Læknablaðið - 15.05.2002, Blaðsíða 41
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
Kandídatsárið, menntun eða mönnun?
Ástæða þessara skrifa er að undanfarin þrjú ár
hefur undirritaður velt nokkuð fyrir sér tilgangi
kandídatsárs á Islandi. Upphaf þessa var að vorið
1999 gerði heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra
breytingu á 2. grein reglugerðar nr. 305/1997 sem
fjallar um tilhögun kandídatsárs. Setti hann þar inn
heilsugæsluskyldu í þrjá mánuði. Er greinin nú svo-
hljóðandi:
„ Til þess að kandídat í lœknisfrœði geti fengið lækn-
ingaleyft, skal hann að prófi loknu hafa lokið því við-
bótarnámi sem hér greinir: Hann skal hafa unnið að-
stoðarlœknisstörf í samtals 12 mánuði á viðurkennd-
um heilbrigðisstofnunum skv. fskj. 3 með rg. nr.
305/1997 og auglýsingu, þar afskal hann starfa a.m.k.
4 mánuði á lyfjadeild, 2 mánuði á handlœkningadeild
og 3 mánuði á heilsugœslustöð. “
Var þessi breyting gerð án umsagnar frá Lækna-
deild Háskóla íslands og var ekkert fé lagt til heilsu-
gæslunnar vegna þessa þannig að hægt væri að standa
vel að kennslunni. Virðist þessi framkvæmd ráðherra
því hafa verið til þess ætluð að bæta mönnun heilsu-
gæslunnar fremur en tilgangurinn hafi verið aukin
menntun. Vegna þessa er nú svo komið að flestar
stöður sem eru í boði fyrir kandídata á heilsugæslu-
stöðvum eru sumarafleysingastöður. Eru þá jafnan
færri sérfræðingar starfandi á heilsugæslunum heldur
en á veturna og kennslugildið oftar en ekki lítið.
Þetta hefur síðan haft í för með sér að spítalarnir
hafa lent í auknum vanda með mönnun unglækna,
sérstaklega á sumrin. Allt frá því að þessi breyting
var gerð hefur farið fram umræða um lengingu
kandídatsárs. Þessi umræða hefur gengið svo langt að
fulltrúar Landspítala settu fram tillögu í Framhalds-
menntunarráði Læknadeildar síðastliðið haust um
lengingu kandídatsárs úr 12 mánuðum í 18 mánuði.
Var þessi tillaga síðan afgreidd nú á vormánuðum og
felld með sjö atkvæðum gegn tveimur. Einnig fréttist
af fulltrúa frá Landspítala og fulltrúa frá heilsugæsl-
unni á fundi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra á
vormánuðum þar sem þeir ræddu lengingu kandí-
datsárs við hann. Veldur þessi framgangur forsvars-
manna spítalans og heilsugæslunnar undirrituðum
verulegum áhyggjum. Er það sökum þess að meðal-
aldur útskrifaðra lækna hér á landi er fremur hár og
munu þessar breytingar síðan seinka því enn frekar
að kandídatar fái lækningaleyfi. í síðasta útskriftar-
árgangi var meðalaldurinn um 28 ár. Orsakast þetta
bæði af því að hér á landi útskrifast nemendur úr
framhaldsskólum um tvítugt og síðan þurfa þeir að
þreyta samkeppnispróf í læknisfræði. Tefja þessi sam-
keppnispróf fyrir útskrift læknanema oftar en ekki
um eitt til tvö ár. Ljóst er því að lenging á kandídats-
ári mun síðan seinka íslenskum læknum enn frekar í
því að hefja framhaldsnám. Einnig tel ég að lenging
kandídatsárs í 18 mánuði sé mjög óhentug að því leyti
að nær allir útskrifast úr læknadeild hér á landi á
sama tíma ársins, en ekki tvisvar á ári eins og víðast
erlendis. Hefur það komið fram í tillögum um leng-
ingu kandídatsárs að taka kandídata inn tvisvar á ári.
Það gengur ekki upp hér á landi, nema þá með því að
seinka sumum um hálft ár til viðbótar við lenginguna
á kandídatsárinu.
Telur undirritaður að mönnunarmál sjúkrahús-
anna hvað varðar yngri lækna verði að leysa á annan
hátt. I fyrsta lagi gengur ekki að breyta reglugerðum
til þess. Slíkt verður að gera á sömu forsendum og
önnur fyrirtæki í landinu búa við sem eru forsendur
markaðarins, fara þarf eftir lögmálinu um framboð
og eftirspurn. Til þess að tryggja betri mönnun í
stöður yngri lækna á sjúkrahúsum og heilsugæslum
verður að bæta ýmislegt til þess að gera það eftir-
sóknarvert að starfa hér. Bæta þarf kennslu og starfs-
aðstöðu þannig að deildarlæknar sjái sér frekar hag í
því að taka fyrstu ár síns sérnáms hérlendis. Virðist
staðan í dag því miður vera sú að yngri læknar eru
farnir að flýta sér út í sérnám. Efla þarf traust og
trúnað á milli yngri lækna og forsvarsmanna þessara
stofnana. Yngri læknar eru sífellt á varðbergi gagn-
vart sínum vinnuveitendum hér, enda eru ýmis rétt-
indamál í ólestri, til dæmis hvað varðar álag, vinnu-
stundir, hvíldartíma og frí. Launin eru einnig ekki
sambærileg við aðrar stéttir ef tekið er tillit til lengdar
námsins og ábyrgðarinnar sem starfinu fylgir.
Er það von mín að forsvarsmenn Landspítala og
fleiri stofnana sjái að sér og reyni að gera yngri lækna
sáttari við að starfa hjá þeim í framtíðinni.
Oddur
Steinarsson
Höfundur er formaöur Félags
ungra lækna og situr í stjórn
Læknafélags íslands.
Sjónarmiö þau er fram koma í
pistlunum Af sjónarhóli
stjórnar eru höfundar hverju
sinni og ber ekki að taka sem
samþykktir stjórnar LÍ.
Læknablaðið 2002/88 417