Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2011, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 15.12.2011, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREIN Læknablaðið í sókn - nýjar leiðbeiningar til höfunda fræðigreina Tómas Guðbjartsson Höfundur er brjóstholsskurölæknir á Landspítala, prófessor viö HÍ og situr (ritstjórn Læknablaðsins. tomasgud@ landspitali.is í þessu tölublaði Læknablaðsins eru birtar nýjar og endurbættar leiðbeiningar fyrir höfunda fræðigreina.1 Þær hafa nú verið endurskoðaðar frá grunni og flokkar fræði- greina endurmetnir, sem og viðmið um lengd, fjölda tilvísana og frágang mynd- efnis og taflna. Vinna við endurbæturnar hefur staðið í tæpt ár. Undirritaður hefur leitt þá vinnu en margir hafa lagt hönd á plóginn, bæði innan og utan ritstjórnar. Markmiðið er að styrkja blaðið í sessi sem alþjóðlegt vísindarit, enda er Læknablaðið nú skráð í helstu gagnagrunna vísindatímarita á sviði lífvísinda. Tekið hefur verið mið af höfundaleiðbeiningum vísindarita eins og New England Journal of Medicine, Lancet, JAMA og British Medical Journal. Helstu áherslubreytingar • Flokkar fræðigreina hafa verið ein- faldaðir og lengdartakmarkanir hvers flokks eru nú gefnar upp í fjölda orða í stað slaga áður. Á það bæði við um ágrip (hámark 250 orð fyrir vísindagreinar) og meginmál greina (hámark 3000 orð fyrir vísindagreinar og 5000 orð fyrir yfirlitsgreinar). Hverjum flokki fylgja ítarlegri leiðbeiningar en áður um efnis- tök og frágang texta. • Fjöldi heimilda í hverjum flokki hefur verið endurskoðaður, til dæmis er hann að hámarki 30 í vísindagreinum í stað 25 áður. Hámarksfjöldi tilvísana er sem fyrr 60 í yfirlitsgreinum á pappír, en í netútgáfu gefst höfundum kostur á birt- ingu fleiri heimilda. • Frágangur heimilda er nokkuð breyttur. Greint er frá nöfnum allra höfunda nema þeir séu fleiri en sex, þá er bætt aftan við sjötta nafnið et al. Þegar vitnað er í íslenskar vísindagreinar eru nöfn höf- unda skrifuð samkvæmt enskri ritvenju. Heiti greinar og Læknablaðsins er þó sem fyrr á íslensku. Vinnustaðar og há- skólatengsla skal nú getið bæði á ensku og íslensku. Með þessum breytingum er leitast við að gera leit í alþjóðlegum gagnagrunnum eins og PubMed og Web ofScience auðveldari og tryggja að grein- in sé tengd réttum háskóladeildum. • Kröfur til yfirlitsgreina eru auknar. Höfundar verða nú að gera grein fyrir því hvernig heimildir voru fundnar í rafrænum gagnagrunnum. Einnig er lögð áhersla á að stuðst sé við ritrýndar heimildir. • Flokkar sjúkratilfella, sem áður voru sjúkratilfelli annars vegar og hins vegar sjúkratilfelli með yfirliti, hafa verið sam- einaðir í einn flokk. • Nýtt og ítarlegra eyðublað er komið í stað tveggja eldri eyðublaða um hags- munatengsl og höfundayfirlýsingu. Lögð er áhersla á að eyðublaðið berist um leið og greinin er send til blaðsins. Eins og áður verða allir höfundar að af- sala sér birtingarrétti til Læknablaðsins og gefa upp hugsanleg hagsmunatengsl. Jafnframt verða allir höfundar að greina frá framlagi sínu til rannsóknarinnar og/eða ritun greinarinnar. Þessar áherslur taka mið af breyttum kröfum erlendra vísindarita. • Skerpt hefur verið á reglum varðandi tvíbirtingu fræðigreina. Almennt er gerð sú krafa að efnið hafi ekki birst í öðrum vísindaritum. Einstaka undan- tekningar eru frá þessari meginreglu og er tvíbirting aðeins möguleg í samráði við ritstjórn Læknablaðsins ef sérstakar ástæður þykja fyrir birtingunni. Þá verður að liggja fyrir skriflegt leyfi frá ritstjóra þess blaðs þar sem greinin birt- ist fyrst. • Öllum fræðigreinum skal fylgja bréf til blaðsins þar sem höfundar rökstyðja í stuttu máli af hverju greinin á erindi í Læknablaðið. Nú verður einnig að geta númera á leyfum og/eða tilkynningum vegna rannsókna, til dæmis frá Vísinda- siðanefnd og Persónuvernd. • Ekki þarf lengur að tilgreina lykilorð á íslensku, heldur aðeins á ensku. • Lögð er mikil áhersla á að samræma útlit myndefnis. Því eru sýnd dæmi um uppsetningu á töflum og myndum sem æskilegt er að fylgja. Texti við töflur og myndir þarf að vera bæði á íslensku og ensku. Senda verður myndir í sérstakri jpg-skrá, ekki í Word-skjali. Heildar- fjölda taflna og mynda hefur verið breytt og er hann nú 8 í vísindagreinum og 10 í yfirlitsgreinum. • Nú er stefnt að því að höfundar fái rit- rýni í hendur innan þriggja mánaða frá því að handrit er sent til blaðsins. Hafi höfundum verið gefinn kostur á því að lagfæra handritið, með hugsanlega birtingu í huga, er nú miðað við að þeir hafi tvo mánuði til þess. Berist leiðrétt handrit ekki innan þess tíma, er litið svo á að höfundar hafi ekki lengur áhuga á birtingu greinarinnar í Læknablaðinu. Læknablaðið hefur verið gefið út samfellt í tæpa öld og er á meðal elstu vísindarita á ís- landi. Ritstjórn hefur lagt mikla áherslu á að fylgja í hvívetna reglum alþjóðlegra lækna- tímarita um birtingu fræðigreina,2 ekki síst til að tryggja að innsendar fræðigreinar hljóti faglega og óhlutlæga umfjöllun sér- fræðinga. Blaðið er í stöðugri þróun og er það von mín og annarra í ritstjórn að þessar nýju leiðbeiningar muni styrkja blaðið enn frekar í sessi og verði sem flestum hvatning til að senda fræðigreinar í blaðið. 1. Gudbjartsson T, Gunnarsdottir A, Sigurdsson E. Leið- beiningar fyrir höfunda fræðilegs efnis í Læknablaðinu. Læknablaðið 2011; 97: 699-704. 2. www.icmje.org - nóvember 2011. Developing the journal - new guidelines for authors of research articles LÆKNAblaðið 2011/97 671
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.