Skessuhorn - 26.11.2014, Page 94
94 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2014
Ertu farin/n að
kaupa jólagjafir?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi 21. nóvember)
Jóhanna Hildiberg
Harðardóttir:
Nei það liggur ekkert á því, það
tekur einn dag.
Weronika Anna Latka:
Nei ekki ennþá.
Heiðar Logi Sigtryggsson (með
Ísabellu Hugrúnu):
Nei ekki eina einustu en það er á
dagskránni.
Einar Víglundsson:
Nei ég er ekki byrjaður en far-
inn að huga að því.
Ingibjörg Rafnsdóttir:
Já, ég er alltaf tímanlega í því,
aldrei á síðustu stundu með
neitt.
Skagamenn töpuðu sín-
um fyrsta leik á heima-
velli í körfuboltanum
á tímabilinu síðastliðið
fimmtudagskvöld. FSu úr Ár-
borg mætti þá til leiks í 1. deildinni
og sigraði ÍA 88:77. Leikurinn var
alljafn lengst af og Skagamenn með
eins stigs forskot í hálfleik 42:41.
Gestirnir reyndust öllu sterkari í
seinni hluta leiksins. FSu var með
fimm stiga forskot fyrir lokafjórð-
unginn og gestirnir héldu áfram
á sömu nótum á lokakaflanum án
þess að heimamönnum tækist að
laga stöðuna. Hjá ÍA var Jamarco
Warren stigahæstur með 29 stig,
Fannar Freyr Helgason kom næst-
ur með 25 stig og 10 fráköst, Áskell
Jónsson og Ómar Örn Helgason
skoruðu 7 stig hvor, Erlendur Þór
Ottesen 6 og Jón Rúnar Baldvins-
son 3. Við tapið gæti stefnt í að ÍA
færist neðar á töflunni. Skagamenn
eru sem stendur með 50% árang-
ur, sex stig eftir sex leiki í 5. sæti
deildarinnar. Í 7. umferðinni mætir
ÍA einu af efstu liðum deildarinnar,
Hetti á Egilsstöðum. Fer leikurinn
fram eystra nk. föstudagskvöld. þá
Körfuknattleiksdeild Skallagríms
og Laugaland hf. garðyrkjustöð
að Laugalandi í Borgarfirði hafa
gert með sér samstarfssamning.
Þeir Þórhallur Bjarnason stjórn-
arformaður og eigandi Lauga-
lands og Kristinn Ó. Sigmundsson
formaður kkd. Skallagríms skrif-
uðu undir samninginn á heima-
leik Skallagríms og Stjörnunnar
nýverið. Samningurinn gildir til
næstu tveggja ára. Laugland hf.
er fjölskyldufyrirtæki sem hefur
sérhæft sig í framleiðslu á gúrk-
um með vistvænum hætti í gróð-
urhúsum heima að Laugalandi.
Það hefur verið í eigu sömu fjöl-
skyldunnar allar götur frá 1942
að stöðin var stofnuð. Í dag er
það í eigu hjónanna Þórhalls og
Erlu Gunnlaugsdóttur eiginkonu
hans. mm
Fundur formanna
og framkvæmdastjóra
Pepsídeildarliðanna í
knattspyrnu var hald-
in í höfuðstöðvum KSÍ sl.
föstudag. Á fundinum var dregið
um töfluröð liðanna í efstu deild-
um Íslandsmótsins næsta sumar
og þannig t.d. raðað leikjum í um-
ferðunum 22 í karladeildinni. Eft-
ir er að ákvarða dagsetningar en
áætlað að keppni byrji eins og síð-
ustu ár fyrstu dagana í maímánuði í
Pepsídeild karla. Liði Skagamanna
sem eru nýliðar í deildinni að þessi
sinni býður krefjandi en skemmti-
legt verkefni í fyrstu umferð. Þá
koma Íslandsmeistarar Stjörnunn-
ar úr Garðabæ í heimsókn á Akra-
nesvöll. Í næstu umferð fara svo
Skagamenn í Breiðholtið og leika
gegn hinum nýliðunum í deildinni,
Leikni á „Gettó gránd“. Í síðustu
umferðinni sem væntanlega verður
leikin í byrjun október fara Skaga-
menn svo til Eyja. þá
Leikmenn Skallagríms
sýndu mikla baráttu
þegar þeir mættu Þór
í Þorlákshöfn í Dom-
inosdeildinni í körfubolta
sl. föstudagskvöld. Leikurinn ein-
kenndist af mikilli baráttu og sveifl-
um í seinni hluta leiksins. Lokatöl-
ur urðu 100:90 fyrir Þór. Heima-
menn í Þór byrjuðu betur og voru
komnir með 12 stiga forskot eft-
ir fyrsta leikhluta, þegar staðan
var 33:21. Þórsarar héldu í hofinu
í öðrum leikhluta og staðan í hálf-
leik var 54:41. Fátt virtist benda til
að Skallagrímsmenn myndu kom-
ast inn í leikinn á upphafsmínút-
um þriðja leikhluta. Þórsarar héldu
áfram að bæta við stigum og voru
komnir 18 stigum yfir 65:47 eftir
fjögurra mínútna leik. Góður varn-
arleikur Borgnesinga á næstu mín-
útum hélt þó Þórsurum í skefjum.
