Læknablaðið - 15.09.2010, Síða 49
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR
MÁLÞING U M SÝKLALYF
eftir upphaf veikinda. Meinmyndandi bakteríur
eru nokkum veginn þær sömu og meðal
bama, en sökum byggingarlegs munar á nefi
og hjánefskútum milli barna og fullorðinna, er
einkennamyndin oft tengdari hjánefskútunum
sem slíkum frekar en nefinu. Það er áberandi
verkur í andliti með leiðni í tennur, verkur
umhverfis augu og í enni, verkir sem versna
við að höfuð sé beygt fram. Við skoðun má sjá
að graftrargötur í nefholi, það eru bankeymsli
yfir andliti og viðkomandi getur haft vægan
hita. Mikilvægt er að átta sig á því að bólgur
í hjánefskútum, sérstaklega kinnholum eða
ennisholum, gefa sig aldrei til kynna sem
bólga út á yfirborð andlits. Meðferð er fyrst og
fremst staðbundin, það er saltvatnsskolun sem
er mikilvæg, adrenvirkir nefdropar og sterar
staðbundið í nef, en einnig einkennamiðuð með
verkjalyfjum, og slímlosandi lyfjum. Þótt fjöldi
klínískra rannsókna hafi sýnt marktækt betri
virkni sýklalyfja en lyfleysu við að draga úr
fyrmefndum einkennum sjúkdómsins á 10. og
14. degi eru áhrifin, „degree of benefit", svo lítil
og flestum lyfleysusjúklingunum batnar, að það
réttlætir bið og gerir sýklalyfjagjöf óþarfa.
Fylgikvillar bráðrar nef- og skútabólgu eru
sjaldgæfir og taldir koma fyrir í einungis einni af
hverri 95.000 sýkingu. Þeir eru algengari meðal
barna og koma oftast í kjölfar bráðrar sýkingar.
Meðal barna yngri en 6 ára er bólga með
graftrarmyndun í augntótt um 90% fylgikvilla
og er þá sýkingin útgengin í sáldbeinsskútum.
Einnig er þekkt bólga eða graftarmyndun í
fremri kúpugróf sem er um 10% fylgikvilla
en þá er sýkingin útgengin frá ennisholum og
kemur fyrir meðal eldri barna, 6-12 ára. Grun
um fylgikvilla á að fylgja eftir með rannsóknum.
Taka á fylgikvilla alvarlega og meðhöndla með
viðeigandi sýklalyfjum inni á sjúkrastofnun.5
Heimildir
1. Steinsvág SK. Nose and lungs-two of a kind. Tidskr Nor
Legeforen 2009; 129:1982-4.
2. Anzai Y, Paladin A. Diagnostic imaging in 2009: update on
evidence-based practice of pediatric imaging. What is the
role of imaging in sinusitis? Pediatr Radiol 2009; 39(suppl 2):
239-41.
3. Demoly P. Safety of intranasal corticosteroids in acute
rhinosinusitis. Am J Otolaryngol 2008; 29: 403-13.
4. Brietzke SE, Brigger MT. Adenoidectomy outcomes in
pediatric rhinosinusitis: a meta-analysis. Int J Pediatr
Otorhinolaryngol 2008; 72:1541-5.
5. Oxford LE, McClay J. Complications of acute sinusitis in
children. Otolaryngol Head Neck Surg 2005; 133: 32-7.
LÆKNAblaðið 2010/96 561