Læknablaðið - 15.05.2002, Blaðsíða 7
RITST JÚRNARGREIIUAR
Konur í vísindum
Nýlega var haldin ráðstefna
á vegum Menntamálaráðu-
neytisins og fleiri stofnana
sem bar yfirskriftina Konur í
vísindum á lslandi, en mikið
hefur verið fjallað um þetta
efni á síðustu misserum í
Evrópu. Aðild íslands að
rammaáætlunum Evrópu-
sambandsins (ESB) varð
hvati þessa. Birtar voru töl-
fræðilegar niðurstöður úr
skýrslu um hlut kvenna í vísindum, en rnikill skort-
ur hefur verið á slíkum upplýsingum hingað til og
hefur torveldað allan samanburð á stöðu kvenna í
vísindum og rannsóknum og er skýrslan því mikið
þarfaþing. Nefnd um konur og vísindi, skipuð af
menntamálaráðherra 1999, tók skýrsluna saman.
Skipunin var í samræmi við áætlun framkvæmda-
stjórnar ESB frá sama ári sem miðar að því að
fjölga konum í vísindum þar sem sýnt hefur verið
fram á að verulega hallaði á hlut kvenna en einnig
að ESB leggur nú áherslu á að styrkja vísindi og
rannsóknastarf til að viðhalda hagvexti og velsæld.
Niðurstöður íslensku skýrslunnar sýna að líkt
og almennt gerist innan ESB og í löndum sem
tengdust fimmtu rammaáætluninni er hlutur
kvenna í vísindum hér á landi rýrari en karla. Líkt
og annars staðar er kynferði ein af þeim breytum
sem hefur haft mikil áhrif á tækifæri fólks í vísinda-
samfélaginu. Sem leið til að efla vísindi og nýsköp-
un hljóta Islendingar ekki síður en aðrir að leggja
áherslu á að fjölga konum sem leggja fyrir sig vís-
indi og rannsóknir. Vikið er síðan að nokkrum
þáttum sem stuðlað getað að fjölgun kvenna í vís-
indum. Skýr markmið stjórnvalda í jafnréttismál-
um eru nú þegar til staðar samkvæmt lögum um
jafna stöðu kvenna og karla (nr. 96/2000). Víða hafa
stjórnvöld landa sett sér ákveðin töluleg markmið
til að auka hlutfall kvenna sem gegna starfi há-
skólakennara á öllum fræðasviðum vísinda. Einnig
er talið mikilvægt að á Islandi sé unnið að svipaðri
markmiðssetningu og nauðsynlegt talið að vinna
að því að fjölga konum þar sem stefnumótun á
sviði vísinda fer fram. Mótun vísindastefnu og
framkvæmd hennar þarf að taka tillit til þarfa
kvenna jafnt sem karla. Tryggja þarf gagnsæi allra
reglna, svo sem við úthlutun styrkja og stöðuveit-
inga. Söfnun tölfræðilegra upplýsinga er forsenda
þess að hægt sé að setja fram markmið um fjölgun
kvenna í vísindum og áframhaldandi söfnun sé
nauðsynleg. Breyta þarf staðalmynd vísindamanns-
ins, lærimeistarar, jöfnun fjölskylduábyrgðar, efling
framhaldsnáms hér á landi, efling kynjarannsókna
og netverk vísindakvenna eru atriði sem talin eru
geta eflt stöðu kvenna í vísindum á fslandi. í loka-
orðum er rætt um það að árangur þeirra kvenna
sem starfa í vísindum hér sé hins vegar mikill. Hon-
um ber að halda á lofti því hann vísar öðrum kon-
um veginn og styrkir undirstöður vísinda á íslandi.
Þetta er mjög vel unnin skýrsla og nauðsynlegur
lestur fyrir alla þá sem standa að rannsóknum hér á
landi.
