Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2010, Page 60

Læknablaðið - 15.09.2010, Page 60
UMRÆÐA 0 G LYFLÆKNAÞI F R É T T I N G R XIX. þing Félags íslenskra lyflækna 1.-2. október 2010 á Radisson SAS Hótel Sögu Þing Félags íslenskra lyflækna hafa í meira en þrjá áratugi verið mikilvægur vettvangur fyrir lyflækna hér á landi til kynna vísindarannsóknir sínar og skiptast á skoðunum um áhugaverð málefni á sviði lyflapkninga og heilbrigðismála. Þingið hefur jafnan verið haldið utan Reykjavíkur en mun nú fara fram í höfuðborginni í fyrsta sinn. Stefnt er að því að dagskrá þingsins verði glæsileg og höfði til breiðs hóps lyflækna og annarra sem áhugasamir eru um lyflæknisfræði. Meginþema þingsins verða lungnasjúkdómar og smitsjúkdómar. Meðal þess sem fjallað verður um á þinginu er: • Meðferð langvinnrar lungnateppu og kæfi- svefns með áherslu á nýjungar, árangur og kostnað. • Eru berklar á hverfanda hveli eða þurfa læknar enn að gefa þeim gaum? TExpert IQ Medical Staffing Læknastörf erlendis Hefur þú áhuga á að vinna í Bandaríkjunum, Ástralíu eða Nýja-Sjálandi? • Auknar tekjur • Ný lífsreynsla • Stærra tengslanet Við útvegum læknum bæði Locum Tenens störf og fastar stöður. Upplýsingar í síma 867-0930, +1-407-243-7601, eða info@ExpertlQMedical.com • Inflúensa - hvaða lærdóm getum við dregið af svínaflensufaraldrinum? • Blóðþynningarmeðferð hjá sjúklingum með gáttatif og notagildi prótondæluhemla. • Staða klínískra lyfjarannsókna hér á landi og framtíðarmöguleikar á þeim vettvangi. Kynning vísindarannsókna verður stór þáttur að vanda og verða innsend ágrip kynnt með veggspjaldi auk þess sem höfundar munu gera stuttlega grein fyrir helstu niðurstöðum. Öll ágrip sem samþykkt verða til kynningar á þinginu verða birt í sérstöku fylgiriti Læknablaðsins sem gefið verður út í tilefni af þinginu. Veitt verða verðlaun fyrir framúrskarandi rannsókn ungs læknis og fyrir besta framlag læknanema. í tengslum við þingið verður haldið málþing um frumulíffræði lungna fimmtudaginn 30. september. Þar verður greint frá afar áhugaverðum rannsóknum samstarfshóps vísindamanna á Landspítala og við Háskóla íslands. Að þinginu loknu verður hátíðarkvöldverður á veitingastaðnum Silfri á Hótel Borg. Aðalstyrktaraðili þingsins er Vistor. Upplýsingar um þingið og skráning er á www. athygliradstefnur.is Stjórn Félags íslenskra lyflækna: Runólfur Pálsson, formaður Sigurður Ólafsson, gjaldkeri Davíð O. Arnar, ritari Rafn Benediktsson, formaður vísindanefndar Hlíf Steingrímsdóttir Sigurður Guðmundsson Læknastofur til leigu Fjórar læknastofur til leigu að Sogavegi 108 (fyrir ofan Garðsapótek). Nánari upplýsingar veitir Haukur Ingason í síma 8645590. 572 LÆKNAblaöið 2010/96

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.