Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2008, Síða 90

Læknablaðið - 15.01.2008, Síða 90
1 HUGLEIÐING HÖFUNDAR KVILLAR 0 G L Y F í S í Ð U N N 1 Kvillar og lyf í Síðunni Böðvar Guðmundsson BÖÐVAR guðmundsson Böðvar Guðmundsson fæddist árið 1939. Stúdent frá MR 1962 og Cand. mag. í íslensku 1969. Kenndi íslensku við MH 1969-74 og MA1974- 80. Stundakennari við Leiklistarskóla íslands 1981-83, lektor í Bergen 1983-87, en hefur helgað sig ritstörfum síðan. Verk hans eru m.a. Ijóöabækur, leikrit og skáldsögur, þeirra þekktastar eru bækur hans um vesturfarana: Híbýli vindanna 1995 og Lífsins tré 1996 en meö þeim vann hann hug og hjörtu íslendinga og hlaut fyrir þá síðarnefndu Hin íslensku bókmenntaverðlaun 1997. Sögur úr Síðunni eru tengdar sögur úr íslenskri sveit um miðja síðustu öld. Læknavísindin eru mér hulinn dómur en ég þekki marga lækna, frændur og vini og stjúpdóttir mín er læknir. Samt ætla ég ekki að skrifa neitt um þetta ágætisfólk, heldur að reyna að rifja upp heilsufar fólks í Síðunni um miðja síðustu öld, en þá byrjaði ég að taka eftir því sem var umhverfis mig. Ég byrja efst og fikra mig niður eftir fólki. Hárið á fólki var svipað og í dag, nema hvað eldri konur gengu yfirleitt með fléttur, karlarnir voru þunnhærðir. Lús var næstum óþekkt en engu að síður voru gerðar varúðarráðstafanir við henni. Einu sinni í viku þvoði móðir mín okkur krökkunum um hárið úr grænsápulegi og kembdi okkur á eftir með fíntenntum og flugbeittum lúsa- kambi sem var hreinasta pyndingartæki. Hann var svo fíntenntur að engin lús slapp í gegnum hann. Það kom aldrei nokkur lús í leitirnar og ég verð að játa að enn þann dag í dag hef ég ekki séð lús. Á nágrannabæ bjuggu hagleiksbræður og þeir betrumbættu lúsakambinn sinn, smíð- uðu á hann sérstakan lúsadrepara. Það var þunn stálplata, klemma, sem lagðist að kambinum með sterkri fjöður. Klemmunni var haldið opinni meðan kembt var og kæmi lús í leitirnar var fjöðr- inni sleppt og klemman lokaðist og marði lúsina í klessu. Þeir tóku ekki einkaleyfi á þessa uppfinn- ingu sína, enda lúsin um það bil að hverfa. Fyrir neðan hárið sitja augun. Mér finnst núna að margt gamalt fólk hafi verið rauðeygt og oft einhver vilsa í augnakrókum. Eldra fólk átti margt gleraugu, en það var talið nóg að fá sér gleraugu einu sinni á ævinni. Ég man eftir gömlum manni sem kom oft til okkar á jóladag og settist strax út í horn með jólablað Tímans í höndunum og gler- augu móður minnar á nefinu. Hans gleraugu voru fyrir löngu hætt að passa en þennan eina dag árs- ins komst hann í gleraugu sem hann gat lesið með. Það var mikill hátíðisdagur. Færum okkur neðar. Margir karlar tóku í nefið og þurrkuðu tóbakstaumana í sérstaka nef- tóbaksklúta, sem ég síðar hef komist að raun um að eru danskir hálsklútar. Það sauð og kraumaði hátt í þessum tóbaksnefjum en ég man að mér var sagt að neftóbaksmenn fengju síður kvef en aðrir. Og þá eru það tennurnar. Tannhirða var næst- um engin. Margir karlar báru þó á sér tannstöngul, sem oftar en ekki var tálgaður leggur úr álftarfjöð- ur. Flestar konur voru komnar með falskar tennur upp úr tvítugu, karlar fengu þær seinna. Við tann- pínu var aðeins eitt ráð og það var að láta draga úr sér tönnina. Læknisbústaðurinn var nokkuð langt í burtu og stundum kom læknirinn með mjólk- urbílnum og þá sátu þeir sem eitthvað var að við brúsapallinn og biðu eftir lækningu meðan mjólk- urbílstjórinn var að setja mjólkurbrúsann á bílpall- inn eða sortera póstinn. Ég man eftir einum lækni sem var heljarmenni að burðum og margar sögur sagðar um ómælda krafta hans. Ein sagan var sú að hann notaði aldrei töng til að draga tennur úr fólki, það gerði hann með fingrunum. Margir karl- menn voru með brotnar tennur eða skörð. Átök og stympingar við skepnur enduðu oft með því að tennur hrukku. Tvo góða granna vissi ég um sem misstu tennur í stympingum við hrúta og sá þriðji var að koma heim úr kaupstað og hundur hans stökk upp í fangið á honum við heimkomuna með svo áköfum fagnaðarlátum að hann skallaði úr honum báðar framtennurnar. Ég hef sennilega verið orðinn tíu ára þegar tannburstar komu til sögunnar og tannkrem. Tannkrem þótti óskaplega gott á bragðið og ég man að maður stalst stundum til að reka tunguna í tannkremstúbuna án þess að nota burstann. Fólk var oft með eymsli í hálsinum, kverkaskít, eins og það var kallað. Og krakkar með bólgna eitla og kirtla og hvað það nú heitir allt saman. Það þótti mikil heilsubót að láta taka kirtlana úr krökkum. Stundum var fólk líka með eymsli fyrir brjóstinu en það var ekki skilgreint nánar. Eldra fólk átti til að vera mæðið samfara brjósteymsl- unum en það var aldrei sett í samband við veilt hjarta. Hjartveikir voru þeir einir kallaðir sem voru kvíðnir og huglausir. Og svo var það hryggurinn og árans gigtin. Hún gat nú reyndar farið um allan skrokkinn, en verst var hún í bakinu. Þó finnst mér að gigtin hafi plagað karla og konur á ólíkan hátt, karlarnir voru skakkir og skældir af gigt í bakinu en konur meira í öxlum. Og margar konur kvörtuðu yfir handadofa. Þá var einnig mikið talað um magasár. Það þótti skelfilegur sjúkdómur, ekki hvað síst vegna þess að þeir sem þjáðust af magasári máttu ekkert borða nema hænsnakjöt, og hænur lagði almeimi- legt fólk sér alls ekki til munns. Það voru skelfileg örlög að mega ekki borða neitt nema hænsni það 90 LÆKNAblaðið 2008/94
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.