Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.04.2005, Qupperneq 46

Læknablaðið - 15.04.2005, Qupperneq 46
UMRÆÐA & FRÉTTIR / GAGNAGRUNNUR Á HEILBRIGÐISSVIÐI Er gagnagrunnurinn endanlega úr sögunni? Þröstur Haraldsson í grein sem birtist í byrjun febrúar (1) í bandaríska læknaritinu New England Journal of Medicine (NEJM) er fjallað um persónuvernd og frið- helgi einkalífsins og hvort hún nái út yfir gröf og dauða ef svo má segja. Rakin eru tvö dæmi frá Bandaríkjunum þar sem deilt var annars vegar um rétt blaðaljósmyndara til að taka myndir af kistum bandarískra hermanna sem féllu í Irak og hins vegar um aðgang fjölmiðla að ljósmyndum af líki Vincent W. Foster sem var náinn vinur og ráðgjafi Bills Clinton forseta en hann framdi sjálfsmorð árið 1993. Þriðja dæmið sem tekið er í greininni er „The Iceland Case“ en þar er átt við dóm Hæstaréttar Islands í máli Ragnhildar Guðniundsdóttur gegn íslenska ríkinu árið 2003. Eins og flestir muna vildi Ragnhildur ekki að heilsufarsupplýsingar um látinn föður hennar yrðu settar í miðlægan gagna- grunn á heilbrigðissviði. Dómurinn féll henni í vil og auk þess voru gerðar verulegar athugasemdir við gagnagrunnslögin sem dómarar töldu í ýmsum greinum brjóta í bág við stjórnarskrá eins og þessi málsgrein er til vilnis urn: „Talið var að þótt í einstökum ákvæðum laga nr. 139/1998 væri ítrekað skírskotað til þess að heilsu- farsupplýsingar í gagnagrunni á heilbrigðissviði eigi að vera ópersónugreinanlegar þá skorti mjög á aö tryggt sé nægilega, nieð ákvæðum settra laga, að þessu yfirlýsta markmiði verði náð. Vegna þeirra skyldna sem 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar leggi á löggjafann geti ýmiss konar eftirlit með gerð og starfrækslu gagnagrunnsins ekki komið hér í stað- inn, án þess að við ákveðnar lögmæltar viðmiðanir sé að styðjast." (2) Lögin í endurskoðun Eftir að þessi dómur féll uröu nokkrar umræður um gagnagrunnslögin og kom þá fram að Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hygðist taka lögin til endurskoðunar. Síðan hefur ekkert frést af málinu en í ljósi skrifanna í NEJM grennslaðist Læknablaðið fyrir um það hvað þessari endurskoð- un liði. Að sögn Guðríðar Þorsteinsdóttur skrifstofu- stjóra heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins hefur verið unnið að endurskoðun laganna en það hefur ekki verið lagt fram og óvíst hvenær af því verður. „Endurskoðunin snýst eingöngu um að setja ítarlegri ákvæði inn í lögin eins og dómur hæstaréttar kallar eftir. Það þarf að færa ýmis ákvæði sem nú eru í reglugerð eða rekstrarleyfi inn í sjálf lögin. Þetta snýst því frekar uni form en efni enda er ekki hróflað við meginhugsun laganna. Dómurinn fellst á þá dulkóðun sem lögin kveða á um,“ sagði Guðríður. Guðríður vísaði til Davíðs A. Gunnarssonar ráðuneytisstjóra þegar spurt var hvenær búast mætti við því að frumvarp að breytingum yrði lagt frani á þingi. Davíð kvaðst heldur ekki geta sagt til um hvenær frunrvarpið yrði lagt fram, ráðherra hefði ekki tekið ákvörðun um það enn. Það má svo sem segja með réttu að meðan ekki er unnið að gerð gagnagrunnsins sé lítil þörf á að lagfæra lögin um hann. Enginn veit hvort eða hvenær slík vinna hefst að nýju og kannski er ályktunin sem höfundur greinarinnar í NEJM dregur rétt en hann segir á einum stað: „Þessi dómur gerði endanlega út af við það sem eftir lifði af upphaflegum áætlunum deCODE um að búa til tölvuvæddan gagnagrunn með heilsufarsupplýs- ingum um alla þjóðina" (á ensku:This ruling killed whatever was left of deCODE’s original project to create a country-wide computerized database of medical records.) (1). Heimildir 1. Annas GJ. Family Privacy and Dcath - Antigonc, War, and Medical Research. N Engl J Med 2005; 352:501-5. 2. Dómur Hæstaréttar Islands nr. 151/203,27. nóvember 2003. Orlof 2005 - læknar athugið! Enn lausar vikur í sumar á Alicante og í Barsilóna. Umsóknarfrestur fyrir innlendar umsóknir í sumar rennur út 7. apríl. Meldið ykkur til Guðrúnar Arnardóttur á skrifstofu læknafélaganna í síma 564 4100 eða gunna@lis.is 362 Læknablaðið 2005/91
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.