Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2008, Page 51

Læknablaðið - 15.01.2008, Page 51
U M R Æ Ð LYFJAIÐNAÐURINN OG U R Þ R O G FRÉTTIR ÓUNARLÖND Enn einn anginn af því að framfylgja skaðleys- isreglunni felst í notkun lyfleysa í samanburð- arrannsóknum á verkan lyfja, svo og á þeirri reglu sem sett var fram í endurskoðun á CIOMS leiðbeiningunum 2002 að bera eigi saman nýja meðhöndlun við bestu þekktu meðhöndlun hverju sinni (rammi 4). Við hvað á að bera saman í löndum þar sem engin meðhöndlun er í boði, þótt henni sé almennt beitt í betur stæðum ríkjum? Velgjörðarreglan er margþætt og flókin þegar kemur að rannsóknum í þróunarríkjum. Hversu strangt á að taka á þessari reglu? Augljóst er að prófanir á nýjum lyfjum, eins og aðrar lækn- isfræðilegar rannsóknir, leiða ekki nema í und- antekningartilvikum til beins ávinnings fyrir þátttakendur. Þegar kemur að þróunarlöndum aðhyllast sumir „Uniform Care Requirement" sem kveður á um að allir þátttakendur í fjölþjóðlegri rannsókn njóti sömu heilsugæslu og aðhlynningar. Þessar tillögur eru umdeildar, enda er ekki óyggjandi að slíkar skyldur hvíli raunverulega á herðum rann- sakenda í þrórmarlöndum frekar en annars staðar og þær hækka óneitanlega kostnaðinn við rann- sóknina til muna. Þannig hafa verið færð rök fyrir því að kröfur sem þessar geti komið í veg fyrir að rannsókn gagnist þátttakendunum (10). Um réttláta dreifingu byrða og gæða og með- ferðarmöguleika að rannsókn lokinni er mikið deilt, enda ljóst að fátæk ríki geta ekki útvegað ný, dýr lyf til almennings. Þegar rætt er um samfélags- legan ávinning rannsóknar er rétt að hafa í huga að vel þekkt eru tilvik þar sem fólk í fátækum ríkj- um hefur verið fengið til þátttöku í rannsóknum sem frekar er ætlað að gagnast Vesturlandabúum. Rannsóknir skulu beinast að heilsufarsspurning- um sem hafa vægi í því samfélagi þar sem svara er leitað. Þess utan má velta fyrir sér hvort hámennt- aðum rannsakendum frá Vesturlöndum beri siðferðileg skylda til að láta gott af sér leiða meðan á rannsókn stendur í samfélaginu, til dæmis með því að bjóða upp á almenna heilsugæslu og heil- brigðiseftirlit, ótengt rannsóknaráætluninni. I umhverfi lyfjaprófana í þróunarlöndum hefur sýnt sig að samstarf með þátttöku heimamanna er afar nauðsynlegt (13). Það er með slíku sam- starfi sem unnt getur verið að leysa vandamál sem upp geta komið, s.s. varðandi opinbert eftirlit og raunverulegt sjálfræði þátttakenda, bestu leið til upplýsingaveitu, mat á áhættu, mögulegan ávinning fyrir einstakling og samfélag, svo og það sem við tekur eftir að rannsókn er lokið. Rannsóknarmöguleikar og sammannlegur ávinn- ingur ættu að hvetja rannsakendur til að fara nýjar leiðir þegar kemur að rannsóknum í fátækum ríkjum. Rammi 2. Öflun lífsýna f Kína. Á árunum 1996-1998 var gengist fyrir söfnun blóös í þágu lyfjaerföafræðirannsókna meðai einangraðs hóps í Kína, en þátttakendur oft fengnir með þrýstingi frá yfirvöldum og lyfjafyrirtækið sem um ræddi, Millenium Pharmaceuticals, aflaði ásamt samstarfsaðilum sínum í Harvardháskóla milljóna dollara með opinberum styrkjum og fjárfestingum vegna þessara rannsókna. Rannsakendur fullyrtu að þeir