Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.01.2008, Qupperneq 58

Læknablaðið - 15.01.2008, Qupperneq 58
UMRÆÐUR O G FRÉTTI FRÁ SIÐANEFND R fári sem Kári Stefánsson hafi í engu átt upptök að, m.a. hafi grein Jóhanns verið fyrsta frétt í aðalfréttatíma Ríkissjónvarpsins hinn 20. september 2005. í framhaldi af henni hafi Kára Stefánssyni verði boðið í viðtal í Kastljósi, væntanlega til að bera af sér ásak- anir Jóhanns um að hann væri óhæfur læknir sem ekki hefði gilt lækningaleyfi og það væri hneyksli að hann hefði verið fenginn til að leysa af í sumarleyfum á LSH. í slíkri umfjöllun sé mjög nærtækt að velta fyrir sér hverju það geti sætt að ritstjóri Læknablaðsins hafi birt slíka grein og hvað hafi rekið grein- arhöfund til að rita hana, m.a. í ljósi þess að hann hafði áður ritað fjölmargar greinar af svipuðum toga þar sem hann veittist að Kára með ósæmilegum hætti. Kári hafi væntanlega reynt eftir bestu getu að útskýra málið. Ummælin sem höfð eru eftir honum séu frekar lágstemmd og eðlileg miðað við stöðu málsins á þeim tíma sem þau eiga að hafa fallið. í þessu sambandi beri að líta til meginreglna laga um heimildir þeirra sem verði fyrir ærumeiðingum til að bera hönd fyrir höfuð sér, m.a. með orðhefnd, þótt því sé ekki haldið fram hér að þau ummæli sem Kára eru eignuð séu svo sterk að fallið geti undir lagalega skilgreiningu á hugtakinu orðhefnd, þótt heimil væri. Það er því ljóst að ummæli Kára Stefánssonar um Jóhann Tómasson lækni hafi á allan hátt verið mun hófstillt- ari en tilefni hefði verið til, miðað við þær ærumeiðingar sem hann hafði áður mátt þola af hendi Jóhanns. Af þessum atvikum öllum sé ljóst að engin ástæða er til að óttast að meint ummæli Kára hafi brotið gegn siðareglum LÍ. Málið var að svo búnu lagt í úrskurð Siðanefndar og taldi lögmaður Kára Stefánssonar ekki ástæðu til að fram færi frekari sönnunarfærsla fyrir nefndinni eða munnlegur málflutningur. NIÐURSTAÐA Nefndin hefur aflað sér afrits upptöku á umræddum Kastljósþætti og lítur hér aðeins til þeirra ummæla sem greind eru í bréfi nefndarinnar til lögmanns Kára Stefánssonar frá 23. nóvember 2006. Þykja ekki efni til að vísa máli þessu frá nefndinni að fengnum þessum gögnum þar sem ummæli Kára Stefánssonar komu fram í umræddum þætti. Með úrskurði Siðanefndar Læknafélags íslands, uppkveðn- um nú í dag, kemst nefndin að þeirri niðurstöðu að Jóhann Tómasson læknir hafi með tilteknum ummælum um starfs- bróður sinn Kára Stefánsson sem er að finna í grein Jóhanns í Læknablaðinu gerst brotlegur við Siðareglur lækna. Þau ummæli voru tilefni þess að umrætt viðtal við Kára Stefánsson átti sér stað. í 3. mgr. 22. gr. Siðareglna lækna er að finna eftirfarandi ákvæði: Lækni er skylt að auðsýna öðrum læknum drengskap og hátt- vísi jafnt í viðtali sem umtali, ráðum sem gerðum, í ræðu og riti og hann skal forðast að kasta rýrð á þekkingu eða störf annarra lækna. Það er álit Siðanefndar að með orðunum "... etja Jóhanni á foraðið ... " sé gefið í skyn að Jóhann Tómasson hafi skrifað grein sína að undirlagi annarra og er það auk orðalagsins „Einhverra hluta vegna þá hef ég fest þarna einhvers staðar inni í heilabúinu á honum og hann virðist eiga erfitt með að koma mér þaðan út" niðrandi í garð Jóhanns og telur lækni ekki sæmandi að tala svona um starfsbróður sinn. Telur nefndin það engu máli skipta hér að Jóhann Tómasson hafði viðhaft ummæli um Kára sem nefndin telur brjóta gegn siðareglum lækna í umræddri grein. Samkvæmt þessu telur nefndin að Kári Stefánsson hafi brotið gegn ákvæði 3. mgr. 22. gr. siðareglna lækna í umræddum þætti hinn 2. nóvember 2005. Af hálfu stjórnar Læknafélags Islands hefur engin krafa komið fram um að Kári Stefánsson verði beittur viðurlögum vegna brots á siðareglum lækna og telur nefndin í ljósi þess að ekki séu efni til þess að áminna lækninn vegna þessa brots hans. ÚRSKURÐARORÐ Læknirinn Kári Stefánsson braut gegn siðareglum lækna með eftirfarandi ummælum í viðtali í Kastljósþætti sjónvarpsins 2. nóvember 2005: ... „etja Jóhanni á foraðið" ... og „Einhverra hluta vegna þá hef ég fest þama einhvers staðar inni í heilabúinu á honum og hann virðist eiga erfitt með að koma mér þaðan út". Allan V. Magnússon Ingvar Kristjánsson Stefán B. Matthíasson Ár 2007, föstudaginn 7. desember, kom Siðanefnd Læknafélags íslands saman í fundarsal í húsakynnum Læknafélags íslands að Hlíðasmára 8, Kópavogi. Nefndina skipa Allan V. Magnússon, formaður, Ingvar Kristjánsson læknir og Stefán B. Matthíasson læknir. Fyrir var tekið erindi stjórnar Læknafélags Islands frá 26. október 2005 vegna greinar Jóhanns Tómassonar í 9. tbl. 91. árgangs Læknablaðsins. ÚRSKURÐUR Með bréfi dagsettu 26. október 2005 skýrði settur formaður Læknafélags íslands frá því að stjórn félagsins hefði ákveð- ið á fundi sínum hinn 25. október 2005 að óska eftir því við Siðanefnd Læknafélags Islands að hún tæki til umfjöllunar og úrskurðar, eftir því sem við ætti, kvörtun vegna háttsemi sem kynni að stríða gegn siðareglum Læknafélags Islands. Segir síðan að sú háttsemi sem kvartað sé undan sé hvort Jóhann Tómasson læknir hafi í grein sem hann hafi fengið birta í 9. tbl. 91. árgangs Læknablaðsins 2005 „Nýi sloppur keisarans" gerst brotlegur gegn siðareglum lækna með einhverjum af ummælum sínum um Kára Stefánsson lækni. Greinin hljóðar svo: „FORSTJÓRI íslenskrar erfðagreiningar stendur vaktina þessa dagana í afleysingum á taugasjúkdómadeild Land- spítalans." Þannig byrjaði Bogi Ágústsson stórfrétt ríkissjón- varpsins mánudaginn 18. júlí síðastliðinn. Daginn áður höfðu bæði stóru dagblöðin boðað tíðindin á forsíðu. Þessi afleysing Kára Stefánssonar á taugadeild Land- spítala var slíkt dómgreindarleysi og reginhneyksli að efast verður alvarlega um hæfi stjórnenda hins ríkisrekna heil- brigðiskerfis. Kári hefur skilyrt, takmarkað lækningaleyfi, 58 LÆKNAblaðið 2008/94
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.