Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.2010, Side 13

Læknablaðið - 15.09.2010, Side 13
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN sjúkrahúsanna í Fossvogi, við Hringbraut og á Landakoti árin 1998-2005. Auk þessa var reiknað út nýgengi fyrir hvert ár og aldursbundið nýgengi fyrir tímabilið í heild byggt á mannfjöldatölum frá Hagstofu íslands. Meðaltöl og staðalfrávik voru reiknuð út í Excel. Skráning klínískra upplýsinga Til þess að kanna einkenni nánar var afráðið að skoða upplýsingar um úrtak sjúklinga sem greindust tvo mánuði hvert ár tímabilið 1998-2008, það er í janúar og júní öll árin. Skráðar voru upplýsingar um aldur, kyn og einkenni sýkingar. Dagsetning sýnatöku jákvæðs sýnis var skráð en ef hún fannst ekki var skráður dagurinn sem sýnið var móttekið á sýklafræðideild Landspítala. Upplýsingar um helstu lyfjaflokka sem sjúklingur notaði reglulega og sérstaklega mánuð fyrir sýkingu voru skráðar. Einnig voru skráðar upplýsingar um sýklalyfjanotkun, tegund, skammta og meðferðartíma, allt að þremur mánuðum fyrir sýkingu. Sjúkdómar sem sjúklingur hafði voru flokkaðir eftir líffærakerfum. Spítalalega allt að þremur mánuðum fyrir sýkingu, í tengslum við sýkingu og lega á gjörgæslu voru skráðar. Kannað var hvort sjúklingur væri búsettur á stofnun þar sem samgangur væri milli vistmanna. Ef kviðskoðun var framkvæmd á sjúklingi eftir að einkenni sýkingar hófust var lýsing á henni skráð. Aðferðir til greiningar C. difficile sýkingu voru skráðar. Niðurstöður blóðrannsókna voru skráðar ef þær voru framkvæmdar á meðan sjúklingur hafði einkenni. Loks var athugað hvort og hvers konar meðferð sjúklingur fékk við C. difficile sýkingu og hvort hann þurfti á endurtekinni meðferð að halda. Tölfræði Notast var við einfalda lýsandi tölfræði. Nýgengi sýkingar var reiknað út frá mannfjöldatölum Hagstofu íslands15 en tölur um innlagna- og legudagafjölda fengnar úr ársskýrslum spítalans og forvera hans.16-19 Niðurstöður Heildartak Alls bárust sýklafræðideild Landspítala 11.968 hægðasýni frá sjúklingum árin 1998-2008 þar sem óskað var eftir leit að eiturefnum C. difficile. Fjöldi innsendra sýna jókst jafnt og þétt yfir tímabilið og fór úr 794 árið 1998 í 1341 árið 2008 og fjölgaði sýnum því um 69% á tímabilinu. Sýni frá sjúklingum spítalans voru 63% af heildarfjölda innsendra sýna til sýklafræðideildar en önnur sýni komu frá heilbrigðisstofnunum og -fyrirtækjum ásamt hjúkrunarheimilum á landinu. Af hægðasýnum frá sjúklingum spítalans reyndist 1861 (16%) sýni jákvætt fyrir C. difficile. Af jákvæðum sýnum reyndust 1492 (80%) endurspegla stakar sýkingar en 369 (20%) voru staðfesting á áðurgreindri sýkingu og/eða þjónuðu ekki augljósum tilgangi. Ef aðeins er miðað við jákvæð sýni frá Landspítala reiknast meðalnýgengi á fyrrgreindu 11 ára tímabili vera 47±13 tilfelli á hverja 100.000 íbúa Islands ár hvert. Nýgengið var nokkuð breytilegt eftir árum (bil 28,3-62,5), lægst árið 2006 en hæst árið 2002 eins og sjá má betur á mynd 1. Sýkingarnar 1492 greindust hjá 1374 sjúkling- um. Af þeim fengu langflestir eða 1268 (92%) staka sýkingu, en 106 (8%) fengu endursýkingar og af þeim fengu 94 sjúklingar tvær og 12 fengu þrjár aðskildar sýkingar. Meirihluti sýkinganna greindist hjá konum eða 860 (58%) og er skipting milli kynja sýnd á mynd 1. Aldursbundið nýgengi C. difficile sýkinga er hæst í eldra fólki og nýgengi meðal kvenna er hærra en karla eins og sjá má á mynd 2. Fjöldi sýkinga var einnig reiknaður sem hlutfall af fjölda innlagna og legudaga á Landspítala. Niðurstöðumar má sjá í töflu I og sést þar að á sama tíma og innlögnum og legudögum hefur fækkað hefur heildarfjöldi sýkinga aukist. Ef borin eru saman fyrstu tvö ár tímabilsins við tvö þau síðustu hefur fjöldi sýkinga á hverjar 1000 innlagnir aukist um 71% og fjöldi sýkinga á hverja 10.000 legudaga hefur aukist um 102%. Spítalasýkingar voru 112 eða 47% af heildarfjölda sýkinganna og langflestar sýkinganna voru tengd- ar heilbrigðisþjónustu (219/237, 92%). Mynd 1. Fjöldi og kynjaskipting ásamt nýgengi C. difficile sýkinga á Landspítala á Iwerja 100.000 íbúa íslands árin 1998-2008. íbúafjöldi varfenginn frá Hagstofu íslands.15 LÆKNAblaðið 2010/96 525

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.