Fréttatíminn - 05.12.2014, Page 39
M ér fannst svo skrítið að fara í tón-leikaferðalag um landið og vera að spila fyrir samlanda mína að öll lögin mín væru á ensku. Það var allt í lagi
meðan ég bjó í Englandi en nú þegar ég er búin að
vera einhver ár hér heima finnst mér ég verða að
geta spilað lög sem eru á íslensku. Við erum því
að vinna í plötu núna sem kemur á næsta ári, þetta
er „folk“-plata og öll lögin eru á íslensku,“ segir
Hafdís Huld Þrastardóttir tónlistarkona.
Kannski er ég orðin gömul
Fjögur ár eru síðan Hafdís Huld keypti sér hús í
Mosfellsdal og flutti heim eftir áralanga búsetu í
Bretlandi. Hún hefur komið sér vel fyrir. „Ég verð
væmin þegar ég tala um Mosfellsdalinn. Ég kom
úr stórborg og asanum sem henni fylgir og er nú
með hænur, hesta og hund og kött í kringum mig.
Vinir mínir grínast með að ég geri mér bæjarferð
einu sinni í viku en ég segi að það sé ekkert mál að
skjótast í bíó og svona. Það er meira að segja hægt
að panta pítsur hingað!“ segir hún.
Hafdís viðurkennir fúslega að margt hafi breyst
við flutningana. „Þú ferð á annað tempó hérna eins
og heyrist kannski á nýju plötunni. En kannski er
ég bara orðin gömul,“ segir Hafdís sem er 35 ára.
Hafdís Huld með
hesta, hund og hænur
Útgefendur tónlistarkonunnar Hafdísar Huldar í Bretlandi voru ekki par hrifnir
af því þegar hún ákvað að flytja til Íslands fyrir fjórum árum, í miðri kynningar-
herferð fyrir nýja plötu. Henni hefur þó gengið vel að gera út héðan, platan
Home fékk frábæra dóma úti í löndum og Hafdís er að gera útgáfusamning í
Asíu. Næst á dagskrá er að halda jólatónleika í eldhúsinu heima sem sendir
verða út á netinu – og að sinna blómstrandi búi í Mosfellsdalnum.
Framhald á næstu opnu
30 viðtal Helgin 5.-7. desember 2014