Læknablaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 37
FRÆÐIGREINAR / KLÍNÍSKAR
LEIÐBEININGAR
LANDSP
TALA
Klínískar leiðbeiningar Landspítala um
greiningu og meðferð bráðaversnunar
á astma
í janúar 2003 voru gefnar út á vegum Scottish
Intercollegiate Guidelines (SIGN) og The British
Thoracic Society vandaðar leiðbeiningar um grein-
ingu og meðferð bráðrar versnunar á astma. Birt-
ust leiðbeiningarnar í Thorax 2003; 58 (Suppl 1)
og eru aðgengilegar á pdf-formi á slóðinni:
www.sign.ac.uk/guidelines/fulltext/63/index. html
Ástæða þess að talið var æskilegt að þýða og
staðfæra hluta leiðbeininganna hér á landi var að
um algengt bráðavandamál er að ræða sem læknar
þurfa að vera færir um að bregðast við. Því er til
mikilla bóta ef hægt er að nálgast einfaldar og
skýrar leiðbeiningar um greiningu og meðferð
þessara sjúklinga. Rétt er að benda á að heildar-
leiðbeiningarnar frá SIGN eru mjög ítarlegar og
taka meðal annars til astma í börnum, astma á
meðgöngu auk almenns fróðleiks um greiningu og
meðferð sjúkdómsins.
Vinnuhópurinn sem tók að sér að þýða og
staðfæra þessar leiðbeiningar um bráðaversnun á
astrna var skipaður eftirtöldunr;
Hjalti Már Björnsson, deildarlæknir
Gunnar Guðmundsson, lungnalæknir
Jón Steinar Jónsson, heilsugæslulæknir
Unnur Steina Björnsdóttir, ofnæmislæknir
Inga Sif Ólafsdóttir, deildarlæknir
Ari J. Jóhannesson, formaður nefndar um klín-
ískar leiðbeiningar á Landspítala.
Þar sem um er að ræða gagnreynda (evidence
based) ferla voru óverulegar breytingar gerðar
á þeim við þýðingu. Nánari sundurliðun á öllum
breytingum sem gerðar voru má finna á vefsvæði
kínískra leiðbeininga á www.landspilali.is
Uppsetning ferlanna miðast við að auðvelt sé
að prenta þá út og hafa á veggspjöldum þar sem
þeirra er þörf.
Hámarks útöndunarflæði
heilbrigóra fullorðinna
Fyrirspurnir og bréfaskriftir:
Gunnar Guðmundsson
ggudmund@landspitali. is
Læknablaðið 2005/91 353