Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.04.2005, Qupperneq 20

Læknablaðið - 15.04.2005, Qupperneq 20
FRÆÐIGREINAR / SJÚKRASKRÁNING Tafla 1. Study locations Catchment 75+ years Area N (%) Bispebjerg. Univ. Hospital. Copenhagen. (D) 210000 21000 (10) Umeá Univ. Hospital. Umeá. (S) 140000 9900(7.1) Laakso Hospital. Helsinki. (F) 100000 7400 (7.4) Reykjavik Univ. Hospital. Reykjvik(l) 170000 9400 (5.5) Diakonhjemmet Hospital Oslo. (N) 90000 8000 (8.9) D=Denmark. S=Sweden. F=Finland. I=lceland. N=Norway Tafla II. Comparison between participating countries lceland Denmark Finland Norway Sweden Total No 80 98 78 80 81 417 Mean Age 83.6 84.4 83.4 83.4 83.2 83.6 Sex % M/F 29/71 28/72 22/78 44/56 31/69 30/70 Adm from home % 92 96 99 88 95 94 Adm from instit. % 8 4 1 12 5 6 IADL mean (0-21) 7.9 10.8 11.0 7.4 7.5 9.0 ADL mean ( 0-6) 0.24 0.41 0.97 0.59 0.27 0.49 CPS mean (0-6) 1.01 0.80 0.71 0.74 0.32 0.72 LOS 18.0 17.4 15.2 8.5 6.3 13.2 ADL=Activities of Daily Life (scale 0-6. 0=unimpaired. 6=Severe impairment). IADL=lnstrumental Activities of Daily life (scale 0-21. 0=unimpaired. 21=severe impairment) CPS=Cognitive Performance scale (Scale 0-6. 0=unimpaired. 6=severe impairment) LOS=Length of stay atriða og meðvirkra sjúkdóma með stöðluðu mats- tæki eins og MDS-AC. Inngangur Hlutfall aldraðra fer vaxandi meðal þeirra sem sækja þurfa bráðaþjónustu sjúkrahúsa. Hinn aldr- aða sjúkling einkenna aldurstengdar lífeðlisfræði- legar breytingar, fjölþættur vandi, fjöllyfjanotkun og margvfsleg færniskerðing. Bein ástæða innlagn- ar er oftar en ekki aðeins hluti þeirra vandamála sem veldur bráðri færniskerðingu aldraðra og heildrænt mat þarf að gera til að mæta rétt þörfum þessa hóps. Vinnuferli það sem beitt er í bráða- þjónustu er þó enn sniðið að þörfum tillölulega yngri hóps með fá samvirk vandamál. Þörf gæti verið á breyttum vinnubrögðum til að þjónusta betur aldraða skjólstæðinga sjúkrahúsanna (1). í mörgum rannsóknum hefur verið sýnt fram á gagnsemi heildræns öldrunarmats í þjónustu við aldraða sjúklinga. Þar sem sívaxandi krafa er um stuttan legutíma á bráðadeildum verður æ mikil- vægara að geta sniðið þjónustuna hratt og skilvirkt að þörfum hvers einstaklings og greint snemma samvirk heilsufarsvandamál, færniskerðingu og fé- lagslega þætti sem áhrif hafa á horfur (2,3). Það er með þetta í huga sem MDS-AC (Minimum Data Set for Acute Care) tækið var þróað. MDS-AC er staðlað tæki til heildræns öldrunarmats í bráða- Bakgrunnsupplýsingar Fjötrar og höft ADL og IADL færni Byltur Vitræn geta Húð og fætur Stjórn á hægðum og þvagi Næring og munnheilsa Tjáskipti og skynjun Bjargráö viö útskrift Verkir Tilvísun og þjónusta Hugarástand og atferli Lyfjanotkun Innan hvers sviðs eru mismargar breytur til frekari greiningar. ADL = athafnir daglegs lífs IADL = almennar athafnir daglegs lífs Mynd 1. Lykilsvið MDS-AC lœkisins. þjónustu, hannað til að finna samvirk vandamál hjá hinum aldraða svo gera megi þjónustuna skil- virkari og til að auðvelda upplýsingaflæði milli aðila í þjónustunni. Hliðstæða þessa tækis fyrir hjúkrunarheimili, svokallað RAI mat (MDS-NH), hefur verið notað á fslandi í um áratug (4). Rannsóknir sýna að oft er misbrestur á skrán- ingu mikilvægra vandamála í hefðbundnum sjúkra- skrám. Þetta á við um atriði eins og bráðarugl, hjartabilunareinkenni, afleiðingar sykursýki og lyfjanotkun svo eitthvað sé nefnt og gildir bæði um læknaskráningu og hjúkrunarskráningu (5-9). Slík vanskráning getur haft áhrif á rétta meðferð eða þjónustu við sjúklinginn. Markmið þessarar rannsóknar var að bera skráningu með MDS-AC tækinu saman við skrán- ingu lækna og hjúkrunarfræðinga í hefðbundna sjúkraskrá á lyflækningadeildum bráðasjúkra- húss. íslensku niðurstöðurnar voru einnig bornar saman við meðaltal samskonar skoðunar á hinum Norðurlöndunum. Efniviður og aðferð Niðurstöðurnar sem birtar eru hér eru hluti af samnorrænni rannsókn þar sem MDS-AC öldr- unarmatstækið, gerð 1,1, var prófað til að finna spáþætti fyrir útkomu meðal aldraðra bráðadeild- arsjúklinga. Tækið var þýtt á tungu hvers þátt- tökulands. MDS-AC mælitækið er sérhannað til notkunar í bráðaþjónustu. Tækið spannar 14 lykil- svið með 56 stöðluðum breytum (sjá mynd 1). Það tekur 30-45 mínútur að leggja matið fyrir. Áreið- anleiki matsins hefur verið sannreyndur (10). Rannsóknin fór fram á lyflækningadeildum val- inna bráðasjúkrahúsa á Norðurlöndunum fimm. Hvert sjúkrahús um sig hafði upptökusvæði fyrir að minnsta kosti 90.000 manns, (tafla 1), og tóku við bráðainnlögnum úr öllum greinum lyflækninga á sínu upptökusvæði. Gagnasöfnun fór fram á tímabilinu janúar 2001 til apríl 2002. Um gagnasöfnun í löndunum sáu ýmist öldrunarlæknar eða hjúkrunarfræðingar þjálfaðir í notkun MDS-AC tækisins. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki af innlagnarlistum 336 Læknablaðið 2005/91
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.