Skessuhorn - 26.11.2014, Page 50
50 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2014
Í Stykkishólmi undirbýr nú ungur
maður af kappi að leggja af stað út í
hinn stóra heim. Í apríl ætlar hann
að ferðast þvert niður hnöttinn alla
leið til Seychelles-eyja undan suð-
austurströnd Afríku. Þar hyggst
hann starfa sem sjálfboðaliði í vist-
fræðirannsóknum á kóralrifjum.
Aron Alexander Þorvarðarson lauk
stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í vor. Hann hefur mik-
inn áhuga á raungreinum og veltir
því fyrir sér hvort hann eigi að hefja
háskólanám í líffræði eða jarðfræði.
Önnur fög gætu einnig komið til
greina.
Tók stúdentinn á
þremur árum
Aron ákvað að taka sér eitt ár í frí
frá námi í vetur. Það er skiljan-
legt. „Ég tók stúdentsnámið á nátt-
úrufræðibraut við Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði á þrem-
ur árum,“ segir hann. Blaðamaður
hváir við. Þetta er alla jafnan fjög-
urra ára nám. Var þetta ekki erfitt?
„Það var svo sem allt í lagi. Reynd-
ar dálítið mikil vinna og tók á, ekki
síst í kringum prófin. En mér gekk
frekar vel. Ég fékk meðal annars
viðurkenningu fyrir góðan árangur
í dönsku sem ég er mjög sáttur við,“
segir Aron.
Hann situr ekki aðgerðalaus. Nú
í vetur hefur hann kosið að vinna á
meðan hann undirbýr næstu skref í
framtíð sinni. „Ég var nú að hætta
að vinna á veitingastaðnum Pláss-
inu hér í Stykkishólmi. Hef starfað
þar í um hálft ár eftir að ég klár-
aði stúdentsprófið í vor. Núna er ég
að fara að vinna í samvinnuverkefni
Náttúrustofu Vesturlands og Rann-
sóknaseturs Háskóla Íslands á Snæ-
fellsnesi við að flokka dýr úr sýn-
um af botni Kolgrafafjarðar. Það
eru rannsóknir vegna síldardauð-
ans sem varð þar. Ég verð þar fram
að jólum og líklega eitthvað áfram
á nýju ári.“
Stefnir á
raunvísindanám
Aron segist hafa mikinn áhuga á
náttúrufræði og öðrum raungrein-
um. Líffræðin heillar. „Það smit-
ar aðeins að báðir foreldrar mínir
eru líffræðingar og starfa sem slík-
ir hér í Stykkishólmi. Þau eru Ró-
bert Arnar Stefánsson og Menja
von Schmalensee sem bæði starfa
við Nátturustofu Vesturlands. Ég
hef stundum verið með þeim í
vinnunni. Þegar ég var lítill fór ég
af og til með að merkja minka. Á
sumrin hef ég nokkrum sinnum
verið aðstoðarmaður í arnarmerk-
ingum og ritutalningum. Mér hef-
ur þótt þetta mjög skemmtilegt.“
Það er því sjálfsagt rökrétt fram-
hald á þessu öllu að Aron hyggst nú
velja sér háskólanám í raungrein-
um. „Ég er að velta fyrir mér að
fara í háskólanám í líffræði eða jarð-
fræði. Allavega í einhverja raunvís-
indagrein. Það ekki alveg ljóst enn
hvað verður fyrir valinu. Þess vegna
tók ég mér fríár frá námi núna til að
vinna aðeins og hugsa málin.“
Þrír mánuðir við
kórallarannsóknir
Hann hefur þó fleira á prjónunum
en að vinna. Þetta fríár frá námi
verður einnig notað til að ferðast
og afla nýrrar reynslu. „Nú í apríl
fer ég í þrjá mánuði til Seychelles-
eyja. Þær eru eyjaklasi í Indlands-
hafi, norður af Madagascar-eyju út
af suðausturströnd Afríku. Þar ætla
ég að vinna sem sjálfboðaliði við
rannsóknir á kóralrifum. Ég reikna
svo með að byrja í Háskóla Íslands
næsta haust.“
Kóralrifin á Seychelles-eyjum
eru mjög merkileg. Alls eru eyj-
arnar 115 talsins og býr fólk á 33 af
þeim. Sumar eyjar eru úr bergi en
aðrar hafa byggst upp úr kóral. Síð-
an eru kóralrif í sjónum. Kórallinn
þarna varð fyrir áföllum vegna um-
hverfisbreytinga en nú eru vísbend-
ingar um að hann sé að ná sér á strik
á nýjan leik. Geysiríkt sjávardýra-
líf er í og við kóralrifin. Það verð-
ur því sjálfsagt margt nýtt og fram-
andi að sjá fyrir hinn unga náttúru-
fræðinema frá Stykkishólmi. Rann-
sóknarniðurstöðurnar sem fást frá
því teymi sem Aron mun starfa hjá
eru einu upplýsingar um kóralstofn
þessara merku eyja. „Mér skilst að
auk þess að vinna að rannsóknum á
fiskum og hryggleysingjum við kór-
alrifin, verði ég mikið við vöktun á
sæskjaldbökum en einnig eru hval-
háfar og aðrir hákarlar, höfrungar
og fleira algengir á þessu svæði“.
