Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2011, Side 49

Læknablaðið - 15.12.2011, Side 49
n-\ -k‘ ' B Pl .1 4 jM';J „Við hjónin höfnm ánægju afferðalögum og evrópsk menning hefur heillað." Þðrður ásamt Sólrúnu Jensdóttur eiginkonu sinni á góðri stund á útimarkaði í Moskvu 1997. standa fremst tímamótarannsóknir á vegum Islenskrar erfðagreiningar og Hjartaverndar, auk fleiri aðila. Við búum yfir miklum möguleikum til frekari rann- sókna og vísindaafreka á þessu sviði, þar sem ómetanlegar upplýsingar felast í þeim gagnagrunnum sem til eru og verða til í landinu. Þar tel ég til dæmis að nánara samstarf vísindamanna Hjartaverndar og Islenskrar erfðagreiningar gæti skapað rannsóknarfæri sem ekki eru á hverju strái í öðrum löndum. Þar reynir kannski fyrst og fremst á samstarfsvilja allra þeirra sem á taumum halda." Aftur til upphafsins Eftir hin formlegu starfslok hefur Þórður snúið sér að rækt áhugamála sinna sem eru fjölbreytt. „Við hjónin höfum ánægju af ferðalögum og evrópsk menning hefur heillað. Rætur hennar höfum við skynjað í Mið-Austurlöndum, Grikklandi, Sikiley og Býsans. Óperur Wagners, mörg leikrita Shakespeares, myndlist miðalda og endur- reisnar eru meðal þeirra menningarþátta sem hafa haft aðdráttarafl á fullorðins- árum. Þá hef ég lagt stund á söfnum gamalla íslandskorta og ferðabóka útlendinga um ísland og á orðið allgott safn slíkra, þó ekki geri ég kröfu til að vera talinn í hópi fullgildra safnara. Síðustu árin hefur mikil orka og tími farið í spænsku- og frönskunám sem ég hef stundað að mestu á eigin spýtur, þótt ég hafi sótt ýmis nám- skeið. Þegar allt er dregið saman má segja að snemma beygist krókurinn, þar sem ég hef enn ánægju af því sama og í barnæsku, lestri og grúski af ýmsu tagi. Við þá iðju kann ég best við mig."

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.