Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2011, Side 40

Læknablaðið - 15.12.2011, Side 40
LEIÐBEININGAR Dæmi um myndanotkun Mynd X. Kaplan-Meier grafsem sýnir lifun sjúklinga 75 ára og eldri sem gengust undir kransxðahjáveituaðgerö á íslandi frá 2002 til 2006 (blá lína, 95% öryggisbil sýnd með bláum brotalínum) samanborið við viðmiðunarhóp af sama aldri og kyni (svört lína). fyrir fræðigreinar, en einn til tveir fyrir greinar um sögu læknis- fræðinnar. Ritrýnar eru beðnir að skila verkefni sínu innan þriggja vikna. Nafnleyndar er gætt, þannig að ritrýnar sjá ekki hverjir eru höfundar efnis og höfundar vita ekki hverjir ritrýna handrit þeirra. Ákvörðun um birtingu greinar eða höfnun er send til höfunda með tölvupósti, og er miðað við að að hún berist höfundum innan þriggja mánaða frá viðtöku greinar. Oftast fylgir með sú ritrýni sem liggur til grundvallar ákvörðun ritstjórnar. Hafi höfundum verið gefinn kostur á því að lagfæra handritið með hugsanlega birtingu í huga, hafa þeir tvo mánuði til að svara ritrýnum og lagfæra greinina. Sá tími getur þó verið lengri sé verulegra end- urbóta þörf, en þó aldrei lengri en þrír mánuðir. Hafi endurbætt handrit ekki borist blaðinu aftur að þeim tíma liðnum, túlkar rit- stjórn það svo að höfundar hafi ekki lengur hug á birtingu grein- arinnar í Læknablaðinu. Ákvörðun ritstjórnar um höfnun greinar er endanleg. Höfundar geta þó óskað eftir því með skýrum rökstuðn- ingi að ritstjórn fjalli aftur um grein þeirra, finnist þeim ritrýnin beinlínis röng eða byggð á greinilegum misskilningi. Verður þá að fylgja með skrifleg röksemdafærsla höfunda. Age Figure X. Age distribution ofpatients tliat underwent open heart surgery in Iceland 2002-2006. Próförk og prentun Miðað er við útgáfu blaðsins sem næst fyrsta degi hvers mánaðar og er blaðið sent í prentsmiðju í kringum 25. hvers mánaðar. Viku fyrr þarf allt efni frá höfundum að liggja fyrir. Greinar eru lesnar og lagfærðar á öllum stigum hjá Lækna- blaðinu. Þegar höfundar fá fyrstu próförk af grein sinni eru þeir beðnir að lesa hana vandlega og yfirfara sérstaklega vel myndir og töflur, bæði innihald og staðsetningu á síðu. Höfundum gefst tími til að leiðrétta próförkina ef með þarf. Eftir að starfsfólk blaðsins hefur fært inn leiðréttingar fá höfundar aðra próförk til frekari skoðunar og samþykkis. Allt efni blaðsins er sent í prófarkalestur en lokapróförk les ritstjórnarfulltrúi. Þakkir fá Védís Skarphéðinsdóttir ritstjórnarfulltrúi, prófess- orarnir Ásgeir Haraldsson, Gísli H. Sigurðsson, Guðmundur Þor- geirsson og Magnús Gottfreðsson, auk Martins Inga Sigurðssonar deildarlæknis fyrir þarfar ábendingar. 704 LÆKNAblaðið 2011/97

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.