Áhugamálin eru þó fleiri. Aron
stundaði gítarnám í níu ár og
stundaði auk þess frjálsar íþróttir
um tíma en hefur nú lagt þá iðkan
til hliðar. Hann vakti svo athygli í
haust þegar hann vann stuttmynda-
keppni sem haldin var í tengslum
við verkefnið um Burðarplastpoka-
lausan Stykkishólm. Þessu verk-
efni var hleypt af stokkunum fyrr á
þessu ári og hefur vakið mikla at-
hygli.
Fékk 1. verðlaun í
myndbandakeppni
Það var Umhverfishópur Stykkis-
hólms sem efndi til myndbandasam-
keppninnar. Myndböndin í henni
áttu að fjalla um skaðleg áhrif plasts
og/eða hvernig hægt er að draga úr
plastnotkun eða burðarplastpok-
anotkun í daglegu lífi. Viðbrögðin
urðu góð. Alls bárust níu stórgóð
myndbönd í keppnina. Verðlaun
voru afhent við formlega athöfn í
Stykkishólmi þann 21. október nú
í haust. Aron fékk 1. verðlaun fyrir
myndband sitt „Plastlaus.“
Aron útskýrir þátttöku sína.
„Mamma sagði mér frá þessari
stuttmyndasamkeppni og ég velti
þessu aðeins fyrir mér. Við flokk-
um allt rusl hér á heimilinu og ég
hef alist upp við að hugsa mikið um
umhverfið svo þetta var áhugavert.
Það spillti svo ekki fyrir að það voru
100.000 króna peningaverðlaun í
boði. Þau gætu komið sér vel í ferða-
sjóðinn minn sem ég er að safna í til
að fara til Seychelles-eyja. Ég fór
því í að búa til þessa stuttmynd,
fann upplýsingar á netinu og klippti
það sjálfur. Það kom mér eiginlega
á óvart að vinna. Yngri systur mín-
ar tvær, Ísól Lilja og Sara Rós, tóku
einnig þátt. Þær gerðu báðar mjög
flott myndbönd og Sara Rós fékk 2.
verðlaun. Ísól Lilja gerði mjög list-
rænt myndband sem fékk því miður
engin verðlaun. Þegar ég sá þeirra
myndbönd þá hugsaði ég; „Vá, hér á
ég engan séns.“ Ég varð því hissa að
fá 1. verðlaun. Mér fannst þó stutt-
mynd Ísólar Lilju svo flott og leið-
inlegt að hún skyldi ekki vinna nein
verðlaun, að ég ákvað að deila verð-
launafénu mínu með henni. Hún
átti það svo sannarlega skilið.“
Undirbýr sig af kappi
Öll myndböndin í keppninni eru á
netinu á youtube.com og má finna
með því nota leitarorðið „Burð-
arplastpokalaus.“ Það er óhætt að
hvetja lesendur Skessuhorns til að
skoða þau.
