Læknablaðið - 15.05.2002, Blaðsíða 5
UMRÆflA 0 G FRETTIR
417 Af sjónarhóli stjórnar LÍ:
Kandídatsárið, menntun eða
mönnun?
Oddur Steinarsson
419 Heimilislæknar álykta um
vottorðamálið
421 Launakerfi sjúkrahúslækna
að breytast
Rætt við Ingunni Vilhjálmsdóttur
formann samninganefndar
Þröstur Haraldsson
425 Berjumst gegn ofeldi og
sjúkdómum
Sigurbjörn Sveinsson
426 Frá tryggingayfirlækni
Gallup-könnun á afstöðu
lækna til frum- og hermilyfja
Frumlyfjahópur FÍS
428 Hjartavernd flytur: Gerbreytt
aðstaða og 40 nýir starfsmenn
Þröstur Haraldsson
431 Hversu áreiðanlegar eru heil-
brigðisupplýsingar á netinu?
Þröstur Haraldsson
436 Læknavakt fyrir sjúkrattug
á Akureyri
Helga Magnúsdóttir
438 Nýtt vinnulag við upp-
vinnslu brjóstverkja á
bráðamóttöku Landspítala
Hringbraut
Þröstur Haraldsson
440 Einkarekin heilbrigðisþjón-
usta virðist dýrari en sam-
félagsrekin þjónusta
Ólafur Ólafsson
443 íðorðasafn lækna 144.
Sjúkleikaheiti
Jóhann Heiðar Jóhannsson
445 Lyfjamál 104. Notkun
ópóíða og tteiri skyldra
lyfja 1989-2001
447 Broshornið 26.
Af hiksta og beinagrind
Bjarni Jónasson
448 Ráðstefnur/námskeið/þing/
styrkir
457 Lausar stöður
460 Okkar á milli
462 Minnisblaðið
Af óviðráðanlegum ástæðum fellur grein Maríu Heimisdóttur um faraldsfræði
niður í þetta sinn.
LISTAMAÐUR
MÁNAÐARINS
Patrick Huse (1948) er norskur
listamaður sem dvalið hefur um
talsvert skeið á fslandi undanfarin
ár og haldið sýningar á verkum sem
hann vinnur út frá íslensku lands-
lagi. Þessar sýningar Patricks fara
reyndar víða um heim en hann
hefur þó gert sér sérstakt far um að
fá þær líka hingað heim og hefur
sýnt í Hafnarborg og á Kjarvals-
stöðum. Síðasta sýning hans er
helguð landslaginu suður af Heklu
og var oþnuð í Borgarlistasafninu í
Ósló síðastliðið sumar en verður i
Listasafni Reykjavíkur á næsta ári.
Patrick hefur lengi verið þekktur
í heimalandi sínu fyrir grafík og mál-
verk en síðustu árin hafa sýningar
hans orðið æ fjölbreytilegri og á
þeim má nú bæðí sjá Ijósmyndir og
myndbandsverk við hlið hins mál-
aða striga. Mesta rækt leggur hann
þó enn við málverkin og þykja þau
vera sérstaklega vel unnin, bæði
hvað varðar hina myndrænu þætti
og þá miklu tækni sem listamaður-
inn ræður yfir.
Málverkið á forsíðu þlaðsins er
unnið í undirbúningi að næstu sýn-
ingu Patricks og byggir á rannsókn-
um hans á íslensku hraungrjóti. í
því er líkt og horft sé inn í sjálft
grjótið og innri byggingu þess varþ-
að uþþ á strigann. Það merkilega er
þó að með þessari aðferð verður til
mynd sem um leið virðist sýna ytri
veruleika hraunsins, hina sjálfa fljót-
andi hraunbreiðu.
Patrick er einn þeirra mörgu er-
lendu listamanna sem komið hafa
til Islands á undanförnum árum og
vinna listaverk sín kraftbirtir af ís-
lensku umhverfi. Óhætt er að
segja að þessi viðbót þeirra hafi
bæði auðgað íslenskt listalíf og átt
stóran þátt í þvi að vekja athygli á
íslenskri list og á landi og þjóð.
Flestir þessir listamenn hafa líka
lagt sig, líkt og Patrick, í líma við
að halda sýningar hér á landi og
má því með réttu telja að þeir og
störf þeirra séu orðin snar þáttur
af íslenskri myndlist, þeirri mynd-
list sem iðkuð er á íslandi og fjallar
um veruleika íslendinga.
Jón Proppé
Læknablaðið 2002/88 381