Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2002, Page 33

Læknablaðið - 15.04.2002, Page 33
FRÆÐIGREINAR / GÁTTATIF Tafla II. Áhættuþættir fyrir segareki hjá sjúkiingum á Heilsugæslustöðinni Sólvangi Hafnarfiröi (n=71). n (%) Aldur > 65 ára 53 (75) Háþrýstingur 39 (55) Sykursýki 8 (11) Fyrri saga um heilaáfall/TIA* 2 (3) * TIA: Transient ischemic attack, tímabundin heilablóöþurrö. blæðing frá meltingarvegi eða blóðmiga. Fyrri saga um magasár eða blóðmigu sem ekki var lengur virkt vandamál var ekki talin vera frábending fyrir warfar- ín meðferð. Fengið var leyfi Tölvunefndar og Vís- indasiðanefndar fyrir rannsókninni og hún jafnframt samþykkt af læknaráði Fleilsugæslustöðvarinnar Sól- vangs. Niöurstööur Sjúklingar á bráðamóttöku Landspítala Alls 68 sjúklingar uppfylltu þau skilyrði að hafa áður greint gáttatif, 39 karlar og 29 konur, og var meðal- aldur 73 ár. Af þeim 68 sjúklingum með gáttatif sem leituðu á bráðamóttöku Landspítala Flringbraut á rannsóknartímabilinu voru 40 með langvinnt gáttatif en 28 höfðu gáttatif í köstum. Nær allir, eða 65 (96%), höfðu að minnsta kosti einn áhættuþátt fyrir segareki. Dreifing áhættuþátta er sýnd í töflu 1 en algengustu áhættuþættirnir voru aldur yfir 65 ára hjá 50 (73%) og háþrýstingur hjá 40 (59%). Alls 54 (79%) áttu nýlega ómskoðun til mats á starfshæfni vinstri slegils og stærð vinstri gáttar. Tuttugu og einn sjúklingur (39%) af 54 hafði skerð- ingu á samdrætti í vinstri slegli en enginn sjúklingur í þessu þýði hafði verulega stækkun á vinstri gátt (meira en 5,5 cm). Hins vegar höfðu 25 sjúklingar (46%) vinstri gátt sem var tiltölulega vægt stækkuð, eða milli 4,5 og 5,5 cm. Þrjátíu og sex sjúklingar af 68 voru á warfarín blóðþynningu (53%) (mynd 1). Hjá velflestum reyndist INR gildi vera innan tilætlaðra meðferðar- marka, það er mili 2,0 og 3,0. Af þeim 32 sem ekki voru á warfarín blóðþynningu höfðu þrír (4%) engan áhættuþátt, átta (12%) einstaklingar frábendingu fyrir blóðþynningu, 10 (15%) voru eingöngu á aspiríni og 14 (21%) tóku hvorki aspirín né warfarín. Alls 21 sjúklingur (31%) var því ekki á warfarín meðferð þrátt fyrir að hafa einn eða fleiri áhættuþátt fyrir segareki og enga frábendingu gegn warfarín blóð- þynningarmeðferð. Hvað varðar frábendingar fyrir blóðþynningar- meðferð hjá þessum hóp voru tveir með krabbamein í blöðru og blóðmigu, tveir með lungnaæxli, einn hafði ekki viljað sinna eftirliti vegna blóðþynningar og annar var með áfengissýki og ekki talið óhætt að g Warfarín □ Enginn áhættuþáttur □ Frábending □ Ekki á warfaríni hafa hann á blóðþynningarmeðferð. Einn sjúklingur hvor var með elliglöp og dettni sem frábendingar. Tveir sjúklinganna komu á bráðamóttökuna með heilablóðfall sem líklega var af völdum segareks vegna gáttatifs og var hvorugur þeirra á blóðþynn- ingarmeðferð. Hjá átta sjúklingum hafði warfarín meðferð fyrst verið hafin eftir heilablóðfall. Sjúklingar heilsugæslustöðinni Sólvangi í þessum hópi var 71 sjúklingur, 46 karlar og 25 kon- ur, og var meðalaldur 72 ár. Af þessum hópi var 51 sjúklingur með langvinnt gáttatif en 20 með gáttatif í köstum. Alls voru 40 (56%) þessara sjúklinga á warfaríni (mynd 2). Af 31 sjúklingi sem ekki tók warfarín höfðu fjórir (6%) frábendingu gegn blóðþynningar- meðferð og tveir (3%) höfðu engan áhættuþátt fyrir segareki. Fjórtán sjúklinganna (20%) tóku hvorki warfarín né aspirín. Því voru 25 sjúklingar (35%) ekki á warfarín meðferð þrátt fyrir að hafa einn eða fleiri áhættuþátt fyrir segareki og enga þekkta frá- bendingu gegn blóðþynningarmeðferð. Aldur yfir 65 ára hjá 53 (75%) og háþrýstingur hjá 39 (55%) voru langalgengustu áhættuþættirnir (tafla 2). Hjá fjórum sjúklingum var blóðþynningarmeðferð fyrst hafin eftir heilablóðfall. Hvað varðar frábendingar gegn warfarín meðferð var einn með sögu um heilablæð- ingu, annar með elliglöp, sá þriðji með dettni og sá fjórði með blöðrukrabbamein. Tveir sjúklingar voru með gerviloku og voru þeir báðir á warfaríni. Umræöa Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að blóðþynn- ing er vannýttur meðferðarkostur hjá sjúklingum með gáttatif þrátt fyrir að langflestir þeirra hafi haft Mynd 1. Skífurit sem sýnir notkun warfaríns hjá sjúklingum með gáttatifá Landspítala Hringbraut. Mynd 2. Skífurit sem sýn- ir notkttn warfaríns hjá sjúklingum á Heilsu- gœslustöðinni Sólvangi Hafnarfirði. Læknablaðið 2002/88 301
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.