Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2010, Page 50

Læknablaðið - 15.09.2010, Page 50
U M R Æ Ð U R M Á L Þ I N G U O G M F R É T T I R SÝKLALYF Meðferð miðeyrnabólgu - viðhorf barnalæknis Þórólfur Miðeyrnabólga er samheiti yfir flókið sjúkdómsástand í miðeyra og nær yfir bráða bólgu og langvarandi Guðnason vökvaástand án bólgu. Meðferð snýst í grundvallaratriðum um hvort gefa eigi sýklalyf eða ekki, hvaða barnaiæknir tyf eigi að gefa eða hvort önnur meðferð sé ásættanleg. Fjölmörg atriði geta haft áhrif á þá ákvörðun lækna hvaða meðferð skuli gefa. Læknisfræðileg vitneskja um háa tíðni sjálflækningar er mikilvæg en þrýstingur foreldra og meðferðarhefð skipta líka máli. Ákvörðun um meðferð byggist ekki síst á góðri skoðun sem er nauðsynleg til að greina bráða miðeyrnabólgu. Rannsóknir hafa sýnt að sjálflækning bráðrar miðeyrnabólgu er mismunandi hjá börnum og er ekki síst háð því hvaða baktería veldur sýkingunni. Hún er mest við sýkingu af völdum M. catarrhalis (75%) en minnst við sýkingu af völdum pneumókokka (25%). Sjálflækning er einnig meiri hjá börnum eldri en tveggja ára, börnum með væg einkenni (hiti, verkir) og börnum sem ekki hafa fengið endurteknar miðeyrnasýkingar. Ef læknir kemst að þeirri niðurstöðu nota skuli sýklalyf við bráða miðeymabólgu þarf að huga að eftirfarandi: 1. Eru líkur á að sýklalyfið virki á bakteríurnar sem valda sýkingunni? 2. Er líklegt að lyfið komist í nægilegri þéttni inn í miðeyrað? Hvaða skammta (mg/kg á dag) þarf að nota? Hversu oft á dag þarf að gefa lyfið og í hversu marga daga? Þegar tekið er tillit til allra ofangreindra þátta má mæla með eftirfarandi verklagsreglum: 1. Börn með væg einkenni (hitalítil og litla verki), sérstaklega ef þau em eldri en tveggja ára. a. Bíða með sýklalyf. b. Endurmeta ástand barnsins með skoðun eða í síma eftir 1-2 daga ef ástand versnar og meðhöndla með sýklalyfjum. c. Nota verkjalyf. 2. Börn með mikil einkenni (háan hita og mikla verki), sérstaklega ef þau em yngri en tveggja ára. a. Nota sýklalyf í 5-7 daga. i. Amoxicillín 50 mg/kg á dag skipt í þrjá skammta eða 80 mg/kg á dag skipt í tvo skammta ef grunur er um sýkingin sé orsökuð af penicillín ónæmum pneumókokkum. ii. Ef amoxicillin dugar ekki má mæla með amoxicillín-klavúlansýru, cefúroxím (Zinnat) eða ceftriaxon (Rocephalin) í vöðva. iii Að öllu jöfnu er ekki mælt með trímetoprím-súlfa, makrólíðum eða phenoxymethylpenicillín sem fyrsta vali á sýklalyfi. Ekki hefur verið sýnt fram á að önnur meðferð eins og ástunga á hljóðhimnu, bólgustillandi lyf eða hómópatalyf skili árangri við meðferð á bráðri miðeyrnabólgu. 562 LÆKNAblaðið 2010/96

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.