Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 40

Læknablaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 40
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR HEIÐURSVÍSINDAMAÐUR Þórarinn segir frá rannsóknarstarfi sínu eftir að hafa tekið við viðurkenningunni Heiðursvísindamaður Landspítalans árið 2010. hækkandi blóðþrýstings, hjarta- og æðasjúkdóma, og fleiri alvarlegra truflana á líkamsstarfseminni, svo sem versnandi sykurbúskapar. Nú er ekki litið á kæfisvefn sem einangrað fyrirbæri heldur spilar hann inn í svo margt sem hefur með heilsufar að gera. Bein orsök kæfisvefns stafar af þrengslum í loftvegi. Þrengslin geta verið sértæk, skekkja í nefi, stórir hálskirtlar, lítil haka, stór tunga, og jafnvel efnaskiptasjúkdómar geta stuðlað að þrengslum í hálsi. Tveir af hverjum þremur kæfisvefnsjúklingum eru yfir kjörþyngd svo offita er langsterkasti einstaki áhættuþátturinn en við teljum að þar skipti máli hvernig fitan dreifist um líkamann, því þar sem fitan sest í tungu og hliðarveggi koksins eru mestar líkur á kæfisvefni." Tvær meginástæður eru fyrir meðhöndlun kæfisvefnssjúklinga. Annars vegar leita sjúk- lingarnir beint á lungnadeild vegna þreytu og dagsyfju en hins vegar vegna þess að oft vaknar grunur hjá heimilislækni, hjartalækni eða innkirtlalækni að hluta orsakar hækkandi blóðþrýstings, hjartabilunar eða sykursýki sé að finna í öndunarerfiðleikum sjúklingsins á nóttunni. Þessir sjúklingar eru þá sendir í kæfisvefnsrannsókn til Þórarins á lungnadeild Landspítalans. Gott að stunda rannsóknir á íslandi Þórarinn flutti heim til Islands frá Svíþjóð árið 1987 ásamt konu sinni Bryndísi Benediktsdóttur heimilislækni og börnum þeirra. Hann hóf störf á rannsóknarstofu Geðdeildar Landspítalans og segir Tómas Helgason yfirlækni hafa séð mikilvægi svefnrannsóknanna og ráðið bæði Þórarin og Helga Kristbjamarson svo þeir gætu haldið áfram rannsóknum sínum. „Þarna var til staðar mælibúnaður til að rannsaka svefn og við gerðum þar allar flóknari mælingar en allur einfaldari búnaður var settur upp á Vífilsstaðaspítala og þar var fljótlega farið að beita blásturstækjum hjá sjúklingum með kæfisvefn. Fyrsti sjúklingurinn sem fékk meðferð á Vífilsstöðum með öndunarvél kom til okkar haustið 1987. Frá þeim tíma höfum við greint 6500 einstaklinga með kæfisvefn og í dag eru tæplega 3000 manns sem nota öndunarvél heimavið á nóttunni. Þetta er mjög svipað hlutfall og þekkist í löndunum í kringum okkur," segir Þórarinn. „Hrafnkell Helgason yfirlæknir á Vífilsstöðum hafði mjög góðan skilning á þessum rannsóknum. Hann studdi með öllum ráðum við starfsemina. Gæfa klínísku starfseminnar hefur falist í hópi hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sem heldur utan um öndunarvélameðferðina. Samhliða því að aðstaðan byggðist upp hófum við að frumkvæði Helga að rannsaka ökumenn sem lent höfðu í slysum þar sem aðeins eitt ökutæki kom við sögu. Niðurstöður okkar sýndu að syfja og þreyta var líkleg orsök slyss í 15-20% tilfella en einn af fylgikvillum kæfisvefns er syfja og þreyta að deginum. Slysatíðni kæfisvefnsjúklinga er fjórum til sex sinnum hærri en hjá þeim sem ekki eru með sjúkdóminn." Þórarinn segir samstarf þeirra Helga Krist- bjarnarsonar hafa verið einstaklega gott og skemmtilegt. „Helgi stofnaði fyrirtækið Flögu á tíunda áratug síðustu aldar sem varð eitt 552 LÆKNAblaðið 2010/96
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.