Læknablaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 13
FRÆÐIGREINAR
LIFRARBÓLGA C
Páll Svavar
Pálsson1
námslæknir
Jón Gunnlaugur
Jónasson12
sérfræðingur í meinafræði
Sigurður
Ólafsson3
sérfræðingur í lyflækningum
og meltingarlækningum
Lykilorð:
lifrarbólga C, vefjameinafræði,
klínískir þættir.
’Læknadeild HÍ, 2rann-
sóknastofu í meinafræði
á 2Landspítala, 3melting-
arlækningum, lyflækn-
ingasviði I Landspítala
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Sigurður Ólafsson, melt-
ingarlækningar, lyflækn-
ingasviði I, Landspítala
Fossvogi,
108 Reykjavík.
sigurdol@landspitali. is
Lifrarbólga C:
Rannsókn á vefjameinafræði og
tengslum við klíníska þætti
Ágrip
Tilgangur: Lifrarbólga C er ein algengasta
orsök langvinnrar lifrarbólgu og skorpulifrar á
Vesturlöndum. Á undanförnum árum hefur stór
hópur íslendinga greinst með sjúkdóminn. Þessi
rannsókn miðaði að því að kanna bólguvirkni og
bandvefsmyndun í vefjasýnum sjúklinga með lifr-
arbólgu C og athuga tengsl við klíníska þætti.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var aftursæ
og náði til allra sjúklinga með lifrarbólgu C sem
fóru í lifrarsýnistöku á tímabilinu 1991-2000.
Upplýsinga var aflað um aldur, smitleið, smittíma,
lifrarpróf, samhliða sýkingar og fleira. Vefjasýni
voru endurskoðuð og metin var bólga og band-
vefsmyndun. Einnig var könnuð fylgni klínískra
þátta við niðurstöður úr vefjasýnum.
Niðurstöður: Alls 97 sjúklingar (58 karlar og 39
konur) uppfylltu skilmerki rannsóknarinnar og
var meðalaldur 35,6 ár (bil 11-64). Sprautufíklar
voru 77 (79,4%), blóðþegar 12 (12,4%) og hjá átta
(8,2%) var smitleið óþekkt. Áætlaður smittími
var 8,85 ár (bil 1-31). Meðaltal bólgudrepsstuðuls
var 2,84 (bil 0-8) og bandvefsstuðuls 0,95 (bil 0-6).
Alls voru 70 (72,6%) sjúklingar með enga/mjög
væga bólgu og 83 (85,5%) með enga/mjög væga
bandvefsmyndun. Einungis fjórir höfðu skorpu-
lifur. Fylgni var á milli áætlaðs aldurs við smit
og bandvefsmyndunar. Ekki var fylgni á milli
smittíma eða smitleiðar og vefjameinafræðilegra
þátta.
Ályktun: Sjúklingar með lifrarbólgu C sem fóru í
lifrarsýnistöku árin 1991-2000 höfðu væga bólgu
og bandvefsmyndun í lifur. Líklegasta skýringin
er tiltölulega stuttur smittími og lágur aldur.
Inngangur
Lifrarbólga C er ein algengasta orsök langvinnr-
ar lifrarbólgu og skorpulifrar á Vesturlöndum.
Lifrarbólguveira C smitar aðallega við blóð-
blöndun og algengasti áhættuþátturinn meðal
vestrænna þjóða er sprautunotkun fíkla. Af þeim
sem smitast fá 50-80% langvinna lifrarbólgu. Þá
benda rannsóknir til að allt að 20-30% sjúklinga
með langvinna lifrarbólgu C fái skorpulifur (1, 2).
Lifrarbólga C er einnig algeng orsök lifrarfrumu-
krabbameins (3). Þekktir eru nokkrir þættir sem
hafa áhrif á sjúkdómsgang, það er hvort og hversu
hratt smitaður einstaklingur fær skorpulifur. Hár
■MENGLISH SUMMARYMBHH
Pálsson PS, Jónasson JG, Ólafsson S
Hepatitis C: A clinical-histopathological study
Objective: Hepatitis C is a common cause of chronic
hepatitis and cirrhosis in Western countries. In recent years
a large group of individuals have been diagnosed with the
disease in lceland. The aim of this study was to investigate
histological parameters of patients with hepatitis C and to
correlate histolgical findings with clinical findings.
Materials and methods: In this retrospective study, all
patients diagnosed with hepatitis C in lceland that had a
liver biopsy in the years 1991-2001 were included. Data
on age, route of infection, duration of infection and co-
infection was obtained from medical records. Liver biopsy
specimens were evaluated and imflammatory activity
graded and the degree of fibrosis staged.
Results: In ali 97 patients (58 males, 39 females) were
included in the study. The mean age was 35.6 years (range
11 -64). Risk factros were intravenous drug abuse in 70
(72.6%), blood transfusion in 12 (12.4%) and eight had
no known risk factors. Estimated duration of infection
was 8.85 years (range 1-31). Average inflammatory grade
was 2.84 (range 0-8) and average fibrosis stage was 0.95
(range 0-6). The majoritiy (72.6%) of patients had minimal
or no inflammation and 85.5% had minimal or no fibrosis.
Only four patients had cirrhosis. Significant correlation was
observed between the age at infection and the degree of
fibrosis. No correlation was detected between the duration
of infection or route of infection and histopathological
parameters.
Conclusion: Patients with hepatitis C that underwent
a liver biopsy in 1991-2000 had mild histopathological
changes in the liver. This is most likely due to short
duration of infection and young age of the patients in this
study.
Key words: Hepatitis C, histopathology, ctinicai parameters.
Correspondence: Sigurður Ólafsson, sigurdol@landspitali.is
LÆKNAblaðið 2007/93 13