Læknablaðið - 15.12.2011, Blaðsíða 43
Ú R PENNA STJÓRNARMANNA LÍ
Er mönnunarvandi í heilbrigðisþjónustunni?
Steinn
Jónsson
er lungnalæknir
á Landspítala,
formaður Læknafélags
Reykjavíkur og situr
í stjórn Læknafélags
Islands
steinnj@landspitali.is
Nýlega fékk stjórn Læknafélags íslands til
umsagnar skýrslu frá velferðarráðuneyt-
inu þar sem fjallað var um fjölda lækna
í landinu og horfur varðandi mönnun.
Niðurstaða skýrsluhöfunda var sú að
enginn mönnunarvandi væri fyrir hendi
og er það í samræmi við annað sem hefur
komið fram í máli stjórnvalda og annarra
ráðamanna í heilbrigðiskerfinu um þetta
efni. Okkur starfandi læknum á íslandi
blandast þó ekki hugur um að þessi vandi
er raunverulegur og mun aðeins versna,
verði ekki við honum brugðist.
í nýlegri skýrslu Boston Consulting
Group var lítið gert úr mönnunarvanda í
heilsugæslunni með samanburði við fjölda
heilsugæslulækna á hverja 1000 íbúa í
Svíþjóð og Noregi. í þeirri skýrslu láðist að
taka fram að allir sem til þekkja í þessum
löndum vita að mikill skortur er á læknum
þar og gylliboð í gangi til þeirra sem vilja
ráða sig.
LI hefur lagt áherslu á að starfandi
læknum á íslandi hafi fækkað um 10-15%
frá árinu 2008 og umtalsverð undir-
mönnun sé til staðar á mörgum sviðum.
Til vitnis um það má benda á tvær at-
kvæðagreiðslur um kjarasamninga LÍ og
fjármálaráðherra, en í þessum atkvæða-
greiðslum taka þátt allir sjúkrahúslæknar
og heilsugæslulæknar á landinu. í fyrri
atkvæðagreiðslunni, haustið 2008, voru
905 læknar á kjörskrá en í þeirri síðari,
2011, voru 803 á kjörskrá, eða 11,3% færri.
Þarna er ótalið það hlutfall lækna sem nú
stundar hlutastörf erlendis en slíkt hefur
færst mjög í vöxt að undanförnu.
Á Landspítalanum hefur almennum
læknum fækkað og flestar deildir spítalans
eru undirmannaðar hvað snertir kandídata
og deildarlækna. í mörgum mikilvægum
sérgreinum byggist sérfræðiþjónustan á
örfáum einstaklingum sem þurfa að búa
við mikið vaktaálag og eru heilaskurð-
lækningar og hjartaskurðlækningar góð
dæmi. Vinnutími allra lækna hefur verið
takmarkaður vegna vinnuverndarákvæða
EES-samningsins. Þessar reglur kveða á
um 48 tíma hámarksvinnu í hverri viku og
11 tíma lágmarkshvíld á sólarhring. Þessar
nýju reglur valda því að mun fleiri lækna
þarf til að manna störf á sjúkrahúsum
og víðar í heilbrigðiskerfinu en áður var,
einkum þar sem mikið vaktaálag er.
Önnur hlið mönnunarvandans er sú
að lítil nýliðun hefur orðið meðal lækna
undanfarin ár. Þessi þróun leiðir til þess
að meðalaldur starfandi lækna fer hækk-
andi og nægir að nefna að meðalaldur
sérfræðilækna á Landspítala er 53 ár. Þetta
á reyndar við um öll sjúkrahús lands-
ins en hefur verið mjög eftirtektarvert á
Landspítalanum eftir sameiningu sjúkra-
húsanna í Reykjavík. Á hinum svokölluðu
þenslutímum var heilbrigðiskerfið beitt
miklu aðhaldi í fjárlögum og kom það
meðal annars fram í ráðningastefnunni
gagnvart læknum. Nú hefur hrunið bæst
ofan á þennan vanda með óhagstæðum
samanburði við útlönd í launamálum.
Ungir vel menntaðir læknar sjá sér nú hag
í að starfa áfram erlendis, frekar en að
snúa aftur til íslands, af ýmsum ástæðum,
bæði faglegum og fjárhagslegum. Að-
stöðuleysi og tækjasvelti á sjúkrahúsum
landsins á þar einnig hlut að máli.
Alvarlegastur er vandinn þó líklega
á landsbyggðinni. Fyrir utan fyrrnefnda
þætti vofir þar yfir hálfopinber stefna
stjórnvalda um að gera róttækar breyt-
ingar á skipan heilbrigðisþjónustunnar
á landsbyggðinni, jafnvel í þá veru að í
framtíðinni verði aðeins tvö deildaskipt
sjúkrahús starfandi í landinu, Landspítal-
inn í Reykjavík og Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri. Þegar þessu er síðan fylgt
eftir með miskunnarlausum niðurskurði,
eru skilaboðin skýr til þeirra sem gætu
verið að hugleiða að flytja til landsins, og
sérlega að starfa utan stærstu þéttbýlis-
kjarnanna. Þessi stefna virðist heldur ekki
ríma sérlega vel við það yfirlýsta markmið
velferðarráðherra að jafna aðgengi lands-
byggðarfólks að sérfræðilæknisþjónustu.
Eina leiðin til að tryggja nauðsynlega
sérfræðilæknisþjónustu á landsbyggðinni
er að þar sé aðstaða til þess að sinna henni
og tækifæri fyrir sérfræðilækna til að
starfa í stærstu sérgreinunum, lyflækning-
um og skurðlækningum. Samgöngur eru
víða það ótryggar að allt tal um að hafa að-
eins tvo spítala í landinu gengur ekki upp.
Bættar samgöngur munu vafalaust leiða
til þess að einhver samþjöppun geti orðið
í sjúkrahúsþjónustu á landsbyggðinni en
sú þróun tekur tíma og skynsamlegt er að
rasa ekki um ráð fram í þessum efnum.
Læknafélögin hafa eins og áður segir
bent á vandann en yfirvöld virðast ekki
vilja horfast í augu við staðreyndir. Hjá
ráðamönnum hlaðast nú upp skýrslur
um ýmis efni en lítið ber á markvissri
vinnu við að taka á vandamálunum.
Læknafélögin eru eftir sem áður reiðubúin
að vinna með stjórnvöldum að lausnum
en fyrst verða ráðamenn að átta sig á því
að læknar búa yfir mikilvægustu þekk-
ingunni í heilbrigðiskerfinu, lykillinn að
lausnunum er hjá þeim.
Stjórn LÍ
Þorbjörn Jónsson
formaður
Valgerður Á. Rúnarsdóttir
varaformaður
Magnús Baldvinsson
gjaidkeri
Anna K. Jóhannsdóttir
ritari
Árdís Björk Ármannsdóttir
Orri Þór Ormarsson
Salome Arnardóttir
Steinn Jónsson
Þórey Steinarsdóttir
í pistlunum Úrpenna stjórnarmanna Ll birta þeir
sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.
LÆKNAblaðið 2011/97 707