Fréttatíminn - 05.12.2014, Page 33
Train Smarter with
the Kinetic inRide
and inRide App.
Learn more about power training at: kurtkinetic.com/inride
KRÍA HJÓL - GRANDAGARÐUR 7 - 101 REYKJAVÍK s.5349164 INFO@KRIAHJOL.IS
KINETIC ROAD MACHINE
+ inRIDE WATT METER
Smart-phone* based
costing hundreds more.
Kinetic2015_inRide_100x100.indd 2 10/22/14 1:10 PM
* Works with Apple™ iOS devices with Bluetooth Smart®
Hraunbær 123 | s. 550 9800 | skatar.is
Gæðajólatré - sem endist ár eftir ár!
Þessi jólatré eru í hæsta gæðaflokki auk
þess að vera mjög falleg og líkjast þannig
raunverulegum trjám. Einföld samsetning.
Fæst einnig í Hagkaupi
Smáralind, Skeifunni og Garðabæ.
• Ekkert barr að ryksuga
• Ekki ofnæmisvaldandi
• 12 stærðir (60-500 cm)
• Íslenskar leiðbeiningar
• Eldtraust
• Engin vökvun
• 10 ára ábyrgð
• Stálfótur fylgir
Opnunartímar:
Virkir dagar kl. 09-18
Laugardagar kl. 11-18
Sunnudagar kl. 12-18
Falleg jólatré
M
ig langaði upphaflega að gera
mynd með kómísku ívafi og
þessi mynd verður það en með
alvarlegri undirtóni en ég bjóst
við í upphafi,“ segir Anna Gunn-
dís Guðmundsdóttir, leikkona og
verðandi kvikmyndaleikstjóri. Anna Gunndís stendur
fyrir söfnun á KarolinaFund til að fjármagna sína
fyrstu stuttmynd og ef allt gengur eftir óskum munu
tökur hefjast í janúar. Myndin mun fjalla um slys sem
Anna Gunndís lenti sjálf í þegar hún var átta ára.
Kökubaksturinn endaði með hryllingi
„Skúffukaka er í minningunni eitthvað sem var alltaf
til á heimilinu,“ segir Anna Gunndís sem ólst upp á
Akureyri í hópi sjö systkina. „Þegar ég
var átta ára þá ákváðum við systurnar
að baka eina slíka því pabbi átti afmæli.
Ég var með hár niður á axlir og systir
mín sendi mig inn í herbergi til að ná í
teygju í hárið á mér áður en ég fengi að
snerta á handþeytaranum. Ég man að ég
taldi upp að fimm, nennti ekki að leita að
teygju, sagðist ekki finna neina og hún
afhenti mér þeytarann sem endaði með
því að deigið slettist upp um alla veggi,
ég snerist í hringi á gólfinu á meðan
þeytarinn tætti af mér hárið. Handþeyt-
arinn var gamall og stoppaði ekki strax
þó að honum væri kippt úr sambandi
þannig að á endanum reif ég hann af höfðinu á mér og
sat eftir hálfsköllótt,“ segir Anna Gunndís og bætir
því við hugsandi að þeytarinn sé líklegast ennþá til á
æskuheimilinu.
Slysið er einskonar táknmynd í mínu lífi
Tvær litlar systur ákveða að baka köku í tilefni afmælis pabba
þeirra. Hár yngri systurinnar festist í hrærivélinni með þeim
afleiðingum að helmingur þess tætist af. Önnur þessara systra
er leikkonan Anna Gunndís Guðmundsdóttir sem nú stundar
meistaranám í kvikmyndagerð í New York. Hún segir atvikið
hafa haft mikil áhrif á líf sitt og þegar kom að því að velja efni
í fyrstu stuttmyndina kom ekki önnur saga til greina. Anna
Gunndís safnar nú fyrir kostnaði á KarolinaFund og ef allt
gengur að óskum hefjast tökur í janúar.
Óttinn við að fá ekki hár
Eftir að gert hafði verið að sárum
Önnu Gunndísar á spítalanum var
lítið annað hægt að gera en að fara
aftur heim. „Þegar heim var komið
fékk ég sjokk í kjölfar slyssins sem
endaði með annarri ferð í sjúkrabíl
upp á spítala þar sem ég var sett
í allskyns rannsóknir. Það fannst
þó ekkert, en eftirköstin komu
fram í sífelldum höfuðverkjum
og mamma segir að ég hafi ekki
talað um slysið fyrr en sex
mánuðum síðar,“ segir Anna
Gunndís sem man hvað
sterkast eftir óttanum við að
fá kannski ekki aftur hár.
