Læknablaðið - 15.05.2002, Blaðsíða 78
RÁÐSTEFNUR / ÞING
Ráðstefna SKÍ
Krabbameins-
rannsóknir
á íslandi
Samtök um krabbameinsrannsóknir á íslandi (SKÍ) í
samvinnu við fræðslunefnd læknaráðs LSH boða til
ráðstefnu í sal Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð
8, 4. hæð, dagana 7.-8. maí, kl. 13:30-18:00.
Efni ráðstefnunnar er tvíþætt: krabbameins-
rannsóknir og persónuvernd. Framsöguerindi
halda prófessor Julian Peto, faraldsfræðingur
við Institute of Cancer Research, Sutton
Surrey, dr. Haraldur Briem frá Persónuvernd,
dr. Kristleifur Kristjánsson frá íslenski erfða-
greiningu og dr. Nick Short frá Urði Verðandi
Skuld. Auk þess verður kynnt innsent efni
með erindum og veggspjöldum.
Ráðstefnan er opin öllum áhugamönnum um
krabbameinsrannsóknir.
Sjötta vísindaþing
Félags íslenskra
heimilislækna
Borgarnesi 25.-26. október 2002
Á þinginu verða bæði frjálsir fyrirlestrar og spjalda-
þing. Kynntar verða rannsóknir og rannsóknaráætl-
anir sem tengjast heilsugæslu. Auk þess verða bæði
innlendir og erlendir gestafyrirlesarar.
Ágrip skal skrifa á A4-blað með sama sniði og á fyrri
þingum. Þar skal koma fram tilgangur rannsóknar-
innar, efniviður og aðferðir, niðurstöður og ályktanir.
Ágripum skal skila á disklingum ásamt einu útprenti
til Emils L. Sigurðssonar (emil1@islandia.is), Heilsu-
gæslustöðinni Sólvangi, 220 Hafnarfirði fyrir 1.
september.
Ágripin verða birt í sérstöku blaði þingsins sem
dreift verður til allra lækna á íslandi.
Vísindaþingsnefndin
Emergency
Medicine
Between
Continents
Alþjóðlegt þing á vegum Félags íslenskra bráða-
lækna, Landspítala og Læknadeildar Háskóla ís-
lands verður haldið í Háskólabíói dagana 9.-13. júní
2002.
Á þinginu verður fjallað meðal annars um
bráð öndunarvandamál hjá börnum og full-
orðnum og meðferð þeirra, fyrstu meðferð
slasaðra, áverka á heila og mænu, lost,
brjóstverki og hjartsláttartruflanir. Einnig
verða fyrirlestrar um eiturefnafræði, sýkingar í
börnum, heimilisofbeldi og misnotkun barna.
Verkleg kennsla verður meðal annars í með-
ferð áverka á hendur, úrlestri hjartalínurita og
meðferð öndunarvegar.
Fyrirlesarar koma allir úr fremstu röð lækna
bæði vestanhafs og austan.
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu:
www2.landspitali.is/congress/emergency2002/
Verð fyrir íslenska sérfræðilækna er kr. 39.000 fyrir allt
þingið, eða kr. 15.000 fyrir einstaka daga, fyrir ung-
lækna og aðrar heilbrigðisstéttir kr. 29.000 allt þingið,
eða kr. 12.000 á dag, og fyrir læknanema kr. 5.000,
eða kr. 2.000 á dag.
Taka þarf fram í athugasemdum við skráningu hvort
um er að ræða íslenska lækna eða aðra heil-
brigðisstarfsmenn. Nánari upplýsingar veita Brynj-
ólfur Mogensen, Mary Palmer og Theodór Frið-
riksson, slysa- og bráðasviði Landspítala Fossvogi,
s. 543-1000, eða Inga Sólnes, Gestamóttökunni, s.
551-1730.
454 Læknablaðið 2002/88