Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2002, Page 31

Læknablaðið - 15.04.2002, Page 31
FRÆÐIGREINAR / GATTATIF Notkun blóðþynningarlyfj a hjá sjúklingum með gáttatif á Islandi IngibjörgJ. Guðmundsdóttir1 Kristján Orri Helgason1-2 Emil L. Sigurðsson2 Davíð O. Arnar13 'Lyflækningadeild Landspítala Hringbraut, 2Heilsugæslustöðin Sólvangi, Hafnarfirði, ’bráðamóttaka Landspítala Hringbraut. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Davíð O. Arnar, lyflækningadeild, Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík. Sími: 560 1000, fax: 560 1287, davidar@landspitali.is Lykilorð: gáttatif, blóðþynning, segarek. Ágrip Inngangur: Sjúklingar með gáttatif eru í aukinni hættu á að fá segarek sem oft hefur slæm áhrif á lífs- gæði þeirra og horfur. Nokkrar stórar rannsóknir á undanförnum árum hafa sýnt fram á að blóðþynning með warfaríni getur dregið talsvert úr hættu á sega- reki hjá þeim sem hafa gáttatif án lokusjúkdóms. Aspirín dregur lítillega úr hættu á segareki en er engan veginn eins öflugt í því skyni og warfarín. Ahættuþættir fyrir segareki hjá sjúklingum með gáttatif án lokusjúkdóms eru: aldur yfir 65 ára, há- þrýstingur, sykursýki, fyrri saga um heilaáfall auk stækkaðrar vinstri gáttar og skerts vinstri slegils. Blóðþynningarmeðferð með warfaríni er sérlega gagnleg þeim sjúklingum sem hafa einn eða fleiri ofantalinna áhættuþátta. Efniviður og aðferðin Rannsókn þessi var tvíþætt. Annars vegar var notkun warfaríns og aspirín hjá sjúk- lingum með áður greint gáttatif könnuð hjá þeirn sem leituðu á bráðamóttöku Landspítala við Hringbraut frá febrúar til júní árið 2000. Hins vegar var notkun blóð- þynningarlyfja könnuð hjá sjúklingum sem fýlgt hafði verið á heilsugæslustöðinni Sólvangi og höfðu staðfest gáttatif á árunum 1995-2000. Auk lyfjanotkunar voru áhættuþættir fyrir segareki kannaðir hjá þessum hópi svo og frábendingar gegn notkun blóðþynningarlyfja. Niðurstöður: Af 68 sjúklingum (39 karlar, meðal- aldur 73 ár) sem leituðu á bráðamóttöku Landspítala við Hringbraut höfðu 65 (96%) sjúklinganna að minnsta kosti einn áhættuþátt fýrir segareki. Þrátt fyrir það voru aðeins 36 (53%) á warfarínmeðferð og af þeim 32 sjúklingum sem voru ekki á warfaríni höfðu aðeins átta skýra frábendingu gegn notkun þess og þrír engan áhættuþátt. Þannig var 21 (31%) sjúklingur ekki á warfarín blóðþynningu þrátt fyrir að vera með áhættuþátt fyrir segareki og enga frábend- ingu gegn warfaríni. Af 71 sjúklingi (46 karlar, meðalaldur 72 ár) sem voru skjólstæðingar Heilsugæslustöðvarinnar Sól- vangs í Hafnarfirði voru 40 (56%) sjúklinganna á warfaríni. Af þeim sem tóku ekki warfarín höfðu að- eins tveir (3%) engan áhættuþátt fyrir segareki og fjórir (6%) höfðu skýra frábendingu gegn lyfinu. Tuttugu og fimm (35%) voru þannig ekki á warfaríni þrátt fyrir að ábending hefði verið fyrir slíku. ENGLISH SUMMARY Guðmundsdóttir IJ, Helgason KO, Sigurðsson EL, Arnar DO Use of warfarin anticoagulation in patients with atrial fibrillation in lceland Læknablaðið 2002; 88: 299-303 Objective: Despite convincing evidence that warfarin anticoagulation reduces the risk of thromboembolism in patients with atrial fibrillation, recent data suggests that this therapy may be underutilized. Some patients are at higher risk than others and known risk factors for thrombo- embolism in nonvalvular atrial fibrillation include hyper- tension, diabetes, a prior history of a cerebrovascular accident or a transient ischemic attack and age over 65 years. Additionally, decreased left ventricular function and an enlarged left atrium increase the risk of emboli. Objective: To study the use of anticoagulation in patients with nonvalvular atrial fibrillation in lceland we looked at the pattern of warfarin use in two different settings, the emergency room at a University Hospital in Reykjavik and those followed at the Solvangur Health Center, a primary health clinic, in Hafnarfjordur. Methods: Prospective data collection at the University Hospital and retrospective chart review at Solvangur Health Center. Results: A total of 68 patients (39 men, average age 73 years) with known preexisting atrial fibrillation were seen at the University Hospital during the 4 month study period. Thirty six (53%) were taking warfarin. Of the 32 not taking warfarin, 8 (25%) had a contraindication to anticoagulation. A large majority (96%) of the cohort had at least one risk factor for thromboembolism in atrial fibrillation. Fourteen (54%) of those not taking warfarin were on aspirin. At Solvangur Health Center, 40 of 71 patients (56%) (46 men, average age 72 years) with atrial fibrillation were taking warfarin while 4 of the 31 (13%) not on warfarin had a contraindication to the use of the medication. However, 14 (45%) of those not on warfarin were taking aspirin. In all 94% of the patients at Solvangur Health Center had at ieast one risk factor for thromboembolism. Conclusions: The use of warfarin in patients with atrial fibrillation in lceland was found to be less than optimal. We speculate that reluctance to use anticoagulants in the elderly and perhaps lack of awareness of the data showing benefit of anticoagulation may contribute to this. Given the relatively easy access of physicians to anticoagulation clinics, the added burden of following an anticoagulated patient is unlikely to be a factor. Key words: atrial fibrillation, anticoagulation, thromboemboli. Correspondance: Davíð O. Arnar, davidar@landspitali.is Læknablaðið 2002/88 299
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.