Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2005, Page 59

Læknablaðið - 15.04.2005, Page 59
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ARFUR JÓNS STEFFENSEN við Læknablaðið sagði hún að það væri í verkahring Seltjarnarnesbæjar að byggja nýtt sýningarhús. Ekki vildi Jónmundur bæjarstjóri fallast á þetta sjónarmið. Hann sagði að fjármagnið til nýbygg- ingar hlyti að koma frá Þjóðminjasafninu, það hefði aldrei komið til tals að Seltjarnarnesbær legði fjármagn í slíkt hús. Jón tók upp veskið Jónmundur bætti því við að bærinn hefði gert samn- ing við Þjóðminjasafnið haustið 2003 um endur- bætur á Nesstofu. Samkvæmt honum tæki bærinn að sér að lagfæra umhverfi hússins en safnið sæi um endurbætur á húsinu. Samkvæmt samningnum á að verja tæplega 50 milljónum króna til þessara framkvæmda og skiptist það nokkurn veginn jafnt á bæinn og safnið. Búið er að hanna umhverfi safnsins og voru tillögur arkitekts um það samþykktar í bæj- arstjórn skömmu fyrir jól. Verður væntanlega hafist handa um framkvæmdir utanhúss nú á vordögum. Þorsteinn Gunnarsson arkitekt stjórnar hins vegar endurbótum innanhúss og sagði hann í sam- tali við Læknablaðið að verkefnið væri að ljúka því sem eftir var af húsinu. Það er austurhelmingur hússins þar sem íbúð Bjarna landlæknis var, stofa, eldhús, svefnherbergi, forstofa með stiga upp á loft og loftið sjálft en til stæði að innrétta tvö herbergi í suðurenda þess. Þorsteinn sagði að unnið væri eftir þriggja ára áætlun, nú væri fyrsta árið búið en verkinu lyki í árslok 2006. Þá yrði allt húsið komið sem næst í upprunalegt horf. Til gamans má geta þess að Þorsteinn stjórnaði á sínum tíma fyrri hluta endurbóta á Nesstofu. Þá var Jón Steffensen á lífi og fylgdist með fram- kvæmdum. „Hann vakti yfir mér og gaf mér góð ráð,“ segir Þorsteinn. „Og ár eftir ár gerðist það þegar framlag ríkisins var uppurið að Jón tók upp veskið og borgaði það sem upp á vantaði úr eigin vasa svo hægt væri að halda áfram að vinna.“ Að ofan má sjá líkan af Nesstofutorfunni eins og hún liti út ef sýningarhúsið verður reist. Það er nœst, hús lyfjafrœðinga er til vinstrí og Nesstofa fjœrst. Grunnmynd af sýningar- húsinu. Þar er gert ráð fyrir stórum og smœrri sýningarsölum, bókasafni, fyrirlestrarsal og vinnuað- stöðu fyrir frœðimenn. Læknablaðið 2005/91 375

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.