hefðu fylgt ströngum siðfræöilegum skilyröum - en dugar slíkt í alræðisríki sem þekkt er fyrir að brjóta mannréttindi? Öflun sýna var gagnrýnd basöi af bandarískum og kínverskum yfirvöldum. Þátttakendum var lofaö læknismeðhöndlun (sem skortir sárlega á í dreifbýli Kína), en spurningar vöknuðu um aðgang kínverskra yfirvalda að viðkvæmum erfðafræöilegum upplýsingum (6). Einkaleyfisvernd og ódýr lyf Einkaleyfi eru viðurkennd á þeirri forsendu að með þeim fái fyrirtæki tekjur sem þau geta nýtt til þróunar á nýjum vörum (14). Gallinn er sá að ekki hefur verið skilgreint hlutlægt hversu lengi einkaleyfi þurfi að vera í gildi þó að gildistími þeirra hafi verið að lengjast. Auk þess hefur verið bent á að einkaleyfi leiða ekki til nýsköpunar þar sem enginn markaður er til staðar. Af 1233 lyfjum sem fengu markaðsleyfi á árunum 1975-1997 voru 13 við hitabeltissjúkdómum og að þessu leyti hall- ar á þróunarríki, sem öðrum löndum fremur eru íþyngd af þessum sjúkdómum (15). Árið 1998 fóru 39 lyfjafyrirtæki í mál við Nelson Mandela og ríkisstjórn hans í S-Afríku til að koma í veg fyrir innflutning og dreifingu ódýrari lyfja sem gagnast eyðnismituðum og sem borin von var til að suður-afrískir sjúklingar gætu keypt beint af vestrænum fyrirtækjum. Lög voru sett í S-Afríku sem heimiluðu innflutning á samheitalyfjum frá Indlandi sem ekki hafa einkaleyfislöggjöf. Meðal þeirra sem tóku sér ferð á hendur til að þrýsta í ríkisstjórn S-Afríku var A1 Gore (16). Málaferlin drógust í þrjú ár og ollu fyrirtækj- Rammi 3. Trovan prófun í Nígeríu 1996. Mikill styr varð um rannsókn Pfizer í Nigeríu 1996, en þá reiö yfir heilahimnubólgufaraldur. Pfizer hafði viljað rannsaka nýtingu sýklalyfsins Trovan gegn heilahimnubólgu, brást skjótt við til aö ná í þátttakendur áður en faraldurinn væri um garð genginn og setti upp rannsóknarstöö í Kano í Nigeríu (7). Aðstandendur þátttakenda halda því fram að upplýsingagjöf hafi verið ábótavant, m.a. voru þátttakendur ekki uþplýstir um aðra meöferö sem í boði var eða að þetta væri tilraunameðferö. Læknar án landamæra voru t.d. með læknastöö viö hliðina á Pfizer, en væntanlegum þátttakendum var ekki beint til hennar sem annars möguleika ef þeir vildu ekki taka þátt f rannsókninni. Um var að ræða inngjöf á töfluformi, sem var einnig gagnrýnt þar sem mörg barnanna voru vannærð. Rannsóknin var gerð með vilyröi herforingjastjórnar sem þá ríkti í Nígeríu og Pfizer sagðist hafa fengið leyfi frá nfgerískri siðanefnd (8). Þátttakendur og aöstandendur þeirra reyndu að leita réttar síns í Nígeriu og einnig í Bandaríkjunum, á þeirri forsendu að Pfizer sé bandarískur lögaðili, að óvíst sé að máliö hljóti réttláta málsmeðferð í Nígeríu og að réttarvernd vegna þátttöku í rannsóknum sé takmörkuð þar f landi. Upprunalega var málinu vísað heim f hérað af undirrétti í Bandaríkjunum, en árið 2006 komust sérfræðingar í Nígerfu að þeirri niðurstöðu að Pfizer væri sekt um vanrækslu f framkvæmd rannsóknarinnar. Trovan er samkvæmt fréttum bannaö f Evróþu og notkun þess er afar takmörkuð f Bandaríkjunum vegna hættu á lifrarskemmdum og dauða (9). LÆKNAblaðið 2008/94 51

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.