„Slysið hefur ekki verið
neinn dragbítur í mínu lífi
en það hefur orðið að eins-
konar táknmynd fyrir þá
veggi sem maður lendir í á
lífsleiðinni, sem hefur áhrif
á mann og fólkið í kringum
mann. Áföll og slys sem
þessi geta haft misalvarleg
áhrif á börn sem maður
gerir sér ekki grein fyrir
fyrr en síðar, eins og mar-
traðir, reiðiköst og svefn-
leysi. Sum börn þróa með
sér nýjan ótta eða verki sem
eiga sér engar raunveru-
legar orsakir. Mamma segir
að ég hafi þjáðst af höfuð-
verkjum í kjölfar slyssins
sem ég man lítið eftir. Ég reyndar
gerði ég mér upp ótta við lyftur og
brýr þegar ég var lítil en ég man
ekkert hvort það var fyrir eða eftir
slysið. Ég gerði mikið úr þessu en
man að ég var bara að ljúga,“ segir
Anna Gunndís og hlær að minn-
ingunni.
Langaði að skoða
systrasambandið
Hluti af námi Önnu Gunndísar
er að skila af sér einni stuttmynd
og í upphafi komu nokkrar sögur
til greina. Hún var þó fljót að sjá
að það var þessi saga sem stóð
hjarta hennar næst. „Mig langaði
að skrifa fyrir tvær stelpur, mig
langaði að vinna með börnum og
mig langaði að skoða kjarnann
í sambandi systra,“ segir Anna
Gunndís sem upplifði aftur ótt-
ann við hárlos meðan á handrita-
skrifunum stóð. „Þegar maður
sest niður og skrifar
þá kemur stundum
eitthvað til manns
og maður skilur
ekki endilega hvers
vegna, svo fattar
maður tenginguna
eftir á. Undanfarna
mánuði hef ég verið
með ótrúlega mikið
hárlos sem er hluti
af því að vera undir
miklu álagi, það er
ekki alltaf tími til
að sofa heila nótt
út af skólanum auk
þess sem ég er með
PCOS (Polycystic
ovary syndrome)
og hárlos er eitt af
einkennum þess. Ég
var því mikið með
hugann við hár og
óttann við að verða
sköllótt þegar ég byrjaði að skrifa.“
Vildi alltaf verða leikkona
„Ég hef alltaf verið heilluð bæði af
leikhúsi og kvikmyndum,“ segir
Anna Gunndís sem ákvað mjög
ung að hún vildi verða leikkona.
Henni datt þó aldrei í hug að hún
yrði kvikmyndaleikstjóri. „Ég
lærði leiklist í Listaháskólanum
og vann sem leikkona í nokkur ár
eftir útskrift en ég fór í raun fyrst
að njóta þess að
leika þegar ég
byrjaði að leika í
kvikmyndum og
sjónvarpi. Það er einhvernveginn
svo mikið frelsi til að mistakast,
ferlið er svo áhugavert og flókið
og formið krefst samvinnu svo
margra aðila sem mér finnst svo
heillandi. En þegar ég var yngri
þá sá ég ekki fyrir mér að ég yrði
kvikmyndaleikstjóri enda voru
engar fyrirmyndir til staðar til að
ég gæti fengið þá flugu í höfuðið.“
Komin með hugmynd
að næstu mynd
Anna Gunndís er bjartsýn á fram-
tíð íslenskrar kvikmyndagerðar.
„Ég sé óþrjótandi möguleika. Við
eigum fjöldann allan af hæfileika-
ríku og metnaðarfullu kvikmynda-
gerðarfólki og við höfum sögur
að segja, oft með svörtum húmor
og fallegu hjarta. Það eru bjartir
tímar fram undan, það getur bara
ekki annað verið,“ segir Anna
Gunndís sem er nú þegar komin
með hugmynd að útskriftarverk-
efni sínu sem er kvikmynd í fullri
lengd. Núna beinist þó öll hennar
athygli að sögu systranna sem
ákveða að baka saman skúffu-
köku. Ákvörðun sem hefur vægast
sagt afdrifaríkar afleiðingar á líf
þeirra beggja og allrar fjölskyld-
unnar. Svo afdrifaríkar að önnur
þeirra á eftir að segja sögu þeirra
í kvikmynd mörgum árum síðar.
„Sagan verður falleg, með fallegri
tónlist og eftirminnilegum pers-
ónum og vonandi skilur hún áhorf-
andann eftir með hlýindi í hjartanu
og bros á vör.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Anna Gunndís Guðmundsdóttir á heimili sínu í New York.
Hver er
Anna Gunndís
Guðmundsdóttir
Heimili: Brooklyn,
New York.
Hvaðan: Akureyri.
Menntun: B.F.A. í
leiklist frá Listahá-
skóla Íslands og
hálfnuð með M.F.A.
í kvikmyndaleik-
stjórn og handrita-
gerð í Tisch School
of the Arts.
Maki: Einar Aðal-
steinsson.
Börn: Engin.
Það besta og versta
við New York: Það
besta er Prospect
Park, það versta er
lestarstöðin á 34th
Street.
?
Þegar ég var
yngri þá sá
ég ekki fyrir
mér að ég yrði
kvikmynda-
leikstjóri enda
voru engar
fyrirmyndir til
staðar til að ég
gæti fengið þá
flugu í höfuðið.
24 viðtal Helgin 5.-7. desember 2014