Í lokin ræðum við aðeins um það
hvernig það sé að vera ungur mað-
ur í Stykkishólmi. Aron segir að það
sé mjög fínt að búa í bænum. „Þó
er orðið pínulítið einmanalegt núna
því að flestir vinir mínir eru farnir
suður í nám eða vinnu. Ég fer líka
að hugsa mér til hreyfings í frekara
nám. En það er gott að njóta þess
að vera heima. Næstu vikur og mán-
uðir fara mikið í að undirbúa ferðina
til Seychelles-eyja. Ég þarf að mæta
í bólusetningar, safna pening og
kaupa alls konar sérhæfðan búnað,
m.a. til köfunar. Þetta er ansi dýrt,
maður þarf að borga allt sjálfur. En
það verður þess virði,“ slær Aron Al-
exander föstu í lokin.
mþh
Í ágústmánuði síðastliðnum urðu
verslunarstjóraskipti hjá Nettó í
Borgarnesi. Þá tók Ingibjörg Krist-
ín Gísladóttir við verslunarstjórn af
Gísla Tryggva Gíslasyni sem þá fór
til starfa hjá Nettó í Glerártorgi á
Akureyri. Ingibjörg Kristín hefur
sinnt verslunarstörfum lengi, byrj-
aði hjá Nettó í desember 2012 en
hafði þar áður unnið í Hyrnunni
á fjórtánda ár. „Mér líst ágætlega
á að taka við þessu starfi, það er
spennandi en jafnframt krefjandi.
Ég er að vona að fólk beini sín-
um viðskiptum hingað fyrir jólin
og versli í heimabyggð. Það hefur
verið mikil sala í bókunum sem við
byrjuðum með um miðjan mán-
uðinn og þessi törn sem er fram-
undan leggst ágætlega í mig.“
Í verslunarnámi
á Bifröst
Ingibjörg Kristín fæddist og ólst
upp í Grundarfirði til 18 ára ald-
urs. „Þá fluttu foreldrar mínir
burtu í Hróarstungu á Austurlandi.
Ég flutti hins vegar hingað í Borg-
arnes til kærastans míns Guðbjarts
Jóhannessonar sem er maðurinn
minn í dag,“ segir Ingibjörg þegar
hún er spurð um upprunann. „Ég
var þá búinn að vera í Fjölbrauta-
skólanum á Akranesi. Það var ágætt
þar en ég kann samt betur við mig
hérna í Borgarnesi. Ég var í heima-
vistinni í FVA en entist samt ekki
í framhaldsskólanáminu nema í
tvö ár. Núna er ég í verslunarstjór-
anámi á Bifröst og finnst það mjög
skemmtilegt,“ segir Ingibjörg. Hún
segir Nettó í Borgarnesi draga til
sín marga viðskiptavini enda vel
staðsett við þjóðveginn. „Yfir sum-
arið stoppar ferðamaðurinn hérna
mjög mikið. Nettó á líka hérna
marga trygga viðskiptavini, bænd-
urna hér á svæðinu og síðan kem-
ur fólk vestan frá Snæfellsnesi til
að versla og líka sunnan úr Hval-
firði.“
Tilboð og
félagsmannadagar
Nýi verslunarstjórinn í Nettó segir
að fólk veiti greinilega athygli hag-
stæðum tilboðum í matarinnkaup-
um sem verslunin bjóði. „Tilboð-
in standa yfirleitt frá fimmtudegi
og fram á sunnudag. Síðan koma
líka mjög margir þegar svokallað-
ir félagsmannadagar eru haldnir.
Við eigum mjög tryggan viðskipta-
mannahóp sem vanur er að versla
í kaupfélaginu,“ segir Ingibjörg
Kristín. Spurð hvort að búast megi
við breytingum í Nettóverslun-
inni í Borgarnesi með nýjum versl-
unarstjóra segir hún að þær verði
líklega ekki áberandi. „Það verða
engar róttækar breytingar. Mér
hefur ekki sýnst vera þörf á mikl-
um breytingum. Það sem gildir er
að hafa góða vöru og nægt fram-
boð og það munum við leggja okk-
ur fram um áfram. Það er það sem
skiptir mestu máli að veita góða
þjónustu svo fólk þurfi ekki að leita
annað,“ segir Ingibjörg Kristín
Gestsdóttir. þá
Eigum marga trygga viðskiptavini hérna á svæðinu
-segir nýr verslunarstjóri Nettó í Borgarnesi
Ingibjörg Kristín Gestsdóttir verslunarstjóri hjá Nettó í Borgarnesi.
Frá Stykkishólmi til Seychelleseyja
Sjávardýralífið við Seychelles-eyjar
í Indlandshafi er ævintýralegt. Aron
ætlar að starfa við rannsóknir og
vöktun á þessum náttúrugersemum
um þriggja mánaða skeið.
Aron Alexander Þorvarðarson í stofu heima í Stykkishólmi. Á nýju ári hyggur hann á merka ferð þvert yfir hnöttinn að kanna
framandi lífríki.