Læknablaðið - 15.12.2011, Blaðsíða 58
ÖLDUNGADEILD
Læknisferð á aðventu 1901
Goðafoss í klakaböndum. Ljósmynd. Andreas Tille
Miimingabrot úr kaflanum „Úr endurminn-
ingum" sem Ingólfur Gíslason ritaði í Lækna-
bókina sem gefin var út 1949 af Helgafelli.
Ingólfur réðst fyrst til héraðslæknisþjónustu
árið 1901 í Reykjadalshéraði er tók yfir alla
suðurlireppa Suður-Þingeyjarsýslu. Hann
gegndi því til ársins 1906.
Mér dettur í hug ein af
þessum ferðum, það var
nokkru fyrir jól, þennan
fyrsta vetur. Við lögðum
af stað síðari part nætur
og ferðinni var heitið til
sóknarprests, sem átti
Iim-I95i,as°" heima fremst frammi f
Bárðardal. Presturinn var
ungur og efnilegur mað-
ur, en nú hafði hann fengið lungnaberkla
með blóðhósta. Ferðin gekk nú sæmilega
til að byrja með, hestarnir óðu snjóinn á
Fljótsheiðinni og sums staðar var skafið
af brautarnefnunni. Við gátum þá látið
hestana skokka og þegar vestur af heiðinni
kom, sáum við, þrátt fyrir hríðarkólguna,
hvernig Goðafoss barðist við klökuga
klettadranga og þeytti stórum klaka-
stykkjum, heilum jökum, niður í hyldýpið.
Gufan upp af fossinum virtist frjósa og
verða að strönglum er steyptust svo fram
af brúninni með stóru, hvítu vatnsbólstr-
unum. Ekki vildi ég vera í sporum Grettis
Ásmundssonar þegar hann kafaði undir
fossinn og vann á ófreskjunum þar. Nei,
þá var skárra að vaða lausar fannirnar á
fljótsbakkanum í mitti, með hestinn brölt-
andi á eftir sér, bara passa að hann stigi
ekki ofan á mann í umbrotunum. Komast
svo á bak á næstu hæð og hvíla sig á hest-
inum um stund. Svona gekk þetta lengi
dags, veðrið versnaði, hríðarkófið buldi á
okkur og lítið sá til þessara fáu bæja sem
urðu á leið okkar, því þeir voru að mestu
huldir snjó. Þegar rökkva tók komum við
loks heim að einum bæ. Mér fannst við
vera komnir svo langt inn til fjalla að þetta
hlyti að vera útilegumannabær og mað-
urinn sem var að moka frá bæjardyrunum
var í stórri mórauðri úlpu og með skinn-
húfu á höfðinu, en hann var svo gæfur
og góðlegur, að hann gat ekki verið úti-
legumaður. Fiann bauð okkur inn í stofu,
sem auðvitað var héluð innan og köld.
Við settumst niður í öllum skrúðanum,
sem víða var skreyttur drifhvítum snjó,
óþarfi að dusta af sér, því ekki var hætt
við að snjórinn bráðnaði. Við vissum að
við áttum langa leið fyrir höndum, áður
en við kæmum á prestssetrið, eu samt
fannst mér að Ódáðahraun hlyti að vera
á næstu grösum með allar sínar forynjur
og tröll. Ég varð því mjög undrandi er ég
heyrði allt í einu leikið á „píanó" yfir höfð-
inu á mér og það var auðheyrt að sá kló er
kunni. Symfonia eftir Beethoven streymdi
um húsið eins og skærasta ljósalda og
hvergi virtist blettur né hrukka. Grammo-
fon var ekki um að tala og útvarp hafði þá
engum dottið í hug. Þetta var húsbóndinn
við slaghörpuna sína, hann var nýkominn
inn frá því að gefa ánum, búinn að þvo sér
um hendurnar og var nú að liðka fingurna
og hressa sig áður en hann kæmi niður til
að drekka með okkur kaffi. Við lögðum
af stað sáttari en áður við guð og menn,
héldum út í hríðina, myrkrið og nóttina,
sem skilaði okkur til prestsins, um það bil
er dagur rann.
Fyrsta botnlangaaðgerð á íslandi
Guðmundur Hannesson varð fyrstur
íslenskra lækna til að nema brott botn-
langa. Sjúklingurinn var Ingólfur
Gíslason læknir. Aðgerðin fór fram 2.
september 1902 á Akureyri.
Skopmyndin
Margrét Guðnadóttir prófessor
var sæmd heiðursdoktorsnafnbót við
læknadeild Háskóla íslands 10. nóvem-
ber síðastliðinn.
Öldungadeild óskar henni hjartanlega
til hamingju með viðurkenninguna.
Teikning: Siguröur V. Sigurjónsson
U?)ldungadeild
Læknafélaqs íslands
Stjórn Öldungadeildar: Öldungaráð Umsjón síðu: Páll Ásmundsson
Sigurður E. Þorvaldsson formaður, Jón Hilmar Hörður Þorleifsson, Jóhann Gunnar
Alfreðsson ritari, Tryggvi Ásmundsson gjaldkeri, Þorbergsson, Höskuldur Baldursson, Kristín
Bjarni Hannesson, Guðmundur Oddsson Guttormsson, Leifur Jónsson, Páll Ásmundsson
722 LÆKNAblaðið 2011/97