Skessuhorn


Skessuhorn - 26.11.2014, Qupperneq 56

Skessuhorn - 26.11.2014, Qupperneq 56
56 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2014 Unglingar í dag eru æðislegir og kynslóðirnar fara batnandi Í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit hefur átt sér stað spjaldtölvuvæð- ing síðustu misserin. Skólastjórn- endur hafa takið þann kostinn að vinna með þróuninni og nýta iPad sem kennslutæki og verkfæri í verk- efnavinnu. Verkefnisstjóri tækni- þróunar og náttúrfræðikennari við skólann er ungur Akurnesingur; Hjálmur Dór Hjálmsson. Hann á ekki mörg ár að baki við kennslu, en í Stokkhólmi í Svíþjóð þar sem hann kenndi í einn vetur áður en hann byrjaði í Heiðarskóla, kenndi hann einmitt við skóla sem var að spjaldtölvuvæðast. „Þetta er fram- tíðin og það er um að gera að krakkarnir læri að nota tæknina sem verkfæri í náminu og líti frek- ar á hana þannig en sem leikfang. Þannig komum við líka frekar í veg fyrir ofnotkun á tækinu og óæski- lega hluti eins og netfíkn. Það er mitt starf sem verkefnisstjóra að móta stefnu og þróa leiðir í að nýta þessa tækni,“ segir Hjálmur Dór. Aðspurður segist hann kunna mjög vel við sig í Heiðarskóla en þang- að kom hann til starfa fyrir rúmu ári „Ég kann æðislega vel við mig hérna, þetta er frábær skóli. Mjög gott samstarfsfólk og hérna í sveit- inni þekkjast allir. Þetta er pers- ónulegt og náið samfélag sem mér þykir mikill kostur.“ Ekki komnir með kennitölu Þegar blaðamaður Skessuhorns fór í heimsókn í Heiðarskóla í síðustu viku og spjallaði við Hjálm Dór kom í ljós að hann hefur ekki farið ótroðnar slóðir í lífinu. Á námsár- unum í Svíþjóð var hann óragur að ráðast í verkefni þótt bakgrunnur- inn væri ekki mikill og tungumála- kunnáttan af skornum skammti. Í spjallinu við Hjálm byrjuðum við þó að ræða um upprunann en hann er borinn og barnfæddur Akurnes- ingur. Hjálmur Dór byrjaði ungur að leika með Skagaliðinu í knatt- spyrnu en þurfti líka ungur að leggja skóna á hilluna vegna þrá- látra meiðsla. „Ég hef ekki fengið 100% staðfestingu á því hjá Jóni Gull, sem allt veit um fótboltann á Akranesi, hvort ég er sá yngsti sem leikið hefur með meistaraflokki, en ég hef sterkan grun um það. Það var í Bikarkeppninni árið 1997 og sérkennilegur leikur að mörgu leyti þar sem í 16-liða úrslitum lentu saman meistaraflokkur ÍA og ung- mennalið ÍA, 23 ára og yngri, sem gengið hafði mjög vel í keppn- inni. Ég var á yngra ári í 3. flokki þetta ár og með meistaraflokki ÍA í þessum leik spiluðu líka tveir aðr- ir guttar úr 3. flokknum. Sæmund- ur Víglundsson fékk það hlutverk að dæma þennan leik og gott ef það var ekki hann sem kom inn í bún- ingsklefann eftir leik og spurði um kennitölu á okkur ungu strákana. Það átti víst eitthvað eftir að fylla á leiksskýrsluna. Þá var Óli Þórðar fljótur til svars eins og oft og sagði. „Blessaður vertu þeir eru svo ungir að þeir eru ekki ennþá komnir með kennitölu.“ Svekkjandi að hætta í boltanum Hjálmur Dór segir að eftir þetta hafi hann átt eftir að spila fyrir Óla Þórðar í 4-5 tímabil með meistara- flokki og aldrei hafi Óla leiðst að gera grín að mönnum eins og hann gerði í þessum bikarleik forðum. Hjálmur Dór segist hafa orðið fasta- maður í meistaraflokki á tímabilinu 2001 þegar ÍA varð Íslandsmeist- ari. „Ég kom inn í liðið sem hægri bakvörður og var að spila þá stöðu öll árin sem ég lék með ÍA. Skaga- menn hafa ekki náð að verða Ís- landsmeistarar frá þessu ári 2001 en við urðum svo Bikarmeistarar 2003. Á þessum árum fram á árið 2004 sem ég var að spila með meistara- flokki ÍA unnum við nánast alla titla, urðum líka meistarar meistaranna og deildarbikarmeistarar. Þetta var mjög skemmtilegur tími. Því mið- ur meiddist ég illa á ökkla sem varð til þess að ég varð að leggja skóna -segir Hjálmur Dór Hjálmsson verkefnisstjóri tækniþróunar í Heiðarskóla á hilluna aðeins 22 ára gamall. Það var hrikalega svekkjandi að þurfa að hætta svona ungur í fótboltanum.