Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 69

Læknablaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 57 Af góðum fréttum og nærfötum Góðar fréttir eða slæmar Kvensjúkdómalæknirinn kom til baka inn í viðtals- herbergið með rannsóknarniðurstöðurnar. „Ég er með góðar fréttir, frú mín góð.“ „Fyrirgefðu læknir, ég er ungfrú, ef þér er sama.“ „Afsakaðu en þá er ég með slæmar fréttir, ung- frú mín góð.“ Ekki gott útlit Það var á stofugangi á gæsludeild á háskólasjúkra- húsi rétt eftir vaktaskipti. Læknir sem var nýkom- inn á vakt gekk á milli sjúklinga til að meta hver ætti að útskrifast og hver ætti að leggjast inn á sjúkrahúsið til frekari rannsókna. Hjúkrunarfræð- ingurinn sem gekk með lækninum þekkti nokkuð vel til sjúklinganna. „Þessi sem liggur inni á næstu stofu er einn af forstjórum bæjarins og konan sem er inni hjá honum er ekki dóttir hans heldur eigin- konan.“ Sjúklingurinn virtist ekki alveg áttaður, var fölur að sjá og lalsvert móður. Læknirinn bað eigin- konuna að koma með sér fram á ganginn. „Ég verð að vera hreinskilinn við þig, en mér líst ekki á hvernig nraðurinn þinn lítur út,“ sagði læknirinn. „Ekki mér heldur,“ sagði konan, „en hann er ríkur og einstaklega góður við börnin.“ Nærföt fyrir konuna Eiginkonan var flutt í skyndi á sjúkrahús þannig að ekkert ráðrúm gafst til að taka með það nauð- synlegasta. Þegar aðeins bráði af henni hringdi hún í maka sinn og bað hann að taka til „þægileg nærföt“ handa henni og koma með þau á spítalann. Eiginmaðurinn var ekki viss hvað henni þætti vera þægilegt og spurði: „Hvernig á ég að vita hvaða nærföt ég á að velja?" „Taktu þau upp og ímyndaðu þér að ég sé í þeim,“ svaraði konan. „Ef þú ferð að brosa þá skaltu leggja þau aftur í skúffuna." Töfralampinn Lýtalæknir og eiginkona hans gengu á ströndinni og fundu gamlan olíulampa. Þegar þau struku sandinn af honum birtist skyndilega töfradís sem bauð hvoru um sig að óska sér einu sinni. „Ja hérna,“ sagði konan, „ég er fjörutíuogfimm ára og kominn tími til að ég eignist það sem mér ber. Ég óska mér tvöhundruð milljón króna óðalsseturs með útsýni yfir ströndina." Og-púff- eiginkonan hvarf og stórkostleg bygging birtist skammt frá. „En hvers óskar þú þér?“ spurði dísin lækninn. „Já ég skal sko segja þér hvers ég óska mér,“ sagði læknirinn. „Ég óska mér að ég væri kvænt- ur konu sem er helmingi yngri en ég.“ Og - púff - karlinn varð allt í einu níutíu ára gamall. Allir með öllum Áhyggjufullur faðir hringdi í heimilislækninn í litlum bæ úti á landi og sagðist vera hræddur um að unglingurinn sonur hans hefði náð sér í kyn- sjúkdóm. „Hann segist ekki hafa sofið hjá neinni nema vinnukonunni þannig að hann hlýtur að hafa smit- ast af henni.“ „Hafðu ekki svo miklar áhyggjur af því,“ sagði læknirinn, „svona hlutir gerast nú bara.“ „Ég veit það, læknir,“ sagði pabbinn, „en ég verð að viðurkenna að ég hef líka sofið hjá vinnu- konunni og er kominn nreð sönru einkenni og son- urinn. Og það sem verra er, ég held ég hafi smitað eiginkonu mína.“ „Guð minn góður,“ sagði læknirinn, „þá sitja nú fleiri í súpunni.“ Smitaður vinur „Hvað heldur þú að best sé að gera, læknir? Ég á vin og ég held að hann sé kominn með kynsjúk- dóm,“ sagði ungur maður við lækninn sinn og fór allur hjá sér. „Einmitt það,“ sagði læknirinn, „viltu ekki leysa niður um þig buxurnar þannig að ég geti skoðað vininn?" Tvíblind rannsókn Hvað er tvíblind rannsókn? Það gæti verið tveir bæklunarlæknar að lesa úr hjartalínuriti. Blöð í biðstofunni Á skilti í biðstofunni stóö letrað: VINSAMLEGAST FJARLÆGIÐ EKKI BLÖÐ- IN ÚR BIÐSTOFUNNI. MÓTTÖKURITAR- INN GETUR SAGT YKKUR HVERNIG SÖG- URNAR ENDA. Andremma Maður á miðjum aldri kom til læknis og vildi fá hjálp vegna þess hve andfúll hann væri. Eftir að hafa skoðað manninn sagði læknirinn: „Annaðhvort skaltu hætta að naga á þér neglurnar eða hætta að klóra þér í afturendanum.“ Bjarni Jónasson bjarni.jonasson@hg.is Bjami er heimilislæknir í Garðabæ. Læknablaðið 2005/91 385
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.