Læknablaðið - 15.12.2011, Blaðsíða 49
n-\ -k‘ ' B
Pl .1
4 jM';J
„Við hjónin höfnm ánægju afferðalögum og evrópsk menning hefur heillað." Þðrður ásamt Sólrúnu Jensdóttur eiginkonu sinni á góðri stund á útimarkaði í Moskvu 1997.
standa fremst tímamótarannsóknir á
vegum Islenskrar erfðagreiningar og
Hjartaverndar, auk fleiri aðila. Við búum
yfir miklum möguleikum til frekari rann-
sókna og vísindaafreka á þessu sviði, þar
sem ómetanlegar upplýsingar felast í þeim
gagnagrunnum sem til eru og verða til
í landinu. Þar tel ég til dæmis að nánara
samstarf vísindamanna Hjartaverndar og
Islenskrar erfðagreiningar gæti skapað
rannsóknarfæri sem ekki eru á hverju strái
í öðrum löndum. Þar reynir kannski fyrst
og fremst á samstarfsvilja allra þeirra sem
á taumum halda."
Aftur til upphafsins
Eftir hin formlegu starfslok hefur Þórður
snúið sér að rækt áhugamála sinna sem
eru fjölbreytt. „Við hjónin höfum ánægju
af ferðalögum og evrópsk menning hefur
heillað. Rætur hennar höfum við skynjað
í Mið-Austurlöndum, Grikklandi, Sikiley
og Býsans. Óperur Wagners, mörg leikrita
Shakespeares, myndlist miðalda og endur-
reisnar eru meðal þeirra menningarþátta
sem hafa haft aðdráttarafl á fullorðins-
árum.
Þá hef ég lagt stund á söfnum gamalla
íslandskorta og ferðabóka útlendinga
um ísland og á orðið allgott safn slíkra,
þó ekki geri ég kröfu til að vera talinn í
hópi fullgildra safnara. Síðustu árin hefur
mikil orka og tími farið í spænsku- og
frönskunám sem ég hef stundað að mestu
á eigin spýtur, þótt ég hafi sótt ýmis nám-
skeið. Þegar allt er dregið saman má segja
að snemma beygist krókurinn, þar sem ég
hef enn ánægju af því sama og í barnæsku,
lestri og grúski af ýmsu tagi. Við þá iðju
kann ég best við mig."