Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2002, Page 22

Læknablaðið - 15.04.2002, Page 22
FRÆÐIGREINAR / AUKA- OG MILLIVERKANIR NÁTTÚRULYFJA og fæðubótarefni hins vegar. Sérstök reglugerð gildir hér á landi um markaðsleyfi náttúrulyfja (1), en skilin á milli náttúruvara og fæðubótarefna eru oft óljós. Náttúrulyf þurfa að standast jafn strangar kröfur um hráefnis-, framleiðslu- og gæðaeftirlit og lyfseðils- skyld lyf. Jafnframt liggur fyrir samantekt á eiginleik- um þeirra (Special Product Characteristics, SPC) með sama hætti og þegar markaðssett lyf eiga í hlut (1). Hvað varðar hins vegar náttúruvörur og fæðu- bótarefni þurfa framleiðendur ekki að staðfesta ör- yggi og áhrif áður en þau eru markaðssett. Almenningur telur oft að lækningajurtir valdi ekki aukaverkunum en slík viðhorf geta haft alvar- legar afleiðingar (2). Þótt löng hefð fyrir notkun nátt- úruefna geti gefið talsverða reynslu um ákjósanleg og óákjósanleg áhrif þeirra, einkum þegar til skamms tíma er litið, getur reynst erfiðara að greina viðbrögð sem koma sjaldan fyrir, þróast stigvaxandi eða koma eftir langt dulið tímabil (3). Talið er að fleiri vísinda- legar rannsóknir skorti til að meta áhrif og öryggi við notkun náttúruefna til lækninga (4) og niðurstöður þeirra fáu rannsókna sem birtar hafi verið gefi ekki vísbendingu um raunverulega tíðni aukaverkana (5). Margir hafa ályktað að nauðsynlegt sé fyrir heilbrigð- isstarfsmenn að þekkja aukaverkanir af völdum nátt- úruefna (4, 6-10) en jafnframt bent á að erfitt geti reynst að nálgast áreiðanlegar og óháðar upplýsingar (10). Milliverkanir við lyf sem tengdar eru náttúruefn- um eru að stórum hluta taldar óþekktar (11). Nýlegar kannanir sýna að um þriðjungur Bandaríkjamanna noti náttúruefni til sjálfslækninga (4,12) og 18% noti þau samhliða lyfseðilsskyldum lyfjum en aðeins 40% þeirra greini læknum sínum frá notkuninni (8). Fáar tilkynningar um milliverkun milli óhefðbundinna efna/vörutegunda og hefðbundinna vestrænna lyfja staðfesta því hvorki öryggi þeirra í notkun né að tíðni slíkra milliverkana sé lág (13). Auk þess að valda beinum vandkvæðum getur náttúruefni seinkað eða breytt áhrifum hefðbundinnar meðferðar (3). Þetta er sérstaklega alvarlegt þegar lyf með litla læknis- fræðilega breidd eiga í hlut (12). Efnivi&ur og aðferðir Spurningalisti Allir sem höfðu lækningaleyfi urn síðustu áramót fengu spurningalista með pósti í janúar 2001 eftir að tilskilin leyfi fengust frá Tölvunefnd. Öllum læknum var sendur listinn, óháð starfsgrein og aldri. Spum- ingalistinn skiptist í tvo hluta: Annars vegar var spurt hvort viðkomandi læknir hafi í sínu starfi orðið var við auka- eða milliverkanir sem rekja mætti til neyslu náttúrulyfja, náttúruvara eða fæðubótarefna hér á landi. Ef aukaverkun hafði greinst, var beðið um nánari upplýsingar um hvaða efni hefði líklega valdið henni, einkenni og alvarleika aukaverkunarinnar. Ef milliverkun hafði greinst, var einnig óskað upplýs- inga um viðkomandi lyfseðilsskylt lyf. Hins vegar fjallaði stór hluti spurningalistans um viðhorf lækna til náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna. Spurn- ingalistinn fylgir með sem viðauki við þessa grein. ítrekunarbréf voru send með tölvupósti, almennum pósti eða myndsendi til þeirra sem svöruðu ekki spurningalistanum. Allir sem ekki höfðu svarað við lok rannsóknarinnar höfðu þannig fengið 2-3 ítrek- anir, þar af að minnsta kosti eina í almennum pósti. Nöfn þátttakenda koma hvergi fram við úrvinnslu könnunarinnar. Upplýsingar úr spurningalistunum voru skráðar í tölfræðiforritið Statistical Package for the Social Sciences (SPSS) sem notað var við úrvinnslu á niður- stöðum. Samanburður milli starfsgreina og aldurs- hópa var gerður með kí-kvaðratsprófum og marktekt var miðuð við P < 0,05. Ástœður innlagna á Landspítala-háskólasjúkrahús Markmið leitarinnar var að kanna fjölda innlagna á Landspítala-háskólasjúkrahús (LSH) sem rekja mætti til neyslu náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubót- arefna. Leitað var í tölvukerfum LSH eftir Alþjóð- legri tölfræðiflokkun sjúkdóma og skyldra heilbrigð- isvandamála, það er ICD-10 og ICD-9 (14). Leitin náði aftur til ársins 1984 á LSH við Hringbraut og 1983 á LSH í Fossvogi. Ekki eru til sérstök skráning- arnúmer fyrir sjúkdómsgreiningar þar sem þátt eiga náttúrulyf, náttúruvörur eða fæðubótarefni og því var leitað eftir ákveðnum skráningarnúmerum fyrir eitranir. Áður en rannsókn hófst var sótt um leyfi hjá Siðanefnd LSH og Persónuvernd. Einnig var sótt um aðgang hjá tölvudeild LSH að Lotus Notes tölvukerf- inu og sjúkraskýrslukerfi þess í Fossvogi. Eftir að leit í tölvukerfunum lauk kom í ljós að mikill fjöldi innlagna var skráður undir þeim skrán- ingarnúmerum sem leitað var eftir og aðgangur að sjúkraskýrslum fékkst ekki fyrr en við lok rannsókn- artímabilsins. Upplýsingaöflun var því takmörkuð við ákveðna skráningarflokka sem þóttu líklegastir til að hafa að geyma innlagnir af völdum náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna. Þetta voru allir undir- flokkar T62 og T78 auk flokkanna T65.8 og T65.9. Sjúkraskýrslur voru eingöngu skoðaðar fyrir árið 2000. Astœða komu á bráðamóttökur LSH Fylgst var með bráðamóttökum LSH í Fossvogi og við Hringbraut daglega í einn mánuð, frá 15. febrúar til 15. mars 2001. Leyfi var veitt frá Siðanefnd LSH og Persónuvernd. Markmiðið var að skoða ástæður komu á bráðamóttöku og athuga hvort um væri að ræða auka- eða milliverkanir af völdum náttúrulyfja, náttúruvara eða fæðubótarefna. Framkvæmd rann- sóknarinnar tók mið af bráðamóttöku á hvorum stað fyrir sig sem og óskum starfsfólks. Annan hvern dag 290 Læknablaðið 2002/88
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.