Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2005, Síða 9

Læknablaðið - 15.04.2005, Síða 9
RITSTJÓRNARGREINAR Læknar og nýr spítali Hlutirnir gerast hratt þessar vikurnar. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá 18. janúar síðastliðnum setti allt af stað. Forvali hönnuða sem bjóða í skipu- lagningu spítalasvæðisins lýkur í apríl og tillögur þeirra sem til greina koma eiga að liggja fyrir í haust. Á heimasíðu Landspítala má líta margvísleg gögn sem skýra framvinduna, meðal annars fyrri ákvarðanir framtíðarnefndar og forsendur fyrir staðarvali. Þó hratt gangi þessa stundina er ráð- gert að undirbúningur byggingar nýs spítala taki nokkur ár. Læknum ber að taka virkan þátt í hönnun nýs spítala. Deila má um staðarval en þeir sem eru ósáttir við fyrirliggjandi ákvörðun Landspítala ættu að safna liði sem fyrst því stóru skipi verður ekki snúið á punktinum. Þó sátt verði um reitinn milli gömlu og nýju Hringbrautarinnar vakna samt sem áður margar áleitnar spurningar sem læknar verða að taka afstöðu til og svara, til dæmis hvaða byggingum skuli fórnað og hverjar standa áfram og þá hvaða hlutverki þær gegni. Má rífa geðdeildina eða nýja barnaspítalann? Hvað á að gera við gamla Borgarspítalann? Nær maður vinstri beygju inn á spítalann á morgnana? Verða einhver bflastæði við nýja spítalann? Hvert fer allt frárennslið? Hönnun sjúkrahúsa er svo sem ekkert nýtt fyr- irbæri en í þessu tilfelli fáum við bara eitt tækifæri og við gerum þá kröfu að niðurstaðan verði vel heppnuð. Þungamiðja hönnunarvinnu sem snýr að læknum varðar skipulag einstakra deilda. Hér reynir á yfirlækna þessara deilda og þeir verða að mæta vel undirbúnir til þess verks. Gamall refur missti það nýlega út úr sér að í svona verkefni ætti yfirstjórnin að leggja línurnar, verkstjórarnir kafa djúpt í hönnunina en millistjórnendurnir koma hvergi nálægt. Þetta leiðir hugann að ábyrgð og valdi yfirlækna einstakra deilda, og fyrst verið er að nefna það þá má segja það sama um hjúkrun- arþáttinn. Lögin skilja að ábyrgð þessara tveggja stétta og eiginlega er eini yfirmaður beggja sjálfur forstjórinn. Verkstjórar hjúkrunar og lækninga á hverri deild verða að vera samstíga ella flyst ákvörðunartakan upp eftir þrepum stjórnkerf- isins. Læknar geta ekki vikið sér undan ábyrgð á hönnun sinna deilda. Þeir verða sjálfir að afla sér þekkingar, leita ráða og spyrjast fyrir. Næstu miss- eri verða afgerandi fyrir framtíð einstakra deilda og sérgreina. Það á svo eftir að koma í ljós hvort yfirstjórn spítalans ætlist til einhvers framlags af hálfu lækna einstakra deilda við hönnun spítalans. Það er svo sérstakt íhugunarefni hvað hægt er að skrifa langt mál um nýja spítalann án þess að víkja einu orði að sjúklingunum. Kröfur starfs- manna um aðbúnað verða sjálfsagt áberandi en gleymum ekki hverjum á að þjóna. Kristján Guðmundsson Höfundur er háls-, nef- og eyrnalæknir. Læknablaðið 2005/91 325

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.