Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2010, Page 3

Læknablaðið - 15.05.2010, Page 3
; ' j Jnfj ! C! Nýtt hlutverk merkrar byggingar Fátt bendir nú til annars en að Heilsuvemdarstöðin við Barónsstíg hafi endanlega lokið hlutverki sínu við heilsuvernd Reykvíkinga þar sem nýverið var samþykkt í borgarráði að heimila þar hótelrekstur. Húsið teiknaði Einar Sveinsson arkitekt og var það vígt 2. mars 1957 eftir að hafa verið sjö ár í byggingu. Fyrsta deildin hóf þó starfsemi 1953. Frá upphafi voru þrjár deildir í annarri álmunni, þeirri sem veit að Barónsstíg: ein fyrir barnavernd, önnur fyrir mæðravernd en í enda álmunnar var húð- og kynsjúkdómadeild. I álmunni sem snýr að Egilsgötu var upphaflega berklavamadeild og síðar geðverndardeild bama en á 2. hæð aðalbyggingarinnar var berkla- og röntgendeild. Á neðstu hæðinni var slysavarðstofa. Á tveimur efstu hæðunum var heilsuverndin og þar var einnig sjúkradeild og gert ráð fyrir að þar gætu verið allt að 50-60 sjúkrarúm. Heilsuverndarhlutverki sínu lauk byggingin endanlega eftir að gerð var tilraun til að reka þar einkafyrirtæki í heilbrigðisþjónustu árin 2007-2008. LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS Myndin á forsíöu Læknablaðsins er stillimynd úr myndbandsverki eftir Huldu Rós Guðnadóttur (f. 1973). Verkið er margslungin innsetning þar sem fjöldi ólíkra myndbanda í einu og sama rýminu mynda heild og var það frumsýnt i Berlín fyrr á árinu. Hops Hopsi (2010) á uppruna sinn í yfirgefnum skemmtigarði þar í borg sem kallast Spreepark. Garðurinn var vinsæll í tíð Þýska alþýðulýðveldisins en eftir sameiningu Þýskalands tók að halla undan fæti og nú er hann gjaldþrota og í eyði. Hulda Rós heillaðist af þessum undarlega stað og hefur undanfarin ár farið þangað í reglulegar skoðunarferðir auk þess að rannsaka sögu hans og gildi á sínum tíma. Yfirvöld notuðu skemmtigarðinn sem áróðurstæki þar sem glansmynd var búin til af aðstæðum i Austur- Þýskalandi. Á aðra milljón gesta komu þangað árlega til að upplifa skemmtun og leiktæki, en ekki síst til að njóta ferskra ávaxta á þar til gerðum básum enda slíkt ekki á hverju strái. Gróðurinn hefur nú yfirhöndina og er við að kaffæra þau mannvirki sem fyrir eru. Tívolitækin standa enn sem og barnaleiksviðið þar sem trúðarnir Hops og Hopsi skemmtu yngri kynslóðinni, en heiti verkefnisins er sótt til þeirra. Hulda Rós skoðar í verki sínu ólíka staði í garðinum, hvert myndbandið á fætur öðru sýnir kyrrstöðu og endurtekningu. Hún lætur undarlegum náunga bregða fyrir hér og þar. Hann er klæddur í jakkaföt, síbrosandi með risastórt brúðuhöfuð en hann virðist ekki hafa neinum sérstökum tilgangi að gegna. í myndbandinu sem hér um ræðir má sjá hann á niðurníddum bar þar sem hann töfrar fram litríka gosdrykki og tertur. Enginn gæðir sér á þeim enda er hann aleinn á svæðinu. Hulda Rós notaði þessa fígúru fyrst í eldra verki sem hún gerði í miðju góðæri og sýndi útrásarvíking fara mikinn á hestbaki. Nú bregður honum aftur fyrir við þessar einkennilegu aðstæður í tómu tívoíi. Listakonan skeytir þannig saman þeirri kúvendingu sem varð við sameiningu Þýskalands og því óvissuástandi sem skapast hefur í kjölfar efnahagshruns. Sósíalismi og kapítalismi mætast á undarlegri endastöð þar sem enginn er eftir til þess að taka þátt í blekkingarleiknum. Fyrirhugað er að sýna verkið í heild sinni á næstunni í Listasafni Reykjavíkur. Markús Þór Andrésson Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL www. laeknabladid. is Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi 564 4104-564 4106 Útgefandi Læknafélag íslands Læknafélag Reykjavíkur Ritstjórn Jóhannes Björnsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Anna Gunnarsdóttir Bryndís Benediktsdóttir Engilbert Sigurðsson Gunnar Guðmundsson Inga S. Þráinsdóttir Tómas Guðbjartsson Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður og Ijósmyndari Hávar Sigurjónsson havar@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Dögg Árnadóttir dogg@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Upplag 1700 Áskrift 9.500,- m. vsk. Lausasala 950,- m. vsk. Prentun, bókband og pökkun Oddi Umhverfisvottuð prentsmiðja Höfðabakka 3-7 110 Reykjavík © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Ubrary of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition og Scopus. The scientific contents of the lcelandic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Ubrary of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 LÆKNAblaðið 2010/96 315

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.