Læknablaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 4
Frágangur
fræðilegra greina
EFNISYFIRLIT
Höfundar sendi tvær gerðir handrita
til ritstjórnar Læknablaðsins,
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi.
Annað án nafna höfunda, stofnana
og án þakka sé um þær að ræða.
Greininni fylgi yfirlýsing þess efnis
að allir höfundar séu samþykkir
lokaformi greinar og þeir afsali sér
þirtingarrétti til þlaðsins.
Handriti skal skilað með tvöföldu
línubili á A-4 þlöðum. Hver hluti
skal byrja á nýrri blaðsíðu í
eftirtalinni röð:
• Titilsíða: höfundar, stofnanir,
lykilorð á ensku og íslensku
• Ágrip og heiti greinar á
ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
RITSTJÓRNARGREINAR
Bjarni Þjóðleifsson
Skorpulifur, lifrarbólga C
og áfengisneysla á íslandi
Áfengisstefna islendinga hefur borið góðan árangur.
Þrátt fyrir aukningu á heildarneyslu á seinustu árum er
neysla íslendinga ennþá sú lægsta sem finnst meðal
Evrópuþjóða.
Sigurður Guðmundsson
Inflúensa, quo vadis?
Útilokað er að segja til um hversu alvarlegur
heimsfaraldur verður. Hann mun valda búsifjum
um allan heim, hérlendis má búast við að
150.000 manns veikist.
FRÆÐIGREINAR
7
9
Töflur og myndir skulu vera bæði
á ensku eða íslensku.
Tölvuunnar myndir og gröf komi
á rafrænu formi ásamt útprenti.
Tölvugögn (data) að baki gröfum
fylgi með, ekki er hægt að nýta
myndir úr ÞowerÞoint eða af
netinu.
Páll Svavar Pálsson, Jón Gunnlaugur Jónasson, Sigurður Ólafsson
Lifrarbólga C: Rannsókn á vefjameinafræði og
tengslum við klíníska þætti
Lifrarbólga C er helsta orsök lifrarbólgu og skorpulifrar á Vesturlöndum. Lifrarbólguveira C smitar að-
allega við blóðblöndun og er sprautunotkun fíkla algengasti áhættuþátturinn. Af þeim sem smitast fá
50-80% langvinna lifrarbólgu og rannsóknir benda til að um 20-30% þeirra sjúklinga fái skorpulifur.
Lifrarbólga C er einnig algeng orsök lifrarfrumukrabbameins.
Eftir lokafrágang berist allar greinar
á tölvutæku formi með útprenti.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
www.laeknabladid.is/fragangur-
greina
Umræöuhluti
Þórólfur Guðnason, Guðrún Sigmundsdóttir, Haraldur Briem 1Í
Veirulyf gegn inflúensu og leiðbeiningar um
notkun þeirra í heimsfaraldri
Gerð viðbragðsáætlana vegna heimsfaraldurs inflúensu stendur nú sem hæst. Lyfjameðferð mun
gegna mikilvægu hlutverki. Hér er fjallað um veirulyf við meðferð á alvarlegri inflúensu og leiðbeint um
notkun þeirra. Mikilvægt er að sátt verði um notkun lyfjanna svo tryggð sé besta nýting þeirra birgða
sem til verða í landinu.
Skilafrestur efnis í næsta blað
er 20. hvers mánaðar nema
annað sé tekið fram.
Ólafur Á. Sveinsson, Helgi J. ísaksson Gunnar Guðmundsson
Trefjavefslungnabólga - yfirlitsgrein og helstu
niðurstöður íslenskra rannsókna
Trefjavefslungabólga er sjaldgæfur sjúkdómur en algengari en áður var talið og tíðni vex. Mikilvægt
er að hafa hana í huga hjá sjúklingum með þéttingar sem svara ekki hefðbundinni meðferð.
Sjúkdómurinn er vel skilgreindur með klínískum, myndrænum og vefjameinafræðilegum breytingum en
er breytilegur og verður meðferð ávallt að stjórnast af því.
4 LÆKNAblaðið 2007/93