Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2002, Page 7

Læknablaðið - 15.05.2002, Page 7
RITST JÚRNARGREIIUAR Konur í vísindum Nýlega var haldin ráðstefna á vegum Menntamálaráðu- neytisins og fleiri stofnana sem bar yfirskriftina Konur í vísindum á lslandi, en mikið hefur verið fjallað um þetta efni á síðustu misserum í Evrópu. Aðild íslands að rammaáætlunum Evrópu- sambandsins (ESB) varð hvati þessa. Birtar voru töl- fræðilegar niðurstöður úr skýrslu um hlut kvenna í vísindum, en rnikill skort- ur hefur verið á slíkum upplýsingum hingað til og hefur torveldað allan samanburð á stöðu kvenna í vísindum og rannsóknum og er skýrslan því mikið þarfaþing. Nefnd um konur og vísindi, skipuð af menntamálaráðherra 1999, tók skýrsluna saman. Skipunin var í samræmi við áætlun framkvæmda- stjórnar ESB frá sama ári sem miðar að því að fjölga konum í vísindum þar sem sýnt hefur verið fram á að verulega hallaði á hlut kvenna en einnig að ESB leggur nú áherslu á að styrkja vísindi og rannsóknastarf til að viðhalda hagvexti og velsæld. Niðurstöður íslensku skýrslunnar sýna að líkt og almennt gerist innan ESB og í löndum sem tengdust fimmtu rammaáætluninni er hlutur kvenna í vísindum hér á landi rýrari en karla. Líkt og annars staðar er kynferði ein af þeim breytum sem hefur haft mikil áhrif á tækifæri fólks í vísinda- samfélaginu. Sem leið til að efla vísindi og nýsköp- un hljóta Islendingar ekki síður en aðrir að leggja áherslu á að fjölga konum sem leggja fyrir sig vís- indi og rannsóknir. Vikið er síðan að nokkrum þáttum sem stuðlað getað að fjölgun kvenna í vís- indum. Skýr markmið stjórnvalda í jafnréttismál- um eru nú þegar til staðar samkvæmt lögum um jafna stöðu kvenna og karla (nr. 96/2000). Víða hafa stjórnvöld landa sett sér ákveðin töluleg markmið til að auka hlutfall kvenna sem gegna starfi há- skólakennara á öllum fræðasviðum vísinda. Einnig er talið mikilvægt að á Islandi sé unnið að svipaðri markmiðssetningu og nauðsynlegt talið að vinna að því að fjölga konum þar sem stefnumótun á sviði vísinda fer fram. Mótun vísindastefnu og framkvæmd hennar þarf að taka tillit til þarfa kvenna jafnt sem karla. Tryggja þarf gagnsæi allra reglna, svo sem við úthlutun styrkja og stöðuveit- inga. Söfnun tölfræðilegra upplýsinga er forsenda þess að hægt sé að setja fram markmið um fjölgun kvenna í vísindum og áframhaldandi söfnun sé nauðsynleg. Breyta þarf staðalmynd vísindamanns- ins, lærimeistarar, jöfnun fjölskylduábyrgðar, efling framhaldsnáms hér á landi, efling kynjarannsókna og netverk vísindakvenna eru atriði sem talin eru geta eflt stöðu kvenna í vísindum á fslandi. í loka- orðum er rætt um það að árangur þeirra kvenna sem starfa í vísindum hér sé hins vegar mikill. Hon- um ber að halda á lofti því hann vísar öðrum kon- um veginn og styrkir undirstöður vísinda á íslandi. Þetta er mjög vel unnin skýrsla og nauðsynlegur lestur fyrir alla þá sem standa að rannsóknum hér á landi. Fáar konur höfðu fengið hvatningarverðlaun RANNÍS þegar þessi skýrsla var skrifuð en nýlega hlutu nokkrar konur verðlaunin og er það einnig mjög jákvætt fyrir aðrar íslenskar vísindakonur. Vísindanet kvenna spruttu upp víða í stærri há- skólum og háskólasjúkrahúsum uppúr 1990 bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum til eflingar konum í vísindum. Vinna var lögð í öflun tölfræðilegra upp- lýsinga og mikil fræðsla fór fram um stöðu kvenna í vísindum allan síðastliðinn áratug. Margar vís- indakonur fengu áhuga á því hvers vegna svo fáar konur komast til áhrifa innan vísindanna. Mikið hefur verið einblínt á konurnar sjálfar og hlutverk þeirra innan fjölskyldunnar. En það virðist ekki skýra málið. Agnes Wold og Christine Wennerás, báðar læknar við Gautaborgarháskóla, ollu miklu fjaðra- foki í Svíþjóð árið 1995 með blaðaskrifum sínum í sænskt dagblað þar sem þær efuðust um það að rétt væri staðið að stöðu- og styrkjaveitingum hjá Rannsóknasjóði heilbrigðisvísinda (Medicinska forskningsrádet) þar í landi. í framhaldi af því birtu þær grein í Nature 1997 sem er orðin fræg þar sem þær sýna fram á það tölfræðilega að það er sama já- kvæða breytan að vera karl og það að vera í kunn- ingja-fjölskyldutengslum. Agnes hélt fyrirlestur hér á Læknadögum nú í janúar síðastliðnum. Báð- ar þessar konur hafa átt sæti í sérfræðingahópi ESB um konur og vísindi sem birti skýrslu árið 2000 sem sýnir að konur standa verr að vígi í vísindum en karlar í ríkum ESB (ETAN-skýrslan). Kannanir sýna að það er tilhneiging til þess að gleyma kynjavíddinni ef ekki er hugað að henni sérstaklega og að breytingarnar gerast ekki af sjálfu sér. Aðeins með virkum aðgerðum verður já- kvæð þróun í þá átt að bæta stöðu kvenna í vís- indum. Víða í nágrannalöndunum hafa verið gerðar sérstakar aðgerðir til þess að efla og fjölga konum í vísindum og hér á landi þarf einnig að innleiða slíkt. Ólöf Sigurðardóttir Hötundur er formaður Félags kvenna í læknastétt. Frágangur fræðilegra greina Höfundar sendi tvær gerðir handrita til ritstjórnar Læknablaðsins, Hlíðasmára 8,201 Kópavogi. Annað án nafna höfunda, stofnana og án þakka sé um þær að ræða. Greininni fylgi yfirlýsing þess efnis að allir höfundar séu samþykkir iokaformi greinar og þeir afsali sér birtingarrétti til blaðsins. Handriti skal skilað með tvöföldu línubili á A-4 blöðum. Hver hluti skal byija á nýrri blaðsíðu í eftirtalinni röð: • Titilsíða: höfundar, stofnanir, Iykilorð á ensku og íslensku • Ágrip og heiti greinar á ensku • Ágrip á íslensku • Meginmál • Þakkir • Heimildir Töflur og myndir skulu vera á ensku eða íslensku, að vali höfunda. Tölvuunnar niyndir og gröf komi á rafrænu formi ásamt útprenti. Tölvugögn (data) að baki gröfum fylgi með, ekki er hægt að nýla myndir úr PowerPoint eða af netinu. Eftir lokafrágang berist allar greinar á tölvutæku formi með útprenti. Sjá upplýsingar um frágang fræðilegra greina: http://lb.icemed.is/ Umræðuhluti Skilafrestur efnis í næsta blað er 20. undanfarandi mánaðar nema annað sé tekið fram. Læknablaðið 2002/88 383

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.