Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.05.2002, Side 78

Læknablaðið - 15.05.2002, Side 78
RÁÐSTEFNUR / ÞING Ráðstefna SKÍ Krabbameins- rannsóknir á íslandi Samtök um krabbameinsrannsóknir á íslandi (SKÍ) í samvinnu við fræðslunefnd læknaráðs LSH boða til ráðstefnu í sal Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, 4. hæð, dagana 7.-8. maí, kl. 13:30-18:00. Efni ráðstefnunnar er tvíþætt: krabbameins- rannsóknir og persónuvernd. Framsöguerindi halda prófessor Julian Peto, faraldsfræðingur við Institute of Cancer Research, Sutton Surrey, dr. Haraldur Briem frá Persónuvernd, dr. Kristleifur Kristjánsson frá íslenski erfða- greiningu og dr. Nick Short frá Urði Verðandi Skuld. Auk þess verður kynnt innsent efni með erindum og veggspjöldum. Ráðstefnan er opin öllum áhugamönnum um krabbameinsrannsóknir. Sjötta vísindaþing Félags íslenskra heimilislækna Borgarnesi 25.-26. október 2002 Á þinginu verða bæði frjálsir fyrirlestrar og spjalda- þing. Kynntar verða rannsóknir og rannsóknaráætl- anir sem tengjast heilsugæslu. Auk þess verða bæði innlendir og erlendir gestafyrirlesarar. Ágrip skal skrifa á A4-blað með sama sniði og á fyrri þingum. Þar skal koma fram tilgangur rannsóknar- innar, efniviður og aðferðir, niðurstöður og ályktanir. Ágripum skal skila á disklingum ásamt einu útprenti til Emils L. Sigurðssonar (emil1@islandia.is), Heilsu- gæslustöðinni Sólvangi, 220 Hafnarfirði fyrir 1. september. Ágripin verða birt í sérstöku blaði þingsins sem dreift verður til allra lækna á íslandi. Vísindaþingsnefndin Emergency Medicine Between Continents Alþjóðlegt þing á vegum Félags íslenskra bráða- lækna, Landspítala og Læknadeildar Háskóla ís- lands verður haldið í Háskólabíói dagana 9.-13. júní 2002. Á þinginu verður fjallað meðal annars um bráð öndunarvandamál hjá börnum og full- orðnum og meðferð þeirra, fyrstu meðferð slasaðra, áverka á heila og mænu, lost, brjóstverki og hjartsláttartruflanir. Einnig verða fyrirlestrar um eiturefnafræði, sýkingar í börnum, heimilisofbeldi og misnotkun barna. Verkleg kennsla verður meðal annars í með- ferð áverka á hendur, úrlestri hjartalínurita og meðferð öndunarvegar. Fyrirlesarar koma allir úr fremstu röð lækna bæði vestanhafs og austan. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu: www2.landspitali.is/congress/emergency2002/ Verð fyrir íslenska sérfræðilækna er kr. 39.000 fyrir allt þingið, eða kr. 15.000 fyrir einstaka daga, fyrir ung- lækna og aðrar heilbrigðisstéttir kr. 29.000 allt þingið, eða kr. 12.000 á dag, og fyrir læknanema kr. 5.000, eða kr. 2.000 á dag. Taka þarf fram í athugasemdum við skráningu hvort um er að ræða íslenska lækna eða aðra heil- brigðisstarfsmenn. Nánari upplýsingar veita Brynj- ólfur Mogensen, Mary Palmer og Theodór Frið- riksson, slysa- og bráðasviði Landspítala Fossvogi, s. 543-1000, eða Inga Sólnes, Gestamóttökunni, s. 551-1730. 454 Læknablaðið 2002/88

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.