að baki svo sem minni fjölskyldustærð og
færri systkini eða minni snerting við dýr í æsku meðal
þeirra sem hafa meiri menntun. Pótt allmikið sé til af
faraldsfræðilegum rannsóknum á ofnæmi og
ofnæmissjúkdómum hjá stúdentum hefur okkur,
höfundum þessarar greinar, ekki tekist að finna
neinar rannsóknir þar sem borið er saman algengi
ofnæmis meðal langskólagenginna og samanburðar-
hóps á sama aldri.
í Evrópukönnuninni Lungu og heilsa (16) var
meðal annars spurt um nám, störf og menntun. Af
þeim 537 einstaklingum, með marktækar niður-
stöður á húðprófum, svöruðu 79 játandi spurning-
unni: Stundar þú nám sem fullt starf? í hópi þeirra
sem höfðu ofnæmi svöruðu 25% þessari spurningu
játandi, en í hópi þeirra sem ekki höfðu ofnæmi
svöruðu 12% þessari spurningu játandi (p=0,002).
Þetta svarar þó ekki því hvort fólki með lang-
skólamenntun hættir yfirleitt oftar til að fá ofnæmi en
fólki með skemmri menntu, né heldur því hvort
unglingar með ofnæmi sækist frekar eftir menntun en
þeir sem ekki hafa ofnæmi, vegna þess að ofnæmi er
algengara í yngri aldurshópunum þar sem stærra
hlutfall hvers árgangs er enn í fullu námi. Tilgangur
rannsóknar okkar var að kanna algengi bráða-
ofnæmis og ofnæmistengdra einkenna meðal lækna-
nema og bera niðurstöðurnar saman við niðurstöður
meðal jafnaldra þeirra sem þátl tóku í Evrópu-
könnuninni Lungu og heilsa.
Rannsóknin var gerð með samþykki Tölvu-
nefndar.
Efniviður og aðferðir
Allir læknanemar á aldrinum 20-25 ára mynduðu
rannsóknarhópinn. Þeir voru 113 talsins. I saman-
burðarhópnum voru þeir sem tóku þátt í íslenska
hluta Evrópukönnunarinnar Lungu og heilsa og voru
þá á aldrinum 20-25 ára. Þeir voru valdir af handahófi
úr þjóðskrá og bjuggu á Reykjavíkursvæðinu frá
Hafnarfirði í Mosfellsbæ (16,17).
Sömu spurningalistar voru lagðir fyrir alla
þátttakendur um ofnæmi í ætt, fjölda systkina,
aðstæður á heimili og dýrahald í æsku, vistun í
leikskóla eða hjá dagmömmu fram að fimm ára aldri
og reykingavenjur (16,17). Einnig var spurt um
einkenni frá öndunarfærum, ofnæmisexem, ofsa-
kláða og ofsabjúg, fæðuofnæmi. lyfjaofnæmi og
ofnæmiseinkenni af dýrum, gróðri og heyryki.
Ofnæmisrannsóknir voru framkvæmdar með
pikk-aðferð og var prófað fyrir eftirtöldum ofnæmis-
vökum: Birki, túnvíngul, hestum, köttum, hundum,
Dermatophagoides pteronyssinus, Lepidoglyphus
destructor, Cladosporium herbarum og Alternaria
alternata. Þetta eru sömu ofnæmisvakar og í
Evrópukönnunini en í þeirri könnun voru notaðar
fasettur (phazets) nema fyrir Lepidoglyphus
destructor. í þessari rannsókn voru notaðar ofnæmis-
lausnir frá ALK í Danmörku. I báðum rann-
sóknunum var prófað fyrir Lepidoglyphus destructor
með ofnæmislausn frá ALK. Framkvæmd prófsins og
úrlestur var að öðru leyti með sama hætti í báðum
rannsóknunum (16).
Skilgreiningar: Húðpróf var talið jákvætt ef
svörunin var 3 mm eða meira fyrir einum eða fleiri
ofnæmisvökum. Uppsafnað algengi astma (cumu-
lative prevalence) var skilgreint sem hundraðshluti
þeirra sem svöruðu játandi báðum eftirfarandi
spurningum: „Hefur þú nokkurn tíma fengið
astma?“ og „var það staðfest af lækni?"
Tölfræði: Samanburður á hópum var gerður með
kí-kvaðratsprófum. Marktækur munur miðast við p-
gildi undir 0,05.
622 Læknablaðið 2001/87