Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2001, Síða 67

Læknablaðið - 15.07.2001, Síða 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / TÆPITUNGULAUST Árni Björnsson Að tala skýrt Danska skáldið og spéfuglinn Piet Hein gefur ræðumönnum eftirfarandi ráð. Efað efnið reynist rýrt er ráð að tala ekki skýrt. Þýðing: Helgi Hálfdánarson Skýr hugsun og skýr tjáning hugsunar ætti að vera læknum öðrum fremur töm, að minnsta kosti er erfitt að komast í gegnum læknanám öðruvísi en að beita skýrri hugsun í einhverjum mæli. Pað væri því ekki óeðlilegt að sú skýra hugsun sem fleytir mönnum í gegnum læknanám nýttist þegar að því kemur að nota fræðin. En stundum læðist sú hugsun að mér, og því miður oftar en sjaldnar með aldrinum, að það sé engin trygging fyrir skýrri hugsun að ljúka háskólanámi þótt það eigi að hafa skýra hugsun að leiðarljósi. Stundum jafnvel þvert á móti. Getur verið að mjög sérhæft nám þrengi hugarheiminn og hamli þannig skýrri hugsun? Kannski er ég bara orðinn gamall og á þessvegna erfiðara með að hugsa og tala skýrt! Pessar hugleiðingar spruttu útfrá lestri á síðasta hefti Læknablaðsins. Ekki vegna þess að í því hefti sé meira af þokukenndri hugsun en í fyrri eintökum, heldur vegna þess að þetta var síðasta heftið og lá því við höggi. Sumum er eðlislægt að hugsa og tala skýrt, öðrum reynist það örðugra og svo eru þeir sem eru skýrir en nota skýrleikann til að sveipa orð sín og hugsanir hulu, sem jafnvel hinum skýrustu reynist erfitt að sjá í gegnum. Þetta gildir þó fremur um greinda stjórnmálamenn en lækna. I þennan flokk falla hinir „heimsku en greindu þrjótar“, svo ég vitni aftur í Piet Hein. Þessi þankabrot tengjast fyrst og fremst gagnagrunnsumræðunni í blaðinu en það eru fleiri mál sem tengjast læknastéttinni sem hafa verið til umræðu í þjóðfélaginu undanfarið og á ég þar við sameiningu sjúkrastofnana sem varðar ekki aðeins þá kollega sem verða fyrir barðinu á samrunanum heldur hitt að harla lítil vitræn umræða hefur farið fram um það hverjum þessi sameining þjóni, sjúklingunum, læknunum eða stjórnvöldunum? Um þetta ættu læknar að reyna að hugsa og tala skýrt. Þrátt fyrir alla umræðuna um gagnagrunninn liggur það alls ekki skýrt fyrir, hver tilgangur hans er og hverjum hann muni gagnast þegar upp er staðið. Þó ætti hverjum meðalskýrum manni að vera ljóst að nærlæg gagnsemi hans þjónar fyrst og fremst fyrirtækinu de Code Genetics ehf. Um fjærlægari gagnsemi er allt hulið þoku, en jafnvel meðalskýrum læknum ætti að vera ljóst að grunnurinn mun ekki frelsa okkur íslendinga frá sjúkdómum, hvað þá leysa heilbrigðisvanda heimsbyggðarinnar, en það var hluti af dulbúningnum til að villa um fyrir skýrum sem óskýrum. Önnur flík í dulargervinu var gróða- flíkin. Hún virtist í upphafi vera svo þéttofin að jafn- vel hinum skýrustu skaust að sjá í gegnum hana en er nú orðin svo götótt að ekki þarf nema meðalskýr- leika til að sjá að það er rýrt sem hún á að hylja. En snúum okkur þá að síðasta Læknablaði en þar þvældist grein varaformanns LI dálítið fyrir mér og kann að vera að það sé frekar af óskýrleika mínum en efnistökum greinarhöfundar. Þar sem ég verð að telja að stefnan í greininni tengist stefnu stjórnar LÍ hlýt ég að draga þá ályktun að sú stefna sé ekki nægilega skýr. Vill stjórn LÍ að læknar beygi sig undir það að starfa undir valdboði við skrásetningu sjúklinga sinna í miðlægan gagna- grunn? I greininni er gefið í skin að samningurinn um gagnagrunninn verði gerður við stjórn Landspítala háskólasjúkrahúss, hvort sem læknaráði spítalans líkar betur eða verr. Þar með er látið að því liggja að samráðið við læknaráð spítalans sé „einskonar svartipétur" þar sem fyrirfram er ákveðið að sótinu verði smurt á nef læknanna. Þó er öllum ljóst að lögin um miðlægan gagnagrunn eru ónýtt plagg ef læknar neita að hlýða þeim öðruvísi en að upplýst, skriflegt samþykki sjúklinga komi til. Því spyr ég: Hver er að blekkja hvern? Hvernig ætlar stjórn LI að bregðast við því ef læknaráð spítalans neitar að taka þátt í gerð gagnagrunnsins, nema kröfunni um upplýst sam- þykki verði fullnægt? Má ráðið vænta stuðnings stjórnarinnar? Getur stjórn LI fallist á að réttindi almennings verði „viðunandi"? Er nokkuð „viðunandi“ annað Læknabladið 2001/87 663
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.