Læknablaðið - 15.01.2008, Side 59
U M R Æ Ð U R
F R Á
O G F R É T T I
S I Ð A N E F N
útgefið til bráðabirgða 10. júní 1977. Önnur lækningaleyfi,
sem íslenzk heilbrigðisyfirvöld hafa veitt honum, eru því
sennilega ólögleg.
Ferill Kára í verklegu og klínísku námi í læknadeild
Háskóla íslands og á kandídatsári var með endemum. Um
það getur heill her skólafélaga hans vitnað og fjölmargir
aðrir. Þar á meðal núverandi landlæknir, þá formaður félags
læknanema. Kári fékk lækningaleyfi með undanþágu í júní
1977, þar sem hann var látinn undirrita eið, í vitna viðurvist,
um að ljúka héraðsskyldu við fyrsta tækifæri, enda „væri mér
ljúft að heita því að gera það að loknu sérnámi". (Sjá Guðni
Th. Jóhannesson: „Kári í jötunmóð".)
Kári hefur ekki starfað sem læknir á Islandi frá árinu
1977.
í nærfellt áratug hefur hann ekkert starfað sem læknir.
Þar áður vann Kári einkum við rannsóknir. Engu að síður er
hann ráðinn til að „standa vaktina" á taugadeild Landspítala
í fimm daga. Stekkur svo burt í miðju kafi til að opna hluta-
bréfamarkað í New York. Hvernig getur svona gerzt á æðstu
heilbrigðisstofnun íslands? Er þetta leikhús? Það voru ekki
gæði og traust sem þama réðu ferð. Ekki einu sinni marg-
rómað frelsi fólks til að velja sjálft lækni. Er ekkert gæðaeftirlit
með ráðningum lækna? Beztu og færustu læknum þykir erfitt
að taka upp þráðinn eftir nokkurra mánaða hlé. Hvað segir
yfirstjóm spítalans? Gaf hún leyfi fyrir þessari ráðningu? Eins
og sérstaklega var tekið fram í fréttatilkynningu að stjórn
deCODE hefði gert. Hvað segir landlæknir? Veitti hann frekari
undanþágu á lækningaleyfinu?
Kári talaði um „elegant tillögu" Elíasar Ólafssonar yf-
irlæknis taugadeildar. I sjónvarpinu 18. júlí sl. hafði hann eftir
Elíasi „að þetta væri sniðug aðferð til þess að gera þessa góðu
samvinnu ennþá betri, milli spítalans og Islenskrar erfðagrein-
ingar".
Hvers konar rugl er þetta eiginlega? Er það aðferðin
til að bæta enn frekar samvinnu íslenskrar erfðagreiningar
og Landspítala að bjóða Kára vinnu á taugadeild? Skuldar
taugadeildin Kára eitthvað? Hvað kemur næst?
Við sem störfum sem læknar alla daga vikunnar hljótum
að spyrja. Megum við eiga von á svona þjónustu við sjúklinga
okkar, þegar við vísum þeim á Landspítala að vandlega at-
huguðu máli? Eru engin takmörk fyrir því hve hið ríkisrekna
heilbrigðiskerfi ætlar að leggjast lágt í siðleysinu? "
Stjórn Læknafélags íslands hefur ekki látið mál þetta til sín taka
að öðru leyti en því að óska álits Siðanefndar á því hvort Jóhann
Tómasson hafi gerst brotlegur gegn siðareglum lækna með ein-
hverjum af ummælum sínum um Kára Stefánsson lækni í fyrr-
nefndri grein í Læknablaðinu.
Af hálfu Jóhanns hefur verið tekið til vama og þess krafist að
hann verði sýknaður af kröfum Læknafélags íslands.
Af hálfu Jóhanns var þess krafist að siðanefndarmaðurinn
Þórður Harðarson viki sæti við meðferð málsins. Hafði hann,
sem er varamaður, verið kvaddur til starfa í nefndinni af for-
manni vegna óskar Asgeirs B. Ellertssonar læknis um að taka
ekki sæti í nefndinni við meðferð máls þessa. Þórður óskaði eftir
að verða leystur frá starfa sínum í nefndinni að framkominni
þessari kröfu og var orðið við þeirri ósk. Þá óskaði varamað-
ur Birgir I. Guðjónsson eftir því að taka ekki sæti í nefndinrd
vegna starfstengsla við Jóhann Tómasson en þeir starfa á sömu
heilsugæslustöð.
Nefndarmennirnir Allan Vagn Magnússon og Stefán B.