“ Valdi nýtt svið í meistaranáminu Við tók svo tími þar sem Hjálmur Dór kveðst hafa sinnt ýmsu en mest þó að þjálfa yngri flokka ÍA í fót- bolta. Það var svo á árinu 2006 sem hann byrjaði í fjarnámi í kennara- námi ásamt vinnu og að koma upp fjölskyldu. „Ég útskrifaðist úr kenn- aranáminu í ársbyrjun 2009. Þá fljót- lega ákvað ég að fara í meistaranám til Stokkhólms í Svíþjóð. Við flutt- um út í ágúst þetta sumar og vor- um í Stokkhólmi í fjögur ár. Kon- an mín, Vigdís Elfa Jónsdóttir, var líka í námi úti á sama tíma, kláraði fjarnám í kennslufræðum við Há- skóla Íslands og nam uppeldis- og mannréttindafræði við Háskólann í Stokkhólmi.“ Þegar Hjálmur Dór er spurður í hverju hans meistara- nám hafi falist þá var það ekki al- veg á sama sviði og kennslufræð- in, heldur allt annað. „Ég tók fyr- ir vatnafræði og vatnajarðfræði. Ég hafði áhuga fyrir jarðfræði og var þá aðallega að grúska í henni í bókum frekar en að klifra upp um fjöll og taka jarðsýni. Ég hafði ekkert heldur verið að skoða hvernig vatnið hag- ar sér í jörðinni. En þetta var mjög skemmtilegt nám, alveg nýir hlutir fyrir mig og ég lærði ótrúlega mikið þessi tvö ár sem ég var í náminu. Ég fór líka að þjálfa yngri flokki hjá fót- boltafélagi í Stokkhólmi sem heitir Sollentuna Fotboll samhliða náminu og stýrði liði stúlkna sem þá voru 14 ára gamlar og eitt af betri liðum Sví- þjóðar í þeim aldursflokki. Ég byrj- aði að þjálfa hjá félaginu í maí 2010 og til að ég yrði fljótari að bjarga mér í málinu bannaði ég stelpunum að tala við mig ensku. Þetta gekk vel og eftir árið var ég orðinn yfirþjálfari hjá félaginu. Þetta var stór áskorun fyrir mig. Ég hoppaði svo út í aðra laug stuttu seinna og tókst á við nýja áskorun þegar ég tók að mér kenn- arastarf í grunnskóla í Stokkhólmi sem ég sinnti síðasta árið okkar úti. Sá skóli var einmitt að taka iPad inn við kennsluna og þetta ár var mjög reynslu- og lærdómsríkt fyrir mig.“ Unglingarnir í dag miklu klárari Hjálmur Dór segir að það hafi ver- ið gott fyrir sig að hafa þennan bak- grunn úr skólanum í Stokkhólmi þegar hann kom til starfa í Heiðar- skóla í ágústmánuði 2013. Kom þar inn í spjaldtölvuvæðinguna sem þá var að byrja í Heiðarskóla. Spurð- ur um spjaldtölvuvæðingu í skólum segir Hjálmur Dór að Ipad sé eng- in töfralausn í rauninni. Það verði að nota hann rétt til að hann komi að gagni. „Hann er í raun verkfæra- kista og í náminu eins og annarri vinnu gildir að nota réttu verkfær- in. Þess vegna verður barn eða ung- lingur sem notar iPad við vinnslu verkefnis að finna rétta verkfærið eða verkfærin áður en hann byrj- ar að leysa verkefnið eða þegar hann er tilbúinn að fara að vinna í því. Til að leiðbeina nemandan- um verður kennarinn að meta hvar nemandinn er staddur í sínu námi og hvert hann stefni,“ segir Hjálm- ur Dór. Spurður um unglinginn í dag og agann segir hann: „Ung- lingar í dag eru æðislegir og ég held að kynslóðirnar fari alltaf batnandi. Okkur eldri er tamt að hneykslast á því hvernig unglingar í dag bera sig að vegna þessa að þeir gera hlutina ekki eins og við gerðum. Ég held að staðreyndin sé sú að unglingar í dag eru miklu klárari en við vor- um, enda hafa þeir miklu betri að- gang að upplýsingum og fræðslu en við höfðum. Það er frábært að fá að taka þátt í því að móta unglingana og aðstoða æsku landsins við að undirbúa framtíðina.“ þá Hjálmur Dór í kennslustund í Heiðarskóla. Ljósmynd Magnús Þór Hafsteinsson. Hjálmi Dór og Vigdísi Elfu fæddist dóttir 14. nóvember síðastliðinn, sem fengið hefur nafnið Emma. Fyrir áttu þau tvö börn sem einnig eru á myndinni sem tekin var á fæðingadeildinni á Akranesi. Drengurinn heitir Ýmir og stúlkan Líf. Tvisvar á ári halda tónlistarnem- endur Laugargerðisskóla á Snæ- fellsnesi tónlistardag fyrir sam- nemendur sína, foreldra og aðra ættingja. Í þessum litla skóla læra flestir á einhver hljóðfæri eða æfa söng og er það Steinunn Pálsdótt- ir sem heldur utan um kennsluna. Gaman er að sjá hvað krakkarnir eru óhræddir við að koma fram og taka allir virka þátt þ.á.m. leiskóla- krakkarnir sem komu upp á svið og sungu tvö lög fyrir gestina. Á mynd- inni má sá nemendur skólans ásamt nokkrum krökkum úr leikskólan- um syngja lagið Ísland er land þitt. Eftir skemmtunina fóru svo allir og fengu sér kaffi og skúffuköku sem krakkarnir höfðu sjálfir bakað dag- inn áður. iss Tónlistardagur í Laugargerðisskóla
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.