Læknablaðið - 15.12.2011, Blaðsíða 40
LEIÐBEININGAR
Dæmi um myndanotkun
Mynd X. Kaplan-Meier grafsem sýnir lifun sjúklinga 75 ára og eldri
sem gengust undir kransxðahjáveituaðgerö á íslandi frá 2002 til 2006
(blá lína, 95% öryggisbil sýnd með bláum brotalínum) samanborið við
viðmiðunarhóp af sama aldri og kyni (svört lína).
fyrir fræðigreinar, en einn til tveir fyrir greinar um sögu læknis-
fræðinnar. Ritrýnar eru beðnir að skila verkefni sínu innan þriggja
vikna. Nafnleyndar er gætt, þannig að ritrýnar sjá ekki hverjir eru
höfundar efnis og höfundar vita ekki hverjir ritrýna handrit þeirra.
Ákvörðun um birtingu greinar eða höfnun er send til höfunda
með tölvupósti, og er miðað við að að hún berist höfundum innan
þriggja mánaða frá viðtöku greinar. Oftast fylgir með sú ritrýni
sem liggur til grundvallar ákvörðun ritstjórnar. Hafi höfundum
verið gefinn kostur á því að lagfæra handritið með hugsanlega
birtingu í huga, hafa þeir tvo mánuði til að svara ritrýnum og
lagfæra greinina. Sá tími getur þó verið lengri sé verulegra end-
urbóta þörf, en þó aldrei lengri en þrír mánuðir. Hafi endurbætt
handrit ekki borist blaðinu aftur að þeim tíma liðnum, túlkar rit-
stjórn það svo að höfundar hafi ekki lengur hug á birtingu grein-
arinnar í Læknablaðinu. Ákvörðun ritstjórnar um höfnun greinar er
endanleg. Höfundar geta þó óskað eftir því með skýrum rökstuðn-
ingi að ritstjórn fjalli aftur um grein þeirra, finnist þeim ritrýnin
beinlínis röng eða byggð á greinilegum misskilningi. Verður þá að
fylgja með skrifleg röksemdafærsla höfunda.
Age
Figure X. Age distribution ofpatients tliat underwent open heart
surgery in Iceland 2002-2006.
Próförk og prentun
Miðað er við útgáfu blaðsins sem næst fyrsta degi hvers mánaðar
og er blaðið sent í prentsmiðju í kringum 25. hvers mánaðar. Viku
fyrr þarf allt efni frá höfundum að liggja fyrir.
Greinar eru lesnar og lagfærðar á öllum stigum hjá Lækna-
blaðinu. Þegar höfundar fá fyrstu próförk af grein sinni eru þeir
beðnir að lesa hana vandlega og yfirfara sérstaklega vel myndir og
töflur, bæði innihald og staðsetningu á síðu. Höfundum gefst tími
til að leiðrétta próförkina ef með þarf. Eftir að starfsfólk blaðsins
hefur fært inn leiðréttingar fá höfundar aðra próförk til frekari
skoðunar og samþykkis. Allt efni blaðsins er sent í prófarkalestur
en lokapróförk les ritstjórnarfulltrúi.
Þakkir fá Védís Skarphéðinsdóttir ritstjórnarfulltrúi, prófess-
orarnir Ásgeir Haraldsson, Gísli H. Sigurðsson, Guðmundur Þor-
geirsson og Magnús Gottfreðsson, auk Martins Inga Sigurðssonar
deildarlæknis fyrir þarfar ábendingar.
704 LÆKNAblaðið 2011/97