Fáar konur höfðu fengið hvatningarverðlaun
RANNÍS þegar þessi skýrsla var skrifuð en nýlega
hlutu nokkrar konur verðlaunin og er það einnig
mjög jákvætt fyrir aðrar íslenskar vísindakonur.
Vísindanet kvenna spruttu upp víða í stærri há-
skólum og háskólasjúkrahúsum uppúr 1990 bæði í
Evrópu og í Bandaríkjunum til eflingar konum í
vísindum. Vinna var lögð í öflun tölfræðilegra upp-
lýsinga og mikil fræðsla fór fram um stöðu kvenna
í vísindum allan síðastliðinn áratug. Margar vís-
indakonur fengu áhuga á því hvers vegna svo fáar
konur komast til áhrifa innan vísindanna. Mikið
hefur verið einblínt á konurnar sjálfar og hlutverk
þeirra innan fjölskyldunnar. En það virðist ekki
skýra málið.
Agnes Wold og Christine Wennerás, báðar
læknar við Gautaborgarháskóla, ollu miklu fjaðra-
foki í Svíþjóð árið 1995 með blaðaskrifum sínum í
sænskt dagblað þar sem þær efuðust um það að rétt
væri staðið að stöðu- og styrkjaveitingum hjá
Rannsóknasjóði heilbrigðisvísinda (Medicinska
forskningsrádet) þar í landi. í framhaldi af því birtu
þær grein í Nature 1997 sem er orðin fræg þar sem
þær sýna fram á það tölfræðilega að það er sama já-
kvæða breytan að vera karl og það að vera í kunn-
ingja-fjölskyldutengslum. Agnes hélt fyrirlestur
hér á Læknadögum nú í janúar síðastliðnum. Báð-
ar þessar konur hafa átt sæti í sérfræðingahópi ESB
um konur og vísindi sem birti skýrslu árið 2000 sem
sýnir að konur standa verr að vígi í vísindum en
karlar í ríkum ESB (ETAN-skýrslan).
Kannanir sýna að það er tilhneiging til þess að
gleyma kynjavíddinni ef ekki er hugað að henni
sérstaklega og að breytingarnar gerast ekki af
sjálfu sér. Aðeins með virkum aðgerðum verður já-
kvæð þróun í þá átt að bæta stöðu kvenna í vís-
indum.
Víða í nágrannalöndunum hafa verið gerðar
sérstakar aðgerðir til þess að efla og fjölga konum í
vísindum og hér á landi þarf einnig að innleiða
slíkt.
Ólöf
Sigurðardóttir
Hötundur er formaður Félags kvenna í læknastétt.
Frágangur
fræðilegra greina
Höfundar sendi tvær gerðir
handrita til ritstjórnar
Læknablaðsins, Hlíðasmára
8,201 Kópavogi. Annað án
nafna höfunda, stofnana og
án þakka sé um þær að
ræða. Greininni fylgi
yfirlýsing þess efnis að allir
höfundar séu samþykkir
iokaformi greinar og þeir
afsali sér birtingarrétti til
blaðsins.
Handriti skal skilað með
tvöföldu línubili á A-4
blöðum. Hver hluti skal
byija á nýrri blaðsíðu í
eftirtalinni röð:
• Titilsíða: höfundar,
stofnanir, Iykilorð á ensku
og íslensku
• Ágrip og heiti greinar á
ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töflur og myndir skulu vera á
ensku eða íslensku, að vali
höfunda.
Tölvuunnar niyndir og gröf
komi á rafrænu formi ásamt
útprenti. Tölvugögn (data)
að baki gröfum fylgi með,
ekki er hægt að nýla myndir
úr PowerPoint eða af netinu.
Eftir lokafrágang berist allar
greinar á tölvutæku formi
með útprenti.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
http://lb.icemed.is/
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis í næsta blað
er 20. undanfarandi
mánaðar nema annað sé
tekið fram.
Læknablaðið 2002/88 383