Matthíasson kvöddu því Ingvar Kristjánsson lækni til starfa í
nefndinni án þess að það sætti andmælum eða athugasemdum
af hálfu aðila en þeim gafst kostur á að koma þeim að.
Þá hefur Jóhann Tómasson beint kæru að 21 nafngreindum
læknum en þar er þess krafist að siðanefnd LÍ kveði á um að
kærðu hafi brotið gegn siðareglum LÍ og finni að háttsemi þeirra
og veiti þeim formlega áminningu. Þessi kæra verður tekin til
meðferðar í öðru máli.
I greinargerð lögmanns Jóhanns, Ragnars Aðalsteinssonar,
hrl., kveður hann upphaf máls þessa vera til þess að rekja að
Jóhann Tómasson, læknir, ritaði grein í Læknablaðið 9. tbl. 2005
undir fyrirskriftinni „Nýi sloppur keisarans". Grein þessi hafi
einnig birst á vefsíðum LÍ, svo sem annað efni í Læknablaðinu.
Tilefnið hafi verið að birst höfðu fréttir í fjölmiðlum um vikuráðn-
ingu læknis til afleysinga á taugasjúkdómadeild Landspítalans.
Hinn 17. júlí 2005 muni tvö af stóru dagblöðunum hafa birt tíð-
indin á forsíðu sinni og í ríkissjónvarpinu hafi frétt hafist með
þessum orðum „Forstjóri Islenskrar erfðagreiningar stendur
vaktina þessa dagana í afleysingum á taugasjúkdómadeild
Landspítalans." Muni hafa staðið til að Kári Stefánsson læknir
leysti af á greindri deild í eina viku. Fyrrnefnd auglýsinga-
mennska af hálfu læknisins sé brýnt brot á upphafsákvæði 20.
gr. siðareglna LI þar sem segi að lækni sé ósæmandi að vekja á
sér ótilhlýðilega athygli. Jóhann Tómasson hafi hins vegar verið
að gæta skyldu sinnar skv. 3. mgr. 5. gr. siðareglna LÍ þar sem
segir að lækni sem fær vitneskju um aðstæður sem hann telur
faglega óviðunandi sé skylt að gera grein fyrir þeim skoðunum
sínum. Jóhann hafi talið eðlilegast að gera grein fyrir þessum
skoðunum sínum á viðeigandi stað, sem sé Læknablaðið, sem
muni berast til flestra eða allra lækna í landinu. Hafi hann vakið
athygli á því að Kári Stefánsson hefði „skilyrt, takmarkað lækn-
ingaleyfi útgefið til bráðabirgða 10. júní 1977." Þær tvær setn-
ingar sem lögmaðurinn lýsir sem tilefni Siðanefndar máls þessa
eru sem hér segir:
Kári hefur skilyrt, takmarkað lækningaleyfi og útgefið til
bráðabirgða 10. júní 1977. Önnur lækningaleyfi sem íslenzk heil-
brigðisyfirvöld hafa veitt honum eru því sennilega ólögleg.
Margvísleg viðbrögð hefðu orðið við þessum ummælum,
annars vegar hjá stjórn Læknafélags Islands og hins vegar
hjá Kára Stefánssyni. Lögmaður Kára Stefánssonar hafi ritað
ábyrgðarmanni Læknablaðsins bréf 12. september 2005 og talið
að í greininni hafi verið veist að Kára Stefánssyni og starfs-
heiðri hans sem læknis og telji hann ummæli Jóhanns vera
„svigurmæli". Hinn 21. nóvember 2005 hafi Læknablaðið sent
Jóhanni Tómassyni upplýsingar um og kynnt honum að grein
hans hefði verið ritskoðuð og teknar tvær setningar úr grein-
inni á vefsíðu. Jafnframt hafi honum verið send bréfaskipti
(föxuð) um málið sem fyrirhugað hafi verið að birta í blaðinu
í desember 2005. Hinn 21. nóvember 2005 hafi Læknafélag
Islands og Læknafélag Reykjavíkur ritað Kára Stefánssyni bréf
þar sem vísað sé í grein Jóhanns og sagt að þar sé gefið í skyn
að Kári stundi lækningar án tilskilinna leyfa. Síðan segi orðrétt
„þetta hefur reynst að vera rangt. Þú ert beðinn afsökunar á því
að þessi ummæli skyldu hafa birst í Læknablaðinu. Þau verða
umsvifalaust fjarlægð úr netútgáfublaðsins. Greinin í heild er
LÆKNAblaðið 2008/94 59