Læknablaðið - 15.05.2002, Blaðsíða 75
STYRKIR
NCU
Styrkir Norrænu
krabbameins-
samtakanna
Norrænu krabbameinssamtökin auglýsa styrki fyrir
árið 2003. Þeim er ætlað að styðja og örva samstarf í
krabbameinsrannsóknum á Norðurlöndunum (sam-
starf tveggja landa að lágmarki). Rannsóknaverk-
efnin verða að vera á krabbameinssviði, vera fallin til
þess að framkvæma þau einmitt á Norðurlöndum og
áhrif samstarfsins þurfa að vera gagnvirk.
Fjármögnun slíkra samstarfsverkefna takmarkast við:
1) faraldsfræðilegar rannsóknir þar sem notaðar eru
krabbameinsskrár viðkomandi lands, 2) klínískar
rannsóknir, 3) skipulagningu slíkra rannsókna og for-
rannsóknaverkefni (til dæmis hjá undirbúningshóp-
um á Norðurlöndum).
Framvegis mun NCU styrkja aðeins fá en stór verk-
efni. Heildarupphæð til styrkveitinga mun verða sú
sama. Styrkir verða aðeins veittir til eins árs. Senda
þarf nýja umsókn um framhaldsstyrk til verkefnisins.
Mat umsókna er í höndum Norrænu vísindanefndar-
innar.
Umsókn, rituð á ensku, skal innihalda:
• umsóknareyðublað
• kostnaðaráætlun verkefnis
• verkefnalýsingu (hámark 10 A4 blaðsíður)
• stutta starfsferilslýsingu (1-2 A4 blaðsíður)
• meðmæli
• lista yfir birtar fræðigreinar
• undirritaða yfirlýsingu um samstarf
• samþykki vísindasiðanefndar á verkefninu (þar
sem það á við).
Umsókn skal senda í einu frumeintaki og sjö afritum
til:
NCU - The Swedish Cancer Society
Department of Research and Development
S-101 55 STOCKHOLM, Sweden
Umsóknarfrestur er til 16. maí, 2002.
Umsóknareyðublöð er hægt að fá á heimasíðu
Krabbameinsfélags íslands, krabb.is auk upplýsinga
í s. 540-1900.
Novo Nordisk Foundation
Research Meetings
Styrkir til
vísindastarfsemi
Norræna rannsóknanefndin (Nordisk Forsknings
Komité) ráðgerir að veita allt að 300.000 DKR á ári
til vísindastarfsemi á Norðurlöndunum, til dæmis til
eins til þriggja daga málþinga, mögulega sem
velskilgreinda fundi í tengslum við stærri
ráðstefnur (satellite symposium), eða til að bjóða
alþjóðlega viðurkenndum vísindamönnum til styttri
dvalar hjá rannsóknahópum í tengslum við
fyrirlestrahald eða sambærilega starfsemi. Styrkir
verða ekki veittir vegna námskeiða.
Starfsemin skal vera á sviðið innkirtlafræði eða
tilraunalífeðlisfræði.
Hver styrkur nemur að jafnaði 100.000 DKR eða
hærri upphæð.
Sækja má um styrki vegna starfsemi á árinu 2003
eða 2004.
Umsóknir skal senda í fimm eintökum til:
Novo Nordisk Fonden
Brogárdsvej 70
Postbox 71
DK-2820 Gentofte, Danmark
sími: +45 44 43 90 31
bréfasími: +45 44 43 90 98
heimasíða: http://www.novonordiskfonden.dk
í umsókninni skal koma fram rökstuðningur fyrir
mikilvægi þeirrar starfsemi sem sótt er um styrk til
(mest ein síða), lýsing á starfseminni,
fjárhagsáætlun og áætluð tímasetning,
upplýsingar um virkni rannsóknarhóps
umsækjenda á fræðasviðinu og þýðingu þeirrar
starfsemi sem sótt er um styrk til fyrir framhald
þeirra rannsókna, ásamt skrá yfir birtingu á helstu
niðurstöðum rannsóknarhóps umsækjenda
síðastliðin tvö til þrjú ár (mest tvær síður).
Umsóknir ásamt öllum fylgiskjölum skulu hafa
borist til Novo Nordisk Fonden í síðasta lagi 12.
ágúst 2002. Ófullnægjandi umsóknir og umsóknir
sem berast á bréfasíma eða í tölvupósti verða ekki
teknar til greina.
Umsóknum verður svarað um miðjan október
2002.
Læknablaðið 2002/88 451