Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2005, Page 57

Læknablaðið - 15.04.2005, Page 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ARFUR JÓNS STEFFENSEN vegum menntamálaráðuneytis efnt til samkeppni um hönnun nýbyggingar fyrir safnið skammt frá Nes- stofu og er fjallað um það í næstu opnu blaðsins. / verðlaunatillögunni er gert ráð fyrir að nýbygg- iitgin rísi þar sem örin bendir neðan við hólinn sem mun vera gamall sorp- haugur. Hver á að byggja? Eftir að LÍ hafði afhent ríkinu Bygggarða 7 gerðist fátt í málefnum safnsins og á aðalfundi skömmu eftir afhendinguna var samþykkt ályktun þess efnis að félagið legði ekki meira fé til Nesstofusafns að Bygggarðar 7 sem Lækna- félag íslands keyptifyrir arfJóns Steffensen og fœrði Þjóðminjasafninu að gjöf. ildir um sögu þjóðarinnar. Sum þessara beina eru með áberandi sjúklegunr breytingum og væri eðlilegast að varðveita þau í safni rannsóknarstofnunar sögu læknisfræðinnar, bæði sem sýningargripi og til rannsókna á sögu sjúkdómanna. Heilbrigðu beinin færi best á að þau yrðu áfram á vegunr rannsóknarstofu í líffærafræði, en bæði beinasöfnin þurfa að vera aðgengileg til rannsókna. Að öðru leyti yrði þáttur háskóla og læknadeildar sá, að efla getu rannsóknarstofnunar sögu læknisfræðinnar, til þekkingar- öflunar og miðlunar á sínu sérsviði. Forstöðumaður stofnun- arinnar teldist til kennaraliðs læknadeildar, án þess þó, að þar nreð sé verið að hugsa um sögu læknisfræðinnar sem skyldunám við þá deild, enda á sviði fyrirhugaðrar nefndar að fjalla um það. En æskilegt væri að forstöðumaðurinn flytti árlega nokkra fyrirlestra um sögu læknisfræðinnar svo þeim sem áhuga hefðu á því gæfist kostur á nokkurri fræðslu í henni. Ennfremur leið- beini hann þeim er hafa hug á ákveðnu rannsóknarefni til úr- vinnslu í stofnuninni. Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar var stofnað 18. des. 1964 til að efla þekkingu á sögu læknisfræðinnar og jafnframt með það í huga að skapa íslenskan samstarfsaðila að Nordisk medicinhistorisk Ársbok, sem hliðstæð félög á hinum Norðurlöndunum stóðu að. Frá og með árbók 1965 hefur íslenska félagið verið meðútgefandi hennar og félagar þess lagt til efni í hverja árbók. Ef rannsóknarstofnun sögu læknisfræð- innar kæmist á laggirnar, þá yrði hún sjálfsagður aðili að útgáfu árbókarinnar, en Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar yrði þá að styrktarsamtökum stofnunarinnar á líkan hátt og Fornleifafélagið er nú samtök manna til styrktar starfsemi Þjóðminjasafns. Ef ríkisstjórn íslands getur fallist á þau meginsjónarmið er hér hafa verið sett fram og kaupir Nesstofu og afhendir Þjóðminjasafni til umræddra nota, vorum við hjónin búin að ákveða að afhenda ríkinu tvær milljónir króna til lagfæringa á Nesstofu. Þessu framlagi myndi ég vilja haga svo að helminginn afhenti ég á þessu ári og hinn helminginn á næsta ári. Og er það þá hugmynd mín, að undirbúningsvinna gæti hafist sem allra fyrst svo unnt væri að hefja vinnu við húsið þegar er það losnaði. Síðar meir er línurnar tækju að skýrast og sýnt væri að þær vonir er ég bind við framtíð rannsóknarstofnunar sögu læknis- fræðinnar muni rætast, hefi ég hugsað mér að það af bókasafni mínu er hefur gildi fyrir sögu læknisfræðinnar, en meginstofn- inn í því hefur sérstakt gildi fyrir sögu íslenskra heilbrigðismála, renni til stofnunarinnar. Reykjavík 23. september 1972. Virðingarfyllst Jón Steffensen Til Menntamálaráðherra. Læknablaðið 2005/91 373

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.