Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.07.2001, Qupperneq 55

Læknablaðið - 15.07.2001, Qupperneq 55
UMRÆÐA & FRÉTTIR / PERSÓNUVERND OG FRIÐHELGI EINKALÍFS Mörk heimilda löggjafans Björg Rúnarsdóttir Byggt á erindi fluttu á málþingi Lögmannafélags íslands og Læknafélags Islands 27. apríl síðastliðinn. Höfundur er lögmaöur. Efnisyfirlit 1. Inngangur 2. Rétturinn til friðhelgi einkalífs og löggjöf til verndar þeim rétti 2.1. Hugtakið friðhelgi einkalífs í skilningi 1. mgr. 71. gr. stjskr. og 8. gr. MSE 2.1.1. Hugtakið friðhelgi einkalífs 2.1.2. Tvíþætt skylda ríkisvaldsins 2.1.3. Réttur einstaklinga til að njóta friðar um persónuupplýsingar er þáttur í mannréttinda- vernd 2.2. Mannréttindasáttmálar og þjóðréttarlegar skuldbindingar, alþjóðlegt samstarf á sviði verndar persónuupplýsinga og friðhelgi einkalífs 2.3. Islensk löggjöf til verndar friðhelgi einkalífs 3. Lög um gagnagrunn á heilbrigðissviði nr. 139/1998 3.1. Lex specialis 3.2. Lex posterior 3.3. Frávik frá fyrirmælum almennra laga til verndar friðhelgi einkalífs 3.4. Af hverju? 4. Heimildir löggjafans til að mæla fyrir um ráð- stafanir er varða stjórnarskrárvarin réttindi einstak- linga um friðhelgi einkalífs 4.1. Hugtakið persónuupplýsingar 4.2. Eftirlit með framkvæmd GRL 4.3. Undanþágur í 3. mgr. 71. gr. stjskr. og 2. mgr. 8. gr. MSE 4.4. Dómur Hæstar. frá 1989, bls. 28 4.5. Þróunin síðan - Setning laga um MSE 62/1994 - Setning laga um breytingu á mann- réttindaákvæðum stjskr. 97/1995 - Styrking mannréttindaákvæða stjskr. - Undanþága frá 1. mgr. 71. gr. stjskr. þrengd - Setning Iaga um réttindi sjúklinga 74/1997 - Setning laga um lífsýnasöfn 110/2000 4.6. Dómur MDE frá 25. febr. 1997 í málinu Z gegn Finnlandi 4.7. Skýring MSE 4.8. Niðurstaða 5. Lokaorð 1. Inngangur Grein þessi er unnin upp úr erindi sem höfundur flutti á málþingi Lögmannafélags Islands og Lækna- félags Islands. Var málþingið haldið hinn 27. apríl síðastliðinn og fjallaði um persónuvernd og friðhelgi einkalífs í ljósi gagnagrunna á heilbrigðissviði. í greininni er leitast við að fjalla um mörk heimilda löggjafans til að mæla fyrir unr ráðstafanir er varða stjórnarskrárvarin réttindi einstaklinga um friðhelgi einkalífs. Fyrst er þó vikið að því hvað talið sé felast í hugtakinu friðhelgi einkalífs eins og það birtist í 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu (hér eftir skammstafað MSE) og 1. mgr. 71. gr. íslensku stjórnarskrárinnar (hér eftir skammstafað stjskr.). Einnig er drepið á helstu mannréttindasáttmála og þjóðréttarskuldbindingar á sviði verndar persónu- upplýsinga og friðhelgi einkalífs, ásamt því að fjallað er stuttlega um íslenska löggjöf á þessu sviði. Þá er sjónum einnig beint að sérstöðu laga nr. 139/1998 um gagnagrunn á heilbrigðissviði, enda markast efni greinarinnar af þeim lögum. 2. Rétturinn til friðhelgi einkalífs og löggjöf til verndar þeim rétti 2.1. Hugtakið friðhelgi einkalífs í skilningi 1. nigr. 71. gr. stjskr. og 8. gr. MSE 2.1.1. Hugtakið friðhelgi einkalífs: Friðhelgi einkalífs er meðal grundvallarréttinda einstaklings í menningarþjóðfélagi. í friðhelgi einkalífsins felst fyrst og fremst réttur manns til að ráða yfir lífi sínu og líkama og til að njóta friðar um lífshætti sína og einkahagi. Jafnframt er litið svo á, að tilfinningalíf og tilfinningasambönd við aðra njóti verndar samkvæmt ákvæðinu, og er þá átt við það að einstaklingurinn eigi rétt til að þróa sinn eigin persónuleika og tengsl við aðra. Ennfremur er talið að í ákvæðinu felist réttur einstaklinga til aðgangs að upplýsingum um sjálfa sig (1). 2.1.2. Tvíþœtt skylda ríkisvaldsins: Hugtakið friðhelgi í 1. mgr. 71. gr. stjskr. og 8. gr. MSE er talið fela í sér tvennt, það er að segja tvíþætta skyldu ríkisvaldsins. Annars vegar er um að ræða skyldu til að forðast afskipti af einkalífi manna og persónu- Iegum högum þeirra, bæði hvað varðar bein afskipti handhafa opinbers valds og lagasetningu um málefni borgaranna. Hins vegar hvflir tiltekin athafnaskylda á ríkisvaldinu, jákvæð skylda, til að veita einstak- lingum aðstoð á þeim sviðum sem 1. mgr. 71. gr. stjskr. og 8. gr. MSE taka til. Kemur það til sökum þess, að hættan á því að friðhelgi manna sé rofin, stafar ekki einungis frá hinu opinbera, heldur einnig frá öðrum einstaklingum og einkaaðilum. í kröfunni um friðhelgi einkalífs felst því ekki aðeins það, að ríkið gangi ekki á þennan rétt borgaranna, heldur einnig að ríkinu sé skylt að setja reglur í löggjöf til að Læknablaðið 2001/87 651
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.