Á sama tíma fóru stigin að safn-
ast og var munurinn kominn nið-
ur í ellefu stig 70:59 þegar þrjár
mínútur voru eftir af leikhlutan-
um. Þórsarar juku forskotið þá aft-
ur og leiddu með fimmtán stigum
fyrir lokaleikhlutann 78:63. Skalla-
grímsmenn byrjuðu síðan loka-
fjórðunginn af krafti og með Sig-
trygg Arnar og Tracy í broddi fylk-
ingar tókst þeim að minnka mun-
inn í þrjú stig, 80:77. Allt ætlaði að
um koll að keyra Skallagrímsmeg-
in í stúkunni á þessum tímapunkti.
Svipaður munu hélst næstu mín-
úturnar en svo kom slæmur kafli
hjá Skallagrímsmönnum á stuttum
tíma sem leiddi til þess að Þórs-
arar komust í 90:81. Þrátt fyrir að
Skallagrímsmenn reyndu að skipu-
leggja sinn leik tókst þeim ekki að
laga stöðuna og leiknum lauk með
tíu stiga sigri Þórs.
Skallagrímsmenn léku enn án
Páls Axels Vilbergssonar og Eg-
ils Egilssonar. Tracy Smith var at-
kvæðamestur með 34 stig og 13 frá-
köst, Sigtryggur Arnar Björnsson
kom næstur með 25 stig, þá Daði
Berg Grétarsson 10, Einar Ólafs-
son 9, Atli Aðalsteinsson 5, Dav-
íð Ásgeirsson 4 og Kristófer Gísla-
son 3.
Næsti leikur Skallagríms í Dom-
inosdeildinni verður heima í Fjósi
í Borgarnesi gegn toppliði deildar-
innar, Íslandsmeisturum KR. Leik-
urinn fer fram fimmtudaginn 27.
nóvember. þá
Snæfellingar urðu að
sætta sig við 15 stiga
tap þegar þeir sóttu
Njarðvíkinga heim í
Ljónagryfjuna síðast-
liðið fimmtudagskvöld í 7. um-
ferð Dominosdeildarinnar. Loka-
tölur urðu 98:83. Leikurinn var
mjög sveiflukenndur. Snæfell byrj-
aði mun betur og var með tíu stiga
forskot eftir fyrsta leikhluta 26:16.
Heimamenn voru mun betri í öðr-
um leikhluta og náðu auk þess að
jafna leikinn fjögurra stiga for-
skoti sem þeir höfðu í hálfleikn-
um, 49:45. Snemma í seinni hálf-
leiknum fengu tveir af atkvæða-
mestu mönnum Snæfells, Sigurð-
ur Þorvaldsson og Austin Bracey,
sína þriðju villu og var það síst til
að bæta stöðu Snæfells. Njarðvík-
ingar voru áfram í stuði og unnu
þriðja leikhlutann 28:14 þannig að
staða þeirra var orðin vænleg fyr-
ir lokafjórðunginn og raunar útlit
fyrir að þeir væru búnir að landa
sigrinum. Snæfellingar virtust þó
ekki af baki dottnir því þeir komu
vel til baka í síðasta leikhlutanum.
Reyndar full seint því þegar um sex
mínútur voru eftir af leiknum náðu
þeir ótrúlegum leikkafla og tókst
að minnka muninn niður í sex stig
þegar þrjár mínútur voru eftir. Þá
voru þeir óheppnir gagnvart dóm-
gæslunni þegar Sigurður Þorvalds-
son fékk tæknivíti, fyrir mótmæli að
fá ekki dæmt þegar að því er virtist
var brotið á honum í þriggja stiga
skoti. Eftir þetta virtist sem allt
væri búið af tanknum hjá gestunum
og Njarðvíkingar innbyrtu örugg-
an sigur.
Hjá Snæfelli var Christopher
Woods með 21 stig og 9 fráköst,
Sigurður Á. Þorvaldsson líka með
21 stig og 8 fráköst, Austin Magnus
Bracey 16 stig, Sveinn Arnar Dav-
íðsson 10, Stefán Karel Torfason 10
stig og 10 fráköst og Pálmi Freyr
Sigurgeirsson 5 stig. Hjá Njarðvík:
var Dustin Salisbery atkvæðamest-
ur með 24 stig.
Í 8. umferðinni fær Snæfell ÍR í
heimsókn og fer leikurinn fram í
Hólminum annað kvöld, fimmtu-
dag.
þá
Snæfellskonur sýndu mikinn kar-
akter síðastliðið miðvikudagskvöld
þegar þær sigruðu Hauka í fram-
lengdum leik 80:77 þegar liðin
mættust í Dominosdeildinni á Ás-
völlum í Hafnarfirði. Þar með féllu
Haukar niður í þriðja sæti deildar-
innar en Snæfell og Keflavík eru
á toppnum. Keppnin er jöfn og
spennandi í deildinni. Þegar átta
umferðum er lokið eru Snæfell og
Keflavík með 14 stig, Haukar með
12 og Valur með 10. Leikurinn á
Ásvöllum var jafn og spennandi all-
an tímann og örfá stig skildu liðin
af ef staðan var ekki jöfn. Snæfell
var tveimur stigum yfir eftir fyrsta
leikhluta og þremur stigum yfir í
hálfleik í stöðunni 41:38. Varnar-
leikurinn var aðall liðanna í þriðja
leikhluta þar sem lítið var skorað,
en Haukar heldur sterkari. Fyr-
ir lokafjórðunginn var staðan jöfn
49:49 og ljóst að barist yrði hart allt
til loka. Þegar rúm hálf mínúta var
eftir af venjulegum leiktíma voru
Haukar fimm stigum yfir. Hild-
ur Sigurðardóttir lagði þá þrist og
í kjölfarið náði Gunnhildur Gunn-
arsdóttir boltanum af sínum gömlu
liðsfélögum í Haukum og jafnaði
metin úr tveimur skotum af vítalín-
unni. Þar með var staðan jöfn 69:69
og komið í framlengingu.
Framlengingin var jöfn og
spennandi og réðust úrslitin á loka-
sekúndum leiksins. Þegar ein og
hálf mínúta var eftir af framleng-
ingunni skoraði María Björns-
dóttir úr tveimur vítaskotum og
kom Snæfelli í 76:78 forystu. Bæði
lið áttu færi til að skora í kjölfar-
ið en boltinn vildi ekki niður. Þeg-
ar þrjár sekúndur voru eftir voru
Haukar í sókn og var brotið á leik-
manni þeirra og fengu þær tvö víta-
skot. Haukar settu fyrra skotið nið-
ur en klikkuðu á því síðara og Snæ-
fell náði frákastinu og í kjölfarið var
brotið á Kristen McCarthy. Hún
fór á vítalínuna og setti bæði skot-
in niður og kom Snæfelli í þriggja
stiga forystu 77:80 og ein sekúnda
eftir. Lele Hardy átti svo síðasta
skot kvöldsins sem geigaði og Snæ-
fellskonur fögnuðu innilega frábær-
um sigri í hörkuspennandi leik.
Stigahæstar í liði Snæfells voru
þær Kristen McCarthy með 29 stig
og 16 fráköst og Hildur Sigurðar-
dóttir skoraði 18 stig og tók 9 frá-
köst. Gunnhildur Gunnarsdótt-
ir skoraði 10 stig og tók 13 frá-
köst, Berglind Gunnarsdóttir 9,
María Björnsdóttir 8 stig og 10 frá-
köst, Helga Hjördís Björgvinsdótt-
ir 3, Rebekka Rán Karlsdóttir 2 og
Hugrún Eva Valdimarsdóttir 1 stig
og 5 fráköst.
Í næstu umferð fá Snæfellskon-
ur KR-inga í heimsókn og fer leik-
urinn fram í Stykkishólmi í kvöld,
miðvikudag.
þá/þe
Snæfellingar lágu í
Ljónagryfjunni í Njarðvík
Skallagrímsmenn töpuðu í
baráttuleik í Þorlákshöfn
Laugaland styður við körfu
boltadeild Skallagríms
Skagamenn fá Íslands
meistarana í fyrstu umferð
Berglind Gunnarsdóttir sækir hér að körfu Hauka. Ljósm. Þorsteinn Eyþórsson.
Snæfellssigur í fram
lengingu á Ásvöllum
Fyrsta tap Skagamanna
á heimavelli