Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.12.2011, Qupperneq 43

Læknablaðið - 15.12.2011, Qupperneq 43
Ú R PENNA STJÓRNARMANNA LÍ Er mönnunarvandi í heilbrigðisþjónustunni? Steinn Jónsson er lungnalæknir á Landspítala, formaður Læknafélags Reykjavíkur og situr í stjórn Læknafélags Islands steinnj@landspitali.is Nýlega fékk stjórn Læknafélags íslands til umsagnar skýrslu frá velferðarráðuneyt- inu þar sem fjallað var um fjölda lækna í landinu og horfur varðandi mönnun. Niðurstaða skýrsluhöfunda var sú að enginn mönnunarvandi væri fyrir hendi og er það í samræmi við annað sem hefur komið fram í máli stjórnvalda og annarra ráðamanna í heilbrigðiskerfinu um þetta efni. Okkur starfandi læknum á íslandi blandast þó ekki hugur um að þessi vandi er raunverulegur og mun aðeins versna, verði ekki við honum brugðist. í nýlegri skýrslu Boston Consulting Group var lítið gert úr mönnunarvanda í heilsugæslunni með samanburði við fjölda heilsugæslulækna á hverja 1000 íbúa í Svíþjóð og Noregi. í þeirri skýrslu láðist að taka fram að allir sem til þekkja í þessum löndum vita að mikill skortur er á læknum þar og gylliboð í gangi til þeirra sem vilja ráða sig. LI hefur lagt áherslu á að starfandi læknum á íslandi hafi fækkað um 10-15% frá árinu 2008 og umtalsverð undir- mönnun sé til staðar á mörgum sviðum. Til vitnis um það má benda á tvær at- kvæðagreiðslur um kjarasamninga LÍ og fjármálaráðherra, en í þessum atkvæða- greiðslum taka þátt allir sjúkrahúslæknar og heilsugæslulæknar á landinu. í fyrri atkvæðagreiðslunni, haustið 2008, voru 905 læknar á kjörskrá en í þeirri síðari, 2011, voru 803 á kjörskrá, eða 11,3% færri. Þarna er ótalið það hlutfall lækna sem nú stundar hlutastörf erlendis en slíkt hefur færst mjög í vöxt að undanförnu. Á Landspítalanum hefur almennum læknum fækkað og flestar deildir spítalans eru undirmannaðar hvað snertir kandídata og deildarlækna. í mörgum mikilvægum sérgreinum byggist sérfræðiþjónustan á örfáum einstaklingum sem þurfa að búa við mikið vaktaálag og eru heilaskurð- lækningar og hjartaskurðlækningar góð dæmi. Vinnutími allra lækna hefur verið takmarkaður vegna vinnuverndarákvæða EES-samningsins. Þessar reglur kveða á um 48 tíma hámarksvinnu í hverri viku og 11 tíma lágmarkshvíld á sólarhring. Þessar nýju reglur valda því að mun fleiri lækna þarf til að manna störf á sjúkrahúsum og víðar í heilbrigðiskerfinu en áður var, einkum þar sem mikið vaktaálag er. Önnur hlið mönnunarvandans er sú að lítil nýliðun hefur orðið meðal lækna undanfarin ár. Þessi þróun leiðir til þess að meðalaldur starfandi lækna fer hækk- andi og nægir að nefna að meðalaldur sérfræðilækna á Landspítala er 53 ár. Þetta á reyndar við um öll sjúkrahús lands- ins en hefur verið mjög eftirtektarvert á Landspítalanum eftir sameiningu sjúkra- húsanna í Reykjavík. Á hinum svokölluðu þenslutímum var heilbrigðiskerfið beitt miklu aðhaldi í fjárlögum og kom það meðal annars fram í ráðningastefnunni gagnvart læknum. Nú hefur hrunið bæst ofan á þennan vanda með óhagstæðum samanburði við útlönd í launamálum. Ungir vel menntaðir læknar sjá sér nú hag í að starfa áfram erlendis, frekar en að snúa aftur til íslands, af ýmsum ástæðum, bæði faglegum og fjárhagslegum. Að- stöðuleysi og tækjasvelti á sjúkrahúsum landsins á þar einnig hlut að máli. Alvarlegastur er vandinn þó líklega á landsbyggðinni. Fyrir utan fyrrnefnda þætti vofir þar yfir hálfopinber stefna stjórnvalda um að gera róttækar breyt- ingar á skipan heilbrigðisþjónustunnar á landsbyggðinni, jafnvel í þá veru að í framtíðinni verði aðeins tvö deildaskipt sjúkrahús starfandi í landinu, Landspítal- inn í Reykjavík og Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Þegar þessu er síðan fylgt eftir með miskunnarlausum niðurskurði, eru skilaboðin skýr til þeirra sem gætu verið að hugleiða að flytja til landsins, og sérlega að starfa utan stærstu þéttbýlis- kjarnanna. Þessi stefna virðist heldur ekki ríma sérlega vel við það yfirlýsta markmið velferðarráðherra að jafna aðgengi lands- byggðarfólks að sérfræðilæknisþjónustu. Eina leiðin til að tryggja nauðsynlega sérfræðilæknisþjónustu á landsbyggðinni er að þar sé aðstaða til þess að sinna henni og tækifæri fyrir sérfræðilækna til að starfa í stærstu sérgreinunum, lyflækning- um og skurðlækningum. Samgöngur eru víða það ótryggar að allt tal um að hafa að- eins tvo spítala í landinu gengur ekki upp. Bættar samgöngur munu vafalaust leiða til þess að einhver samþjöppun geti orðið í sjúkrahúsþjónustu á landsbyggðinni en sú þróun tekur tíma og skynsamlegt er að rasa ekki um ráð fram í þessum efnum. Læknafélögin hafa eins og áður segir bent á vandann en yfirvöld virðast ekki vilja horfast í augu við staðreyndir. Hjá ráðamönnum hlaðast nú upp skýrslur um ýmis efni en lítið ber á markvissri vinnu við að taka á vandamálunum. Læknafélögin eru eftir sem áður reiðubúin að vinna með stjórnvöldum að lausnum en fyrst verða ráðamenn að átta sig á því að læknar búa yfir mikilvægustu þekk- ingunni í heilbrigðiskerfinu, lykillinn að lausnunum er hjá þeim. Stjórn LÍ Þorbjörn Jónsson formaður Valgerður Á. Rúnarsdóttir varaformaður Magnús Baldvinsson gjaidkeri Anna K. Jóhannsdóttir ritari Árdís Björk Ármannsdóttir Orri Þór Ormarsson Salome Arnardóttir Steinn Jónsson Þórey Steinarsdóttir í pistlunum Úrpenna stjórnarmanna Ll birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. LÆKNAblaðið 2011/97 707
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.