Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2002, Síða 23

Læknablaðið - 15.04.2002, Síða 23
FRÆÐIGREINAR / AUKA- OG MILLIVERKANIR NÁTTÚRULYFJA var farið á LSH í Fossvogi og hina dagana á LSH við Hringbraut. í Fossvogi var morgunfundur lyflækna setinn með þeim læknum sem höfðu verið á vakt. Læknar á lyflækningadeild fengu dreifiblað með upp- lýsingum um rannsóknina. Við Hringbraut var rætt við lækna eða hjúkrunarfræðinga sem sátu morgun- fund og/eða höfðu verið á vakt. Par var dreifibréf hengt upp á áberandi stað fyrir starfsfólk bráðamót- tökunnar til kynningar á rannsókninni. Fyrirspurnir til Eitrunarmiðstöðvar Farið var yfir fyrirspurnir vegna eitrana hjá Eitrunar- miðstöð á árunum 1997-2000 og þær skoðaðar sem vörðuðu náttúrulyf, náttúruvörur og fæðubótarefni. Tilkynningar til Landlœknis og Lyfjastofnunar Lyíjastofnun og Landlæknisembættið annast skrán- ingu aukaverkana og milliverkana hérlendis. Athug- að var hvort einhverjar tilkynningar hefðu borist til þessara stofnana vegna náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna. Niðurstööur Spurningalisti - tilvik auka- og milliverkana Spurningalistanum svöruðu 410 af 1083 (38%), þar af 327 karlar og 75 konur en átta gáfu ekki upp kyn. Alls svöruðu 82 heimilislæknar, 79 lyflæknar, 58 skurð- læknar og 30 geðlæknar en 159 kváðust starfa við aðrar sérgreinar. Um 19% svarenda voru 40 ára eða yngri, 58% 41-55 ára, 17% 56-70 ára, 5% 71 árs eða eldri en 1 % gaf ekki upp aldur. Þeir læknar sem sögð- ust hafa orðið varir við aukaverkun sem rekja mátti til neyslu náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna voru 91 en þeir sem merktu við að hafa hugsanlega orðið varir við slíkt voru 43. Læknarnir greindu alls frá 270 aukaverkunum vegna um 60 mismunandi efna. í 253 tilvikum var bæði greint frá efnum og ein- kennum aukaverkana. Á mynd 1 má sjá hvaða náttúruefni eru oftast talin hafa valdið aukaverkun (tvisvar eða oftar) hér á landi ásamt fjölda tilvika. Vöruflokkurinn frá Herbalife® er oftast talinn hafa valdið aukaverkun en þar á eftir koma ginseng, blómafrjókorn, Ripped Fuel®, og sól- hattur. Skipting milli starfsgreina var þannig að 56% heimilislækna sem svöruðu höfðu orðið varir/hugs- anlega orðið varir við aukaverkanir, 49% lyflækna, 42% geðlækna, 20% skurðlækna en 19% annarra starfsgreina. Um 36% þeirra sem voru 40 ára eða yngri sögðust hafa orðið/hugsanlega hafa orðið varir við aukaverkun, 37% í flokki 41-55 ára, 30% 56-70 ára og 18% 71 árs og eldri. Alvarleiki auka- og milli- verkana var metinn samkvæmt kvarða sem svarend- ur gátu merkt við og sjá má í töflu I. í töflu II eru tekin dæmi um nokkur náttúruefni og alvarlegustu aukaverkanirnar sem þau eru talin hafa valdið. Al- gengast var að aukaverkanirnar hefðu nokkur (B skv. Tafla 1. Kvaröi fyrir tilgreiningu atvarieika auka- og milliverkana í spurningalista sem sendur var til íslenskra lækna. Kvaröi Aukaverkunin A Hafði lítil áhrif á sjúkling. B Hafði nokkur áhrif á sjúkling. C Hafði veruleg áhrif á sjúkling. D Leiddi til innlagnar á sjúkrahús. E Stofnaöi lífi sjúklings í hættu. Mynd 1. Náttúruefni (nátt- úrulyf náttúruvörur, fœðu- bótarefni) sem oftast eru talin hafa valdið aukaverk- un (tvisvar eða oftar) hér á landi samkvæmt niður- stöðum könnunar sem gerð var meðal íslenskra lœkna. kvarða) eða veruleg (C) áhrif á sjúklinga (68% til- vika). Innlögn á sjúkrahús (D) var talin afleiðing 38 tilvika (15%) og aukaverkun var talin hafa stofnað Iífi sjúklings í hættu (E) í 14 tilvikum (5%). Alvar- legustu aukaverkanimar greindu Iyflæknar í 50% tilvika, heimilislæknar í 21% tilvika en aðrir sjaldnar. Þeir læknar sem sögðust hafa í starfi sínu orðið varir við milliverkun sem rekja mátti til neyslu nátt- úrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna voru þrír en þeir sem hugsanlega höfðu orðið varir við slíkt voru 22. Margir greindu ekki nánar frá þeim og er fjöldi milliverkana þar sem upplýsingar um efni, lyf og milliverkun komu fram alls 13. Herbalife® var oftast talið hafa valdið milliverkun við lyf (6 tilvik) en þar á eftir koma Jóhannesarjurt, birkiaska, kreatín, ginkgó og Q-10. Það lyf sem oftast er talið hafa komið við sögu í milliverkun er warfarín (7 tilvik). Milliverkan- irnar höfðu ýmist lítil (A), nokkur (B) eða veruleg (C) áhrif á sjúklinga og urðu lyflæknar oftast varir við þær. Spurningalisti - viðhorfskönnun Um 47% lækna sem svöruðu sögðu að sjúklingar nefni sjaldan að fyrra bragði hvort þeir neyti náttúru- lyfja, náttúruvara eða fæðubótarefna. Um 30% svar- enda sögðu að sjúklingar nefni það stundum, 13% oft en 7% aldrei. Spurt var hversu oft eða sjaldan læknar Læknablaðið 2002/88 291
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.