Læknablaðið - 15.04.2002, Qupperneq 76
S M A S J AI N
Tilboð á veiðileyfum
í Hreðavatni
Eflaust eru margir veiðiáhuga-
menn í læknastétt komnir með fiðr-
ing sem væntanlega eykst eftir því
sem sól hækkar á lofti. Sumir þreyja
þorrann og góuna með því að hnýta
flugur til að fleygja fyrir stórlaxa
sumarsins, aðrir bara bíða.
En fleira er fiskur en lax eins og
þar stendur. Svo vill til að Læknafé-
lagið á sumarhús við Hreðavatn en í
því fagra vatni er nokkur silungsveiði
þótt ekki séu allir fiskar risastórir.
Þannig segir í Morgunblaðinu ekki
alls fyrir löngu frá feðgum sem reyndu
fyrir sér í vatninu og komust í feitt.
Annar fékk yfir 50 bleikjur en hinn
eitthvað færri. Sá síðarnefndi rak
einnig í þriggja punda urriða.
Nú hefur stjórn Hreðavatns ehf.
sem á veiðiréttinn í vatninu ákveðið
að breyta verðlagningu á veiðileyfum
á þann veg að í stað þess að þeir sem
vilja veiða þar greiði 700 krónur fyrir
daginn á eina stöng þá er eigendum
sumarhúsa boðið upp á að greiða
5.000 krónur fyrir tímabilið 1. maí til
30. september. Sé það gert mega þeir
sem dvelja í hverju húsi veiða á tvær
stengur dag hvern allt tímabilið.
Orlofsnefnd Læknafélags Islands
ákvað að taka þessu ágæta tilboði og
geta því þeir sem gista í húsum félags-
ins við Hreðavatn veitt á tvær stengur
upp á hvern einasta dag frá maíbyrj-
un til septemberloka ef vilji er fyrir
hendi án þess að greiða fyrir það
aukalega.
Pað eru tilmæli orlofsnefndar að
þeir sem nýta sér þetta veiðileyfi
haldi veiðidagbók og skrái hjá sér afl-
ann sem berst á land. Er það bæði til
gamans gert og einnig til þess að
kortleggja vatnið, hvort þar er ein-
hver veiði að ráði og hvar hún er best.
ið allt of ósveigjanlegt og fast í bókstafstrú
stjórnvalda á það að enginn nema hið
opinbera geti rekið heilsugæslu. Fyrir vik-
ið hafa eingöngu þeir sem geta hugsað sér
að vinna við þær aðstæður komið til starfa
en aðrir ekki. Hefði kerfið verið sveigj-
anlegra væru örugglega fleiri að störfum
núna sem heimilislæknar."
- En nú eru ýmis teikn á lofti um að
verið sé að opna á ný rekstrarform. Ráð-
herra boðar útboð á rekstri heilsugæslu-
stöðvar í Kópavogi og ræðir um að láta
reyna frekar á „Lágmúlamódelið“.
„Já, heilbrigðisráðherra talar þannig
en ég óttast að minna verði um efndir.
Eins og rætt er um hlutina núna er ætlun-
in að stökkva úr ríkisrekstri yfir í opið út-
boð þar sem búast má við að fyrirtæki á
borð við Lyfjaverslun Islands eða Is-
lenska aðalverktaka bjóði í reksturinn til
30 ára. Þetta er framandi hugsun fyrir
okkur lækna sem höfum verið að tala um
verktöku lækna eða gerð þjónustusamn-
inga við ríkið. Vitaskuld geta læknar tek-
ið höndum saman og boðið í reksturinn
en þetta er stórt stökk og læknar hafa
ekki reynslu af svona rekstri.
Ég efast líka um að hægt sé að semja
viðunandi útboðslýsingu út frá þeim upp-
lýsingum sem fyrir liggja, hvort sem litið
er á rekstrarþáttinn eða þau verk sem á
að vinna á væntanlegri heilsugæslustöð.
Ég hef ekki séð ítarlega reikninga um
rekstur heilsugæslustöðva og það skrán-
ingarkerfi sem notað er á heilsugæslu-
stöðvunum gefur ekki fullnægjandi mynd
af því sem við erum að gera þar. Það veit
enginn hvað ég og aðrir starfsmenn eru
að gera né í hvað á að bjóða.“
- Sérðu fyrir þér að ríkið muni þegar
fram líða stundir bjóða læknunum í
Læknalind að gera við þá þjónustusamn-
ing?
„Þeir starfa í stóru hverfi og ef þeir fá
marga íbúa þess til að kaupa áskrift og
bæta því við þá skatta sem þeir greiða þá
hljóta stjórnvöld að spyrja sig hvernig
þau eigi að veita þessu fólki þjónustu á
sama grunni og öðrum. Ég veit ekki hvert
svarið verður en eitthvað verður að gera
ef þeim gengur vel,“ segir Sigurbjörn
Sveinsson formaður LI.
-ÞH
Formannaráðstefna
Læknafélags íslands
Boðað er til formannafundar skv. 9. grein laga Læknafélags íslands föstudaginn 12.
apríl í húsnæði læknasamtakanna að Hlíðasmára 8, Kópavogi.
Dagskrá:
10:00-12:30
12:30-13:30
13:30-15:00
15:00-15:30
15:30-17:00
Skýrsla formanns LÍ um afgreiðslu ályktana aðalfundar 2001, störf
stjórnar og stöðu helstu mála. Skýrslur formanna aðildarfélaga, samn-
inganefnda og helstu starfsnefnda eftir atvikum.
Matarhlé
1. Lœknar í vanda. Heilbrigðiseftirlit með lœknum
Frummælendur: Landlæknir og Kristinn Tómasson yfirlæknir Vinnu-
eftirlits ríkisins
2. Upplýsingar - auglýsingar á tölvuöld
Frummælandi: Einar Oddsson. formaður Siðfræðiráðs LÍ
3. Skipulagsmál lœknasamtakanna, stéttarfélag/félög lœkna
Frummælandi: Sigurbjörn Sveinsson, formaður LI
Umræður
Kaffihlé
Aframhald umræðna
Önnur mál
Fundarlok verða á heimili formanns að Hæðarseli 28, Reykjavík.
344 Læknablaðið 2002/88