Læknablaðið - 15.01.2008, Page 45
U M R Æ Ð U R
O G FRÉTTIR
ORKUHÚSIÐ
ORKU
húsið
Læknastöðin
Röntgen
Sjúkraþjálfun
•• L £.
yfirstjórn á skrifstofu og engin í neinum forstjóra-
leik. Við erum með sömu yfirbyggingu í dag og
fyrir 10 árum þó veltan hafi aukist um 15% að
meðaltali á ári."
Á þessu ári eru um 3300 aðgerðir framkvæmdar
í Orkuhúsinu og Sigurður nefnir að fyrir nokkrum
árum taldist sjálfstætt starfandi sérfræðingum til
að um 15000 aðgerðir væru gerðar á þeim lækna-
stöðum sem starfandi eru á Reykjavíkursvæðinu.
Kostnaður ríkisins af starfsemi sjálfstætt starfandi
lækna er hins vegar aðeins um nokkur prósent
af heildarveltu íslenska heilbrigðiskerfsins. Það
munar um minna.
Hann segir að þetta rekstrarform hafi mótast af
þeim aðstæðum sem einkarekinni heilbrigðisþjón-
ustu séu búnar hérlendis. „Aðrar læknastöðvar
hafa einnig svipað form á sínum rekstri þar sem
hver og einn læknir sendir Tryggingastofnun
reikninga fyrir þau verk sem hann framkvæmir
og borgar síðan aðstöðugjöld til stöðvarinnar fyrir
afnot af skurðstofum og leigu fyrir læknastofu í
húsinu. Þetta er eins konar samstarf einyrkja þar
sem reynt er að ná sem mestri hagkvæmni við
rekstur sameiginlegra þátta. Með því að móta
þetta rétt og treysta fólki sem kann sitt fag til
að vinna sína vinnu þá gengur þetta ljómandi
vel. Ríkissjúkrahúsin mættu gjarnan taka þetta
rekstrarform sér til fyrirmyndar og í því liggur
ótvírætt gildi einkareksturs í heilbrigðisþjónustu.
Einkarekstri má samt ekki rugla saman við einka-
væðingu, bandaríska heilbrigðiskerfið eða afskipti
tryggingafélaga, þetta er einfaldlega aðferð til að
tryggja sem besta og um leið hagkvæmasta þjón-
ustu á heilbrigðissviði. Ríkið verður eftir sem áður
stærsti kaupandi þjónustunnar fyrir hönd borg-
aranna en við stefnum líka að því að eiga fleiri
viðsemjendur í framtíðinni en ríkið. Hér er kostn-
aður sjúklinganna ekkert meiri en annars staðar.
Hann verður aldrei meira en 18 þúsund krónur og
enn minni ef sjúklingur er með afsláttarkort."
ísland sem heilsuland
Þegar Sigurður er inntur nánar eftir því hvaða við-
semjendur hann hafi í huga aðra en íslenska ríkið
nefnir hann sem möguleika fyrirtæki fyrir hönd
starfsfólks síns, tryggingafélög og erlenda aðila
sem myndu senda hingað fólk til aðgerða. „Ég hef
fulla trú á íslandi sem heilsulandi og að hingað
muni í framtíðinni sækja fólk í auknum mæli, artn-
ars vegar til almennrar heilsubótar og hins vegar
til að sækja sér lækningar á heimsmælikvarða."
Sigurður Ásgeir Kristinsson
bæklunarlæknir og fram-
kvæmdastjóri Orkuhússins.
LÆKNAblaðið